Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 35
skrifað undir samninginn svo þetta
er allt í mótun.“
Byrjaði ungur á grásleppu
„Á uppvaxtarárum mínum á
Suðureyri stundaði ég grásleppu-
veiðar með afa mínum frá því að ég
man eftir mér. En var sendur í
sveit til frænda míns, Magnúsar
Halldórssonar að Brekku í Fljóts-
hlíð tvö sumur 13 og 14 ára gamall.
Ég fór fyrst á sjó á Sigurvon ÍS frá
Suðureyri 15 ára gamall sem full-
gildur háseti á grálúðuveiðum á
línu við Kolbeinsey. Sjómennskuna
stundaði ég svo með hléum til árs-
ins 1994. Inni á milli vann ég hin
ýmsu störf eins og aðstoðarmaður
símsmiðs, lögregluþjónn, kennari,
verkstjóri og ökumaður snjóbíls
svo eitthvað sé nefnt.
Ég var mjög virkur félagsmaður
í björgunarsveitinni Björg á Suður-
eyri í mörg ár. Annars gefst lítill
tími nú til dags fyrir félagsstörf.
Nema þá það sem tengist yngstu
börnunum.
Áhugamál mitt númer eitt eru
veiðar og stunda ég þær af kappi
þegar tími gefst. Veiðifélögin sem
ég er í heita Hólkar og Lúpínur og
eru Hólkar eingöngu í skotveiði, en
Lúpínurnar stunda stangveiði.
Líkamsrækt hef ég stundað
nokkuð samviskusamlega frá því
1999 og tók m.a. þátt í að gera sjón-
varpsþætti 2005 sem heita Í fínu
formi á vegum Hreyfingar. Mikil
og góð uppspretta fyrir vini mína
til þess að gera grín að mér, en
hvað gerir maður ekki fyrir vini
sína?“
Fjölskylda
Börn Karls Steinars með fyrri
eiginkonu sinni, Dagbjörtu Ás-
geirsdóttur, f. 29.9. 1970, rithöfundi
á Dalvík: 1) Lovísa Kristín, f. 3.3.
1992, leiðbeinandi á leikskóla, bús. í
Reykjavík. Dóttir hennar er Emma
Lilja, f. 9.5. 2012; 2) Guðjón Óskar,
f. 20.7. 1997, nemi í Reykjavík.
Dætur Karls með seinni eiginkonu
sinni, Heiðu Björk Egilsdóttur, f.
7.2. 1977, kennara, bús. í Kópavogi:
3) Hrafney Rós, f. 16.7. 2006, og 4)
Arney Lilja, f. 19.8. 2008.
Systkini Karls Steinars: Egill
Ibsen Óskarsson (albróðir), f. 2.4.
1966, flugstjóri, bús. í Reykjavík;
Díana Ósk Óskarsdóttir (hálfsystir
samfeðra), f. 20.11. 1970, guðfræð-
ingur í Reykjavík; Kjartan Rafn
Bjarnason (hálfbróðir sammæðra).
f. 2.2. 1972, iðnaðarmaður í Reykja-
vík; Kristjana Elínborg Óskars-
dóttir (hálfsystir samfeðra), f. 24.7.
1973, myndlistarkona í Kópavogi;
Lúðvík Bjarnason (hálfbróðir sam-
mæðra) 2. október 1980, tölvunar-
fræðingur í Reykjavík; Kristján
Hans Óskarsson (hálfbróðir sam-
feðra), f. 11.10. 1980, deildarstjóri í
Hafnarfirði; Markús Már Óskars-
son (hálfbróðir samfeðra), f. 7.2.
1985, kvikmyndagerðarmaður í
Atlanta, Bandaríkjunum.
Móðir Karls Steinars: Guðrún
Sigríður Egilsdóttir, f. 25.6. 1948,
jógakennari. Bjó lengst af á Suður-
eyri. Er gift Ingólfi Arnari Stein-
dórssyni og býr í Kópavogi. Faðir
Karls Steinars: Ármann Óskar
Karlsson, f. 9.2. 1943, d. 7.8. 1992,
verkstjóri í Hafnarfirði. Fóst-
urfaðir Karls Steinars: Bjarni Dýr-
fjörð Kjartansson, f. 3.8. 1948, skip-
stjóri á Ísafirði.
