Morgunblaðið - 15.03.2017, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Leikhópurinn Sómi þjóðar frum-
flytur í menningarhúsinu Mengi í
kvöld verkið Þúsund ára þögn. Í því
takast Hilmir Jensson, Karl Ágúst
Þorbergsson, Kolbeinn Arnbjörns-
son og Tryggvi Gunnarsson á við
birtingarmyndir og áhrif hinnar ís-
lensku þagnar á sálarlíf þjóðarinnar.
„Eins og titillinn gefur til kynna
þá tökumst við á við þögnina á
stórum samfélagslegum skala, það
hvenær við tölum um hlutina, hve-
nær við eigum að tala um þá, og
hvernig, en aðallega af hverju við
tölum ekki um hlutina – sem er
klassískt vandamál,“ segir Tryggvi.
Hann segir þá félaga velta fyrir
sér hvernig þessi þögn fæðist. „Mað-
ur kemur organdi í heiminn og virð-
ist erfa hvað má segja og hvenær.
Við könnuðum fjölskyldusögur okk-
ar, samskipti okkar við foreldra, afa
og ömmur, við börnin okkar. Og
veltum fyrir okkur öllu því sem kem-
ur fyrir fyrri kynslóðir en er ekki
rætt um – enginn veit hvenær á að
byrja á því, eða hefur hvorki getu né
löngun til þess.“
Tryggvi segir þá félaga taka efnið
listrænum tökum. „Það er mikill
játningakúltúr í dag, sem er að
mörgu leyti jákvætt en alls ekki að
öllu leyti. Oft er hent fram ein-
hverjum játningum á Facebook og
allir „læka“ og setja inn broskalla en
hvað svo?“ spyr hann.
Engin prédikun
Í tilkynningu Sóma þjóðar segir
að Þúsund ára þögn sé styrkt af
Rannsóknarmiðstöð Íslands. Líta
höfundarnir á sig sem rannsakendur
frekar en leikskáld?
„Við erum einskonar rannsókn-
arteymi,“ svarar Tryggvi. „Í hópn-
um eru leikhúsfræðingar, líffræð-
ingur og mannfræðingur og við
erum að velta þessum spurningum
fyrir okkur og mátum þær á okkur
sjálfa. Spyrjum um eigin viðbrögð
og fólksins í kringum okkur, það er
engin prédikun eða konkret svör
sem við setjum fram, heldur frekar
spurningin: hver er þögnin þín?“
Ekki svoleiðis leikhús
Verkin sem Sómi þjóðar hefur
samið og sýnt frá stofnun árið 2011
nálgast nú tuginn. Taka þeir hvert
verk sérstökum tökum eða eru teng-
ingar milli þeirra?
Tryggvi segir Sóma þjóðar vera
„kollektíf“ þar sem félagarnir vildu
setja sér ákveðnar leikreglur sem
byggjast á listrænu jafnrétti og
dreifðri ábyrgð.
„Viðfangsefnin hafa einkennst af
því að vera mjög mismunandi. Gestir
á sýningunum vita ekkert við hverju
þeir eiga að búast. Og okkur finnst
það skemmtilegt. Okkur finnst gam-
an að gera fyndna og áhugaverða
hluti, án þess að verið sé að fylgja
einhverri formúlu um það hvernig
grín eigi að vera. Að eina leiðin til að
hlæja í leikhúsi sé að fara á farsa.
Við höfnum því og höfum trú á því að
ef við leikum okkur á sviðinu, og ger-
um það vel og skemmtum okkur, þá
muni fólk skemmta sér líka.“
Tryggvi segir Mengi henta vel
fyrir sýningu sem þessa. Þar sé mik-
il nálægð við áhorfendur og þá sé
sýningarrýmið hvítur kassi, sem er
óvenjulegt.
„Í hefðbundnu leikhúsrými, sem
er venjulega svartur kassi, þá geng-
ur gesturinn inn í það vitandi að nú
fái hann að sjá leikrit með persónum
og leikendum. En við erum ekki að
gera svoleiðis leikhús og viljum ekki
að gestir okkar gangi inn með þær
fölsku forsendur í huga. Þess í stað
erum við rannsóknarteymi sem er að
kynna gestum niðurstöður rann-
sóknar – svo byrjar dagskáin…“
„Hver er þögnin þín?“
Sómi þjóðar frumsýnir Þúsund ára þögn í Mengi í kvöld
Höfundarnir eru rannsóknarteymi og kynna niðurstöður
Rannsakendur „Okkur finnst gaman að gera fyndna og áhugaverða hluti,
án þess að verið sé að fylgja einhverri formúlu,“ segir Tryggvi Gunnarsson.
