Morgunblaðið - 05.05.2017, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
Langjökull Það var fallegt að líta til suðurs yfir Langjökul í gærmorgun. Í fjarska sást til Heklu og eins glitti í Sandvatnið. Mikil bráðnun var á hálendinu og leitaði leysingavatnið í farvegi sína.
RAX
Í gær, fimmtudaginn
4. maí, var opinber út-
gáfudagur bókar eftir
Yanis Varoufakis, fyrr-
verandi fjármálaráð-
herra Grikkja. Í bók-
inni, Adults in the
Room, lýsir hann til-
raunum sínum til að
bjarga efnahag
Grikkja eftir hrunið
2008 og viðræðum við
fulltrúa Evrópusambandsins, Seðla-
banka evrunnar og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, þríeykið svonefnda. Lýs-
ingar Varoufakis sýna hve sterk
undirtök Þjóðverja voru. Þeir knúðu
meira að segja franska ráðherra til
að ganga á bak orða sinna gagnvart
Varoufakis.
Grikkinn varar nú bresku stjórn-
ina við að láta ESB draga sig inn í
köngulóarvefinn sem fulltrúar sam-
bandsins spinni jafnan til að veikja
stöðu viðmælenda sinna.
Höfuðráð Varoufakis til Theresu
May er að hún forðist eins og heitan
eldinn að setjast að samningaborð-
inu með ESB-mönnum. Geri Bretar
það verði þeir dregnir inn í langvar-
andi stríð þar sem þeir verði niður-
lægðir hvað eftir annað. Frá Brussel
muni menn nýta sér ólíka afstöðu
breskra stjórnmálamanna, etja sam-
an landshlutum og fylkingum.
Varoufakis segir að fulltrúar ESB
muni þæfa viðræðurnar. Fyrst
kynni þeir kostnaðinn við skilnaðinn
og vilji fá hann viðurkenndan áður
en þeir tali um framtíðarviðskipti.
Til að villa um nýti þeir ESB-
hringekjuna svo að bresku full-
trúarnir viti ekki alltaf
við hverja þeir eigi að
tala.
„Þegar þið leggið
fram hófsama tillögu
bregðast þeir við henni
með því að stara skiln-
ingslausir á ykkur og
láta eins og þið hafið
farið með þjóðsöng
Svía fyrir þá. Þetta er
varnarleikur þeirra,“
segir Varoufakis við
Ambrose Evans-
Pritchard á The Tele-
graph.
Varoufakis er sérfræðingur í
„leikjakenningum“ og hann er sann-
spár um fyrstu leikina í tafli Breta
við ESB.
Harka af hálfu ESB
Theresa May, forsætisráðherra
Breta, boðaði til þingkosninga 8.
júní í því skyni að styrkja umboð sitt
í úrsagnarviðræðunum við ESB.
Það er ESB-mönnum í hag að fylgi
May verði sem minnst. Þeir hika
ekki við að blanda sér í kosningabar-
áttuna. Stuðningsmenn May segja
það gert með þegjandi samþykki
Þjóðverja.
Gamalkunnir bandamenn Bruss-
elmanna koma fram á völlinn í Bret-
landi eins og Tony Blair, fyrrverandi
leiðtogi Verkamannaflokksins.
Orðalag í samningsumboði ESB-
manna sem formlega var kynnt mið-
vikudaginn 3. maí gefur færi á að
skapa úlfúð innan Bretlands vegna
stöðu Norður-Írlands.
Vilji Bretar styrkja stöðu sína
með viðræðum við einstök ESB-ríki
stendur þeim ekkert slíkt til boða. Á
leiðtogafundi 27 ESB-ríkja laug-
ardaginn 29. apríl var einróma sam-
þykkt að aðeins ESB-fulltrúar
mundu ræða við Breta í krafti samn-
ingsumboðsins.
Með umboðinu er hafnað ósk
Breta um svonefndar samhliða-
viðræður. Það er að samhliða því
sem rætt verði um fjárhagslegt upp-
gjör og framtíðarstöðu ESB-
borgara verði rætt um framtíð-
artengsl Breta og ESB. Þá er einnig
blásið á óskir Breta um að hraða við-
ræðunum um peningana og rétt-
arstöðu ESB-borgaranna. Fjár-
hæðin er mikil, allt að 100
milljörðum evra segir The Financial
Times. Alls er talið að 3,2 milljónir
ESB-borgara séu í Bretlandi og 1,2
Breta í öðrum ESB-ríkjum.
ESB-menn ætla fyrst að ræða um
skilnaðar-skilmálanna og síðan um
stöðu Bretlands gagnvart ESB.