Úr frændgarði Karls Steinars Óskarssonar
Karl Steinar
Óskarsson
Katrín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Þykkvabæ
Markús Sveinsson
bóndi í Þykkvabæ
Ólöf Markúsdóttir
verkakona í Reykjavík
Karl Þorsteinsson
bakari í Reykjavík
Ármann Óskar Karlsson
verkstjóri í Hafnarfirði
Guðrún Vigfúsdóttir
bústýra á Vesturgötu 46
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi á Vesturgötu 46, Rvík
Sigurður
Karlsson
hestamaður
á Hellu
Hafliði Kristinsson
fjölskylduráðgjafi í Rvík og
fv. prestur í Hvítasunnu-
kirkjunni Fíladelfíu
Kristinn Markússon
bóndi í Dísukoti í Þykkvabæ
Guðmundur Ingi
Kristjánsson
ljóðskáld
Halldór
Kristjánsson
alþingismaður
Bessabe
Halldórsdóttir
húsfr. á
Kirkjubóli í
Bjarnardal,
Önundarfirði
Helgi Ingólfur Ibsen
framkvstj. Akraborgarinnar og aflaskipstjóri
Halldór Björn Ibsen
útgerðarmaður í Keflavík o.fl
Árni Ibsen
leikskáld
Þorgeir Ibsen
skólastj. Barnaskóla Hafnarfjarðar og skáld
Rebekka Kristín Guðnadóttir
húsfreyja á Suðureyri
Guðjón Halldórsson
járn- og vélsmiður á Suðureyri
Egill Guðjónsson
vélstjóri á Suðureyri
Lovísa Ibsen
sjúkraliði á Suðureyri
Guðrún Sigríður
Egilsdóttir
jógakennari í Kópavogi
Lovísa Rannveig Kristjánsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Ibsen Guðmundsson
útvegsbóndi á Suðureyri
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
Jón Þorkelsson fæddist í Innri-Njarðvík 1697, einkasonur Þor-kels Jónssonar, bónda og lög-
réttumanns þar, f. 1658, d. 1707, og
konu hans, Ljótunnar Sigurðar-
dóttur, f. 1668, d. 1.1. 1739. Jón, sem
nefndi sig Thorcillius, var helsti
menntafrömuður Íslendinga á sínum
tíma og líklega fyrsti boðberi upplýs-
ingarstefnunnar á Íslandi.
Jón nam við Skálholtsskóla og fór
síðan í Kaupmannahafnarháskóla.
Jón varð skólameistari í Skálholti
1728. Hann þótti strangur kennari en
var vel að sér og mjög áhugasamur
um bætta menntun. Hann lagði með-
al annars til að settur yrði á stofn sér-
stakur prestaskóli, sagði af sér skóla-
meistaraembættinu og hélt til
Kaupmannahafnar til að reyna að fá
stjórnvöld til að gera umbætur í
menntamálum Íslendinga. Honum
varð á endanum ágengt með erindi
sitt og varð úr að Jón og danski prest-
urinn Ludvig Harboe voru sendir til
Íslands til að kanna fræðslumál og
menntunarástand þjóðarinnar og
gera tillögur um úrbætur.
Jón og Harboe ferðuðust um allt
landið og könnuðu m.a. lestrarkunn-
áttu og menntun barna, athuguðu
kunnáttu presta, bókaeign og margt
fleira. Þeir luku störfum sínum sum-
arið 1745 og héldu þá til Danmerkur
og settu fram margar tillögur um úr-
bætur. Sumar þeirra komust fljótt í
framkvæmd, aðrar ekki.
Jón settist að í Kaupmannahöfn og
bjó þar til æviloka 1759. Hann var vel
stæður en var ókvæntur og barnlaus
og átti enga nána ættingja á lífi.
Skömmu fyrir andlát sitt gerði hann
erfðaskrá þar sem kveðið var á um að
allar eigur hans skyldu renna til
stofnunar skóla þar sem fátækustu
börn í Kjalarnesþingi hlytu kristilegt
uppeldi með húsnæði, klæðum og
fæði uns þau gætu unnið fyrir sér
sjálf. Ekki varð af því strax en stofn-
aður var sjóður, Thorcilli-sjóðurinn
(eða Thorkelli-sjóðurinn), og árið
1792 var loks reistur barnaskóli á
Hausastöðum á Álftanesi á kostnað
sjóðsins og var það annar barnaskól-
inn á Íslandi. Allt fram á 20. öld fengu
börn við barnaskóla Reykjavíkur
styrk úr Thorkellisjóðnum til náms.
Minnisvarði um Jón, gerður af Rík-
arði Jónssyni myndhöggvara, var
reistur í Innri-Njarðvík 1965.
Jón lést 5.5. 1759.
Merkir Íslendingar
Jón Þorkelsson Thorcillius
Minnismerkið um Jón Þorkelsson.
90 ára
Svanhildur Á. Sigurjónsd.
85 ára
Helga Árnadóttir
80 ára
Ingibjörg Árnadóttir
Sigurbjörg E. Vilhjálmsd.
