Morgunblaðið - 27.04.2017, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2017
Emmanuel Macron segist miðjumaður og
Evrópusinni en afar athyglisverður pólitískur
ferill hans, óhefðbundið hjónaband og loforð
um að nútímavæða Frakkland gera það að
verkum að hann er talinn standa mun betur
að vígi en Marine Le Pen fyrir seinni umferð
forsetakosninganna 7. maí.
Fari hinn 39 ára gamli fyrrverandi banka-
maður með sigur af hólmi verður hann
yngsti leiðtogi Frakka í síðari tíma sögu og
bindur enda á þá hefð að kosinn sé reyndur
og öflugur stjórnmálamaður sem forseti.
Þetta er í raun í fyrsta sinn sem Macron
tekur þátt í einhvers konar kosningum. Varð
hann hlutskarpastur í fyrri umferðinni
sunnudaginn 23. apríl og fékk sem mótherja
leiðtoga Þjóðfylkingarinnar, Marine Le Pen,
sem varð í öðru sæti. Er það í annað sinn á
10 árum sem kona kemst í seinni umferðina,
en Segolene Royal beið lægri hlut fyrir
Nicolas Sarkozy 2007. Þau voru fulltrúar
gömlu flokkanna sem drottnað hafa yfir
frönsku stjórnmálalífi í áratugi en guldu af-
hroð sl. sunnudag.
„Við höfum brotið blað í stjórnmálasögu
Frakklands,“ sagði Macron í sigurvímu eftir
að fyrstu tölur um úrslit birtust. Nýjustu
fylgismælingar síðustu daga sýna að hann
muni fá kringum 60% atkvæða í seinni um-
ferðinni og Le Pen um 40%.
Ruglaði fræðingana í ríminu
Sigurinn í fyrri umferðinni þykir réttlæta
að fullu þá ákvörðun hans að segja skilið við
ríkisstjórn Francois Hollande forseta í ágúst
í fyrra til að einbeita sér að því að byggja
upp nýja stjórnmálahreyfingu á stjórnmála-
miðjunni, „En Marche“ eða Áfram gakk.
„Við getum ekki mætt til leiks með sama
fólkið og sömu hugmyndirnar,“ sagði Macron
er hann tilkynnti framboð sitt til forseta í
nóvember, á ráðningarstofu í úthverfi Par-
ísar.
Upp frá því hefur hann nær stöðugt verið
á síðum blaða og í fréttum útvarps- og sjón-
varpsstöðva. Óhætt er að segja að hann hafi
ruglað gagnrýnendur sína í ríminu sem héldu
því fram, að hann myndi aðeins höfða til
þröngs hóps ungra sérmenntaðra stórborg-
arbúa. „Í ykkar nafni verð ég … rödd von-
arinnar fyrir land okkar og Evrópu,“ sagði
Macron er hann ávarpaði stuðningsmenn eft-
ir fyrstu umferð kosninganna. „Ég vil verða
forseti þjóðrækinna gegn ógninni af þjóðern-
issinnum,“ bætti hann við. Franskur almenn-
ingur hefur verið afar vonsvikinn með stjórn-
málastéttina og þess naut framboð Macrons,
sem tappaði af vaxandi óánægju fólks sem
þráð hefur umbætur í stórum stíl.
Kraumandi óánægja með stjórnvöld
undanfarin misseri og óskin um allsherj-
arbreytingar er einkennandi fyrir stuðnings-
menn Le Pen og fleytti henni í seinni um-
ferðina. „Ég er hérna vegna þess að hann er
ungur og kraftmikill. Þetta er eins og nýr
súrefnisskammtur,“ sagði 23 ára versl-
unarkona, Marine Gonidou, við AFP-
fréttastofuna á baráttufundi á Bretaníuskaga
í janúar.
Macron gekk á sínum tíma sama mennta-
veg og flestir úr stjórnmálaelítunni frönsku.
Hann nam til dæmis við stjórnmála- og
leiðtogaháskólann ENA. Þaðan lá leiðin í há-
launað starf hjá Rothschild-fjárfesting-
arbankanum. Hann gerðist efnahagsráðgjafi
Francois Hollande forseta eftir kosningarnar
2012 og tveimur árum síðar var hann skip-
aður efnahagsráðherra hans. Þrátt fyrir að
keppinautar hans hafi velt honum upp úr
hinum nánu tengslum við óvinsælasta forseta
í samanlagðri sögu Frakklands virðist sem
það hafi ekki bitið á almenning, segir Dom-
inique Reynie hjá hugveitunni La fondation
pour l’innovation politique de Paris.