Samkvæmt 50. gr. ESB-sáttmálans
eru Bretar í ESB til 29. mars 2019.
Að þeim tíma liðnum er Bretland
eins og hvert annað þriðja ríki gagn-
vart sambandinu. ESB ætlar að
koma Bretum í tímaþröng.
Theresa May niðurlægð
Jean-Claude Juncker, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, og
menn hans sátu kvöldverðarfund
með Theresu May í London mið-
vikudaginn 26. apríl. Sunnudaginn
30. apríl birti Frankfurter Allge-
meine Sonntagszeitung frásögn sem
lekið var um fundinn.
Lekinn sýnir að ESB-menn beita
öllum ráðum gegn Theresu May. Af
henni er dregin sú mynd að hún viti
ekki sitt rjúkandi ráð, átti sig ekki
enn á hvað felist í úrsögninni, Brex-
it. Hugmyndir hennar um tímamörk
og fjárhæðir séu fjarri öllu lagi.
Þýska blaðið segir að Jean-
Claude Juncker hafi hringt til Ang-
elu Merkel Þýskalandskanslara
morguninn eftir kvöldverðinn og
sagt henni að May væri „úti að aka“
og í „öðru sólkerfi“. Merkel hafi tek-
ið mark á honum eins og sjá megi í
þingræðu hennar fimmtudaginn 27.
apríl þar sem hún vari Breta við að
„gera sér grillur“ vegna ESB-
viðræðnanna.
May sagði Juncker að Bretar
þyrftu ekki að greiða neitt skiln-
aðargjald, slíkt væri hvergi áskilið í
ESB-sáttmálum. Juncker svaraði
May að ESB væri ekki „golf-
klúbbur“. Aðild að ESB gætu menn
ekki slitið án frekari greiðslu-
skuldbindinga.
Juncker kvaddi May með orð-
unum: „Ég fer úr Downingstræti
með tíu sinnum meiri efasemdir en
þegar ég kom hingað.“ Þá hafi ESB-
menn metið stöðuna þannig að yfir
50% líkur væru á að ekki tækjust
Brexit-samningar.
Theresa May sagði að ekki ætti að
taka mark á þessu „Brussel-slúðri“.
Það sýndi hins vegar að viðræð-
urnar yrðu „harðar“. Þá fengi Jean-
Claude Juncker að kynnast því að
hann ætti í höggi við „fjári erfiða
konu“. Breskur álitsgjafi segir þetta
ekki lýsa þvermóðsku May heldur
hugrekki hennar.
Ranghugmyndir
Theresa May og Bretar ættu nú
að skilja hvað bíður þegar sest er að
viðræðum við ESB-menn um mál
sem þeim er ekki að skapi.
Augljóst er að lekinn og eftir-
leikur Brusselmanna hefur eflt bar-
áttuanda meðal úrsagnarsinna í
Bretlandi. Einn þeirra sagði í blaða-
grein: „Bara ef Marx-bræður væru
enn á lífi og gætu gert klassíska
gamanmynd um Evrópusambandið
þar sem Juncker léki sjálfan sig.
Mikið erum við heppin að þessi aula-
lega ímynd, hrokafullu, eigingjörnu
ESB-elítunnar kemur ekki til með
að hafa neitt að gera með framtíð-
arhorfur okkar eigin, kæra lands.“
Telji Brusselmenn að þeir styrki
stöðu ESB með því að sýna Bretum
þvermóðsku eru það rang-
hugmyndir. Samhliða því sem þeir
efla andstöðu við sig meðal Breta
grafa þeir undan stuðningi við mið-
stjórnarvaldið í Brussel innan allra
ESB-ríkjanna. May vill ná fram
þjóðarvilja Breta. Að traðka á hon-
um verður Brusselmönnum hvergi
til framdráttar.
Ráðið til Theresu May frá Yanis
Varoufakis er einfalt: Bretar sæki
tafarlaust um aðild að evrópska
efnahagssvæðinu með ósk um að fá
þar sjö ára umþóttunartíma. „Þeir
gætu ekki neitað þessu. Þeir hefðu
ekkert til að standa á,“ segir hann
um Brusselmenn.
Undir þessa hvatningu skal tekið.
Hún er skynsamlegasta leið Breta í
stöðunni.
Eftir Björn
Bjarnason » Lekinn sýnir að
ESB-menn beita öll-
um ráðum gegn
Theresu May. Af henni
er dregin sú mynd að
hún viti ekki sitt rjúk-
andi ráð.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Brusselmenn sýna Bretum yfirgang