75 ára
Guðrún Þórarinsdóttir
Ívar Sigmundsson
Jón Oddur Sigurjónsson
Jósefína Friðriksdóttir
Þuríður Gísladóttir
70 ára
Bóthildur Steinþórsdóttir
Elísabet Bjarnadóttir
Finnur Bjarnason
Helga Ágústsdóttir
Jónína Sigríður Lárusdóttir
Kristbjörn Guðlaugsson
Margrét Böðvarsdóttir
Sigursteinn H. Ellertsson
Skúli Gestsson
Stefanía Lóa Jónsdóttir
60 ára
Aðalsteinn Sigurðsson
Bryndís Guðjónsdóttir
Cresencia Villarin
Danuta Wasiewicz
Eygló Breiðfjörð Einarsd.
Guðm. Þór Guðbrandsson
Guðvarður B. Halldórsson
Helga Hreiðarsdóttir
Ingibjörg Þuríður Aradóttir
Kristín Hanna Bjarnadóttir
Ólafur Ólafsson
Ólína Arnkelsdóttir
Þórdís Gunnarsdóttir
50 ára
Clemens G. M. Van de Zwet
Elín Brynja Harðardóttir
Guðrún S. Guðmundsdóttir
Haukur Jens Birgisson
Iðunn Bragadóttir
Ingibjörg Hr. Þorvarðardótti
Ingibjörg Nancy Georgsd.
Karl Steinar Óskarsson
Linda Bára Lýðsdóttir
Matthías Ágústsson
Mayo Gernade Divinagracia
Rebekka Rán Samper
Rita Kybartaite
Sigríður Sólveig Ólafsdóttir
Sigurður U. Sigmundsson
Védís Guðjónsdóttir
Þröstur V. Þorsteinsson
40 ára
Arkadiusz Piotr Zarzycki
Arndís Mogensen
Árni Sigurðsson
Ásthildur Kristín Júlíusd.
Berglind Lovísa Sveinsd.
Brynjar Freyr Jónsson
Freyr Brynjarsson
Gunnar Karl Ársælsson
Hamid Hadoudi
Helga Ósk Lúðvíksdóttir
Héðinn Óli Sæunnarson
Ólafur Sveinn Traustason
Przemyslaw W. Barcikowski
Ragnar Guðm. Jónasson
Vittorio Arash Herman
30 ára
Andri Már W. Hákonarson
Birna Blöndal Sveinsdóttir
Ewelina Górka
Freysteinn Oddsson
Halla María Þorsteinsdóttir
Harpa Rut Hallgrímsdóttir
Hrannar Steinn Gunnarss.
Jón Hjörtur Mortensen
Louise Stuehff
Margrét Elfa Ólafsdóttir
Rúnar Einarsson
Sunna Björg Bjarnadóttir
Viðar Guðmundsson
Til hamingju með daginn
40 ára Ásthildur er úr
Borgarnesi en býr á Akur-
eyri og vinnur í bókhaldi
hjá Akureyrarbæ.
Maki: Ólafur Gíslason, f.
1974, húsasmiður hjá ÁK
smíði.
Börn: Eyþór Páll, f. 2011,
og Gísli Örn, f. 2013.
Foreldrar: Júlíus Jóns-
son, f. 1949, vöruflutn-
ingabílstjóri í Borgarn., og
Brynhildur Ríkey Eiríks-
dóttir, f. 1948, d. 2013,
verkakona í Borgarnesi.
Ásthildur Krist-
ín Júlíusdóttir
40 ára Ólafur er Hafn-
firðingur, býr á Akureyri
og er sölumaður hjá
heildsölunni Reykjafelli.
Maki: Eydís Eyþórsdóttir,
f. 1977, leikskólakennari á
Pálmholti.
Börn: Eyþór Ingi, f. 2011,
og Ingvar Óli, f. 2015.
Foreldrar: Trausti Svein-
björnsson, f. 1946, raf-
magnstæknifræðingur í
Garðabæ, og Ingveldur
Einarsdóttir, f. 1950, d.
2012, húsm. í Hafnarf.
Ólafur Sveinn
Traustason
40 ára Gunnar er Álft-
nesingur og er bifvélavirki
hjá Aðalskoðun.
Maki: Sigurlaug Sverris-
dóttir, f. 1977, lyfjatæknir
og sér um innkaup hjá
Actavis.
Börn: Arnar Kári, f. 1997,
og Sólveig Anna, f. 1998.
Foreldrar: Ársæll Karl
Gunnarsson, f. 1953, d.
2008, bifvélavirki, og
Anna Hafsteinsdóttir, f.
1958, d. 2006, húsmóðir
á Álftanesi.
Gunnar Karl
Ársælsson