Óskýr og óræður
Ásamt því að tala fyrir umbótum í starfs-
umhverfi atvinnulífsins lagði Macron ríka
áherslu á að bæta þyrfti menntun í fátækra-
hverfum á og svæðum sem orðið hafa út-
undan. Ennfremur hefur hann talað gegn því
að múslimum í Frakklandi verði ógnað með
stífum reglum gegn trúarlegri innrætingu.
Það hefur ýtt undir ímynd Macrons sem um-
bótamanns að hann hefur verið ötull tals-
maður nýsköpunarfyrirtækja og „Uber-
íseringar“ efnahagslífsins með vaxandi þátt-
töku sjálfstætt starfandi fólks í stað
launþega. „Ég vil að það verði auðveldara að
stofna fyrirtæki, til að auðvelda nýsköpun,“
er ein af helstu kennisetningum hans, sem
Macron útskýrir í þaula í bókinni
„Revolution“ sem hann gaf út í vetur.
Andstæðingar Macrons sitja enn við þann
keip að hann sé viljandi óskýr og óræður í
málflutningi sínum. Kristallast það í þeim
kinnhesti sem Marine Le Pen veitti mótherja
sínum í sjónvarpskappræðum í mars fyrir að
vaða elginn. „Herra Macron, kostir yðar eru
undursamlegir. Þér hafið haldið sjö mínútna
ræðu og mér er ómögulegt að draga saman
hvað þér eruð að fara. Þér sögðuð ekki
neitt!“
Féll fyrir kennslukonunni
Emmanuel Macron hefur ekki aðeins rofið
franskar stjórnmálahefðir heldur líka hefðir í
einkalífinu. Leikhússunnandinn úr millistétt-
arfjölskyldu í norðausturhluta Frakklands
féll nefnilega fyrir leikbókmenntakennara
sínum í menntaskóla, Brigitte Trogneux. Ást-
arsaga þeirra hefur heillað franska fjölmiðla.
Trogneux er þriggja barna móðir og 25 árum
eldri en Macron. Sótti hún um skilnað frá
eiginmanni sínum til að geta gifst hinum
unga hæfileikamanni árið 2007.
„Þegar Emmanuel var 17 ára sagði hann
við mig: „Hvað svo sem þú gerir þá ætla ég
að kvænast þér“,“ sagði Trogneux í viðtali
við vikuritið Paris Match í fyrra. Mörgum er
til efs að sambandið sé eins raunverulegt og
það kann að virðast í slúðurtímaritum. Sá
kvittur hefur verið á ferðinni að hann væri
hommi, en því hefur Macron neyðst til þess
oftar en einu sinni að vísa á bug.
Macron sýnist afslappaður og hrífandi þeg-
ar hann fer út á meðal kjósenda. Hann hefur
hins vegar verið sakaður um að hafa talað
niður til fólks, til dæmis með því að segja
sláturhúsafólk „ólæst og óskrifandi“, tala um
atvinnuleysingja sem „alkóhólista“ og kalla
þá „snauða“ sem hafa ekki efni á að ferðast
öðruvísi en með áætlunarrútum.
Frægt er rifrildi hans við mótmælanda á
stuttermabol á baráttufundi í maí í fyrra þar
sem Macron missti stjórn á sér og sagði:
„Besta leiðin fyrir þig til að eignast jakkaföt
er að fara að vinna.“ agas@mbl.is
„Rödd vonarinnar fyrir landið og Evrópu“
AFP
Kosið Emmanuel Macron og Brigitte Trogneux eiginkona hans greiða atkvæði á kjörstað í Le
Touquet í norðurhluta Frakklands. Macron fékk flest atkvæði í fyrri umferð kosninganna.
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Tveir ólíkir pólar takast á í seinni
umferð frönsku forsetakosninganna,
7. maí næstkomandi. Ekki frambjóð-
endur hinna hefðbundnu flokka
hægri og vinstri sem drottnað hafa
yfir franskri pólitík áratugum sam-
an, heldur fulltrúar óháðs framboðs
ættjarðarsinna og miðjumanna og
svo hinnar þjóðernissinnuðu Þjóð-
fylkingar. Ekki skortir ágreininginn
og þverstæður í helstu stefnumálum
þeirra Emmanuels Macron og Mar-
ine Le Pen.
Le Pen, frambjóðandi Þjóðfylk-
ingarinnar sem faðir hennar stofnaði
á sínum tíma, hefur löngum hvatt til
þess að Frakkar segi skilið við evr-
una og taki frankann aftur í notkun.
