Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 34

Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Ég sit hérna með sveittan skallann en ég er að fara í próf ímeistaranámi í lögfræði 6. maí,“ sagði Rebekka Rán Samperþegar blaðamaður ræddi við hana í gær, en hún á 50 ára af- mæli í dag. „Ég hef verið að undirbúa garðinn fyrir garðveislu og hvað er betra tilefni en fimmtugsafmæli, en þegar maður er í svona námi þá verður það að ganga fyrir afmælisdeginum. Ég ætla því að fresta veisluhöld- um fram í góðviðrisjúní og án þess að lofa neinu þá stefni ég á að halda garðveisluna þá.“ Rebekka lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands í fyrravor og er nú á fyrra ári sínu í meistaranáminu. Hún starfar sem lögfræð- ingur hjá Útlendingastofnun en hún hóf störf þar í október síðast- liðnum. Hún er líka á fullu í myndlistinni og leigir 50 fermetra stúdíó í Garðabæ. „Ég hygg á frekari afrek á því sviði fljótlega og sé sumarið í hillingum og ætla að eyða því að mestu í stúdíóinu.“ Sjálf býr Rebekka í Kópavogi ásamt manni sínum, Geir Þorsteinssyni, fyrrverandi for- manni KSÍ, en þau eiga tvö börn, Ellen, f. 1997, og Baltasar Darra, f. 2000. „Svo var ég að auka við hundaforðann, á 12 ára labrador-tík en hún er komin á ellilífeyri og er að njóta ævikvöldsins og til að létta henni lundina fékk ég mér tvo whippet-hunda sem eru fyndnustu hundar í heimi. Önnur er átta mánaða og hin tíu vikna og því í nógu að snúast á heimilinu og þær taka aðeins athyglina frá lestrinum, ég verð að viðurkenna það.“ Fríður flokkur Rebekka með hundunum sínum. Á fullu í próflestri Rebekka Rán Samper er fimmtug í dag K arl Steinar Óskarsson fæddist á Aðalgötu 20 á Suðureyri við Súg- andafjörð 5. maí 1967 og bjó á Suðureyri að mestu leyti til ársins 1990. Karl Steinar gekk í Grunnskól- ann á Suðureyri, en lauk grunn- skólanámi við Héraðsskólann í Reykholti. Karl lauk raungreina- deildarprófi í Tækniskóla Íslands 1992 og BSc-gráðu í eldisfræðum frá Háskólanum í Sogndal í Noregi árið 1998. Karl Steinar starfaði að mestu leyti við fiskvinnslu og sjómennsku til ársins 1994. Eftir nám í Noregi var hann framkvæmdastjóri Sam- skipta, en hóf störf sem sölu- og markaðsstjóri kjötvinnslunnar Goða, sem rann inn í Norðlenska, árin 2000 til 2004. Karl Steinar starfaði sem sölustjóri nýrra bíla hjá Ingvari Helgasyni árin 2004 til 2009, en þá hóf hann störf sem út- gáfustjóri Birtíngs ehf. „Ég fór sem sagt úr kjötinu í bílana og úr bílunum í fjölmiðlana. Ég hef alltaf verið í sölumálum og rekstri og það skiptir ekki öllu máli hvaða rekstur það er.“ Árið 2012 gerist Karl Steinar svo framkvæmdastjóri Birtíngs og 2014 eignast hann hlut í Birtíngi sem síðan er seldur til Pressunnar ehf. í febrúar 2017. Frá apríl 2017 er Karl Steinar framkvæmdastjóri samstæðu Pressunnar ehf. „Undir því eru Pressan, Eyjan, ÍNN og landsmálablöðin. Nú er ég að skoða reksturinn á þessu öllu saman, en það eru aðeins tvær vikur síðan Karl Steinar Óskarsson framkvæmdastjóri – 50 ára Framkvæmdastjórinn Karl Steinar stýrir samstæðu Pressunnar en undir hana heyra m.a. netfjölmiðlarnir Eyjan og Pressan, tímaritin Vikan, Gestgjafinn og Hús og híbýli, sjónvarpsstöðin ÍNN og ýmis landsmálablöð. Súgfirðingur með veiði- mennskuna í blóðinu Yngri börnin Arney og Hrafney. Kópavogur Haraldur Bragi Ívarsson fæddist 25. mars 2017 kl. 21.08. Hann vó 3.885 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Lára Björk Bragadóttir og Ívar Örn Haraldsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.