Benedict Cumberbatch hefur tekið
að sér hlutverk Tom Hazard í
kvikmyndun nýjustu bókar Matt
Haig, How to Stop Time, sem
væntanleg er í júlí. Frá þessu er
greint á vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC. Bókinni hefur verið lýst
sem ástarsögu þar sem ímynd-
unaraflið fær lausan taum. Tom
Hazard glímir við sjaldgæft heilsu-
far, því hann lítur út fyrir að vera
41 árs, en er í rauninni 400 ára.
„Það er einstaklega spennandi
að Benedict Cumberbatch túlki
Tom Hazard og ég gæti ekki verið
hamingjusamari,“ segir Matt Haig,
sem er þekktur fyrir sérvisku-
legan og dimman húmor í skrifum
sínum um fjölskyldulífið.
Verkefnið mun vera Cumber-
batch mikið hjartans mál. Fram-
leiðslufyrirtæki hans, Sunny-
March, framleiðir myndina í
samstarfi við Studiocanal og Cum-
berbatch mun ekki aðeins leika að-
alhlutverkið heldur einnig gegna
starfi framkvæmdastjóra. En áður
en að því kemur mun hann fyrst
snúa aftur á hvíta tjaldið í hlut-
verki Dr Stephen Strange í ofur-
hetjumyndunum Thor: Ragnarok
og Avengers: Infinity War og leika
uppfinningamanninn Thomas Edis-
on í kvikmyndinni The Current
War.
Túlkar 400 ára gamla manneskju
Fjölhæfur Leikaranum Benedict Cumber-
batch er sannarlega margt til lista lagt.
Ummæli bandaríska leikarans
Samuels L. Jacksons um breskan
starfsbróður sinn, Daniel Kaluuya,
féllu í grýttan jarðveg fyrr í vikunni.
Fjallað er um málið á vef breska rík-
isútvarpsins, BBC. Í viðtali við út-
varpsstöðina Hot 97 sl. mánudag
gagnrýndi Jackson að Kaluuya hefði
verið fenginn til að leika eitt aðal-
hlutverkanna í bandarísku gaman-
myndinni Get Out. Í útvarpsviðtal-
inu sagðist Jackson ekki skilja
dálæti manna á breskum leikurum í
ljósi þess að marga þeldökka banda-
ríska leikara vantaði vinnu. „Ég velti
fyrir mér hvernig kvikmyndin hefði
orðið með bandarískum bróður sem
veit hvernig þetta raunverulega er,“
sagði Jackson. Myndin fjallar um
ástarsamband hvítrar konu og þel-
dökks karlmanns og viðbrögð for-
eldra konunnar þegar þeir hitta til-
vonandi tengdason sinn í fyrsta sinn.
Jackson gaf í skyn að bandarískur
þeldökkur leikari hefði betur skilið
vanda þess þegar fólk af ólíkum kyn-
þætti tekur saman í Bandaríkjunum.
„Daniel ólst upp í landi þar sem
blönduð sambönd hafa viðgengist í
hundruð ára,“ sagði Jackson.
Eftir töluverða gagnrýni fyrir um-
mælin dró Jackson í land í viðtali við
AP og tók fram að gagnrýni hans
hefði ekki átt að beinast að öðrum
leikurum heldur að kerfinu í Holly-
wood. „Ég var ekki að ráðast á þá
heldur að reyna að beina ljósinu að
því hvernig kaupin gerast oft ein-
kennilega á eyrinni í Hollywood,“
sagði Jackson og tók fram að bresk-
um þeldökkum leikurum reyndist
auðveldara að fá vinnu í bandarísk-
um kvikmyndum en öfugt. „Við njót-
um ekki sömu forréttinda og það er
allt í góðu lagi, því við fáum nóg af
tækifærum til að vinna,“ sagði Jack-
son sem gagnrýnt hefur að breski
leikarinn David Oyelowo var fenginn
til að leika Martin Luther King Jr í
kvikmyndinni Selma. Spurður hvers
vegna frekar væri leitað til breskra
leikara en bandarískra svaraði Jack-
son: „Þeir þiggja lægri laun en við.
Og leikstjórar telja að þeir séu betri
af því að þeir hafa lokið klassísku
leiklistarnámi.“
Einn þeirra sem gagnrýndu orð
Jasksons var Star Wars-leikarinn
John Boyega sem tísti þess efnis að
ummæli Jacksons væru kjánaleg og
deilan algjör tímasóun.
AFP
Gagnrýndur Samuel L. Jackson.
Umdeild ummæli
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 6
SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 5.15, 8, 10.45
SÝND KL. 5.40
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com