Sömuleiðis vill hún hætta Schengen-
samstarfinu. Hún hefur spáð
„dauða“ Evrópusambandsins (ESB)
og heitir því að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu, „Frexit“, að hætti
Breta um aðild Frakka að ESB. Þá
vill hún uppræta ESB-tilskipun er
heimilar fyrirtækjum í einu landi
sambandsins að senda starfsmenn
sína til annars sambandslands og
loks er hún mótfallin viðskiptasamn-
ingi ESB og Kanada (CETA).
Í Evrópumálum eru áherslur fyrr-
verandi bankamannsins og efna-
hagsráðherrans Macrons allt aðrar.
Hann er harður Evrópusinni og vill
styrkja evrusvæðið með því að setja
löndunum 19 sem brúka evruna sér-
leg fjárlög. Hann leggur einnig til að
evrusvæðið fái sitt eigið löggjafar-
þing og sérstakan fjármálaráðherra.
Macron vill einnig að ESB styrki
ytri landamæri sín með því að setja á
fót sérstakar varnarsveitir til að
gæta þeirra og að hersveitir land-
anna auki samstarf sitt. Þá vill hann
að ESB hækki tolla til að vernda
evrópskan iðnað fyrir ósanngjarnri
samkeppni, sér í lagi frá Kína. Al-
mennt er Macron hlynntur alþjóð-
legum viðskiptasamningum og ólíkt
Le Pen styður hann samninginn við
Kanada.
Líta ólíkt á innflytjendamálin
Le Pen hefur heitið því að stemma
stigu við komu innflytjenda niður í
10.000 á ári að nettótölu, að innflytj-
endur verði ekki meira en tíu þús-
und fleiri en brottflytjendur. Þá hef-
ur hún heitið að stöðva ótímabundið
löglega búferlaflutninga til Frakk-
lands. Hún myndi einnig þrengja
möguleika fólks á að fá hæli í landinu
og skerða heimildir innflytjenda til
að fá ættingja sína til Frakklands.
Ennfremur ætlar hún að gera það
með öllu ókleift fyrir ólöglega inn-
flytjendur að fá heimilisfesti í
Frakklandi. Útlendingum sem
dæmdir hafa verið fyrir hryðju-
verkastarfsemi eða aðra glæpi heitir
Le Pen að vísa sjálfkrafa úr landi.
Þá ætlar hún að afnema lög sem ella
veita börnum innflytjenda sem fæð-
ast í Frakklandi franskan þegnrétt.
Loks myndi Le Pen banna áberandi
trúarmerki á borð við höfuðblæju og
hjúpklæði múslímakvenna, en hún
hefur löngum og ítrekað varað við
„dauðahættunni“ sem íslamskur
strangtrúnaður væri.
Macron segist aftur á móti ekki
myndu freista þess að banna höfuð-
blæjur og hefur heitið því að hraða
málsmeðferð hælisleitenda svo hún
taki að hámarki ekki lengri tíma en
sex mánuði, að meðtalinni hugs-
anlegri áfrýjun úrskurða. Hann hef-
ur hrósað Angelu Merkel, kanslara
Þýskalands, fyrir örláta stefnu í
málefnum flóttamanna sem leitt hef-
ur til þess að til Þýskalands hefur
komið rúmlega milljón flóttamanna
frá árinu 2015.
Opinberir starfsmenn
og lífeyrismál
Hvorugur frambjóðandinn segist
ætla að hrófla við 35 stunda vinnu-
vikunni sem ríkisstjórn Sósíalista-
flokksins tók upp árið 2000. Macron
segist þó munu draga bitið úr lög-
gjöfinni með því að heimila fyrir-
tækjum að semja hverju fyrir sig við
starfsmenn um nýja skipan vinnu-
vikunnar.
Le Pen vill lækka lífeyrisaldurinn
úr 62 árum í 60. Macron vill ekki
breyta gildandi aldursviðmiðun en
aftur á móti hyggst hann samræma
flóknar reglur um lífeyrisaldur opin-
berra starfsmanna og starfsmanna
einkafyrirtækja í eina löggjöf sem
Áberandi andstæður
Málefnin skapa djúpar og breiðar gjár milli Marine
Le Pen og Emmanuels Macron fyrir seinni umferð
frönsku forsetakosninganna, sem fram fer 7. maí.
AFP
Á verði Franskir hermenn á verði á Mannréttindatorginu framan við Eiffel-
turninn í París þegar fyrri umferð frönsku forsetakosninganna fór fram.
Forsetakosningar í Frakklandi