Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 Bindi og pökkunarlausnir Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna fyrir allan iðnað STÁLBORÐA Ísfell er með margar gerðir bindivéla fyrir stál- og plastborða. Handbindivélar, hálfsjálvirkar og alsjálfvirkar einnig brettavafningsvélar fyrir plastfilmur. HÁLFSJÁLFVIRK BINDIVÉL SJÁLFVIRK BINDIVÉL R HANDBINDIVÉLAR BRETTAVAFNINGSVÉLAR POLYESTER OG PLAST BORÐAR Guðrún Erlingsdóttir gue332@hi.is Kjartan Mogensen lands-lagsarkitekt er súrefnis-þegi. Hann var í fullustarfi þegar hann greind- ist með lungnaþembu fyrir fimm ár- um. „Það þýddi ekkert að vera í af- neitun lengur. Ég var með lungna- þembu og þurfti á súrefni að halda. Ég gat ekki lengur reynt á mig eða gengið upp í móti og mengun og vindur fór illa í mig. Fyrir tveimur árum var ég í meðferð á Reykjalundi í sex vikur og var strax settur í súr- efni. Ég fékk þá súrefniskút sem ég þurfti að trilla á undan mér,“ segir Kjartan. Vítahringur Eftir sex vikur á Reykjalundi keypti Kjartan sér kort í líkams- ræktarsalinn og fer þangað allt að fjórum sinnum í viku til þess að halda sér við. Auk þess fer hann í sund- leikfimi tvisvar í viku. „Þar get ég tengt mig við súrefni. Ég veit ekki til þess að það sé hægt í öðrum sund- laugum. Það er nauðsynlegt að hreyfa sig. Ég hreyfi mig töluvert. Ef þú situr á rassinum heima fer af stað vítahringur. Vöðvarnir slappast og rýrna og súrefnið nýtist verr. Ef þú hins vegar hreyfir þig styrkjast vöðv- arnir og nýta betur súrefnið. Þetta er spurning um að velja sér jákvæða hringrás eða neikvæða. Það er sorg- legt þegar fólk situr heima og vill ekki láta sjá sig með súrefniskút meðal fólks.“ Breytingin var mikil þegar Kjartan fékk ferðasíu. Hana fékk hann hjá Sjúkratryggingum Íslands þegar hann fór til útlanda. Kjartan átti að skila síunni að ferðalaginu loknu en hann lét strax í það skína að það myndi hann ekki gera. „Ég var með súrefniskút í sex Hægt að auka lífs- gæði súrefnisþega Staða súrefnisþega á Íslandi er umræðuefni málþings Fagdeildar hjúkrunarfræð- inga í samvinnu við Félag íslenskra lungnalækna og Samtaka lungnasjúklinga sem fagna 20 ára afmæli á árinu. Ráðstefnan verður á Grand hótel í dag, mið- vikudag. Súrefnisþegar á Íslandi eru yfir fimm hundruð. Betri hjálpartæki og létt- ari búnaður auka lífsgæði súrefnisþega en fjármagn skortir til tækjakaupa. Ferðasía Hún rýfur einangrun súrefnisþega og gerir þeim kleift að ferðast. Stærðarmunur Gamli súrefniskúturinn og nýja ferðasían hlið við hlið. Tilvera, samtök um ófrjósemi, stend- ur fyrir vitundarvakningu um ófrjó- semi í þessari viku sem nefnist 1 af 6 en áætlað er að einn af hverjum sex glími við sjúkdóminn hverju sinni. Talið er að 1⁄3 skýringarinnar sé að finna hjá körlum, 1⁄3 hjá konum og 1⁄3 er óútskýrð ófrjósemi. Markmiðið vitundarvakningarinnar er að vekja athygli á ófrjósemi og þeim sorgum og sigrum sem fólk gengur í gegnum þegar það þarf að nýta sér aðstoð tækninnar til að eign- ast barn og nauðsyn þess að allir hafi jafnan aðgang að meðferðum. Í tengslum við vitundarvakninguna hefur kvikmyndafyrirtækið Bergsól ehf. framleitt sex myndbönd sem nefnast 1 af 6 en þar segir fólk frá glímunni við sjúkdóminn. Mynd- böndin verða sýnd á RÚV alla þessa viku eða til föstudagins 19. maí. Fundur og gjörningur Kl. 09.30 í dag, miðvikudag 17. maí, fundar stjórn Tilveru með heil- brigðisráðherra í heilbrigðisráðu- neytinu, þar sem m.a. verður vakin athygli á því að Ísland er eina landið í heiminum sem tekur þátt í niður- greiðslu á frjósemismeðferðum en fyrsta meðferðin er hinsvegar ekki styrkt. Helsta baráttumál Tilveru er að þessu verði breytt og hafið verði að nýju að niðurgreiða fyrstu glasa-/ smásjárfrjóvgunina. Tilvera stendur einnig fyrir gjörn- ingi í dag kl. 18 til að vekja athygli á málefninu, en þá mun fólk ganga með tóma barnavagna í kringum Reykja- víkurtjörn. Tómur barnavagn táknar þann sársauka sem fólk sem glímir við ófrjósemi ber oft innra með sér. Lyklakippa til stuðnings málefninu Til að vekja athygli á málstaðnum hefur Tilvera fengið til liðs við sig Hlín Reykdal skartgripahönnuð til að hanna lyklakippu sem táknar 1 af 6. Ágóði sölunnar fer í að styrkja félags- menn sem eiga ekki rétt á niður- greiddri meðferð frá Sjúkratrygg- ingum Íslands. Um 15-20% para á barneignaraldri eiga við ófrjósemi að stríða og veru- leikinn sem við þeim blasir er oft þrautaganga vonar og vonbrigða. Auk þess fer fæðingartíðni lækkandi en árið 2016 voru lifandi fædd börn á hverja konu 1,745. Gera má ráð fyrir að um 150 börn fæðist á hverju ári eftir glasa-/smásjármeðferðir og eru þar börn fædd eftir tæknisæðingar eða önnur inngrip ekki meðtalin. Vefsíðan www.tilvera.is Átakið Fjöldi fólks tekur þátt í átaki Tilveru, samtaka um ófrjósemi. Um 15-20 % para á barneignar- aldri eiga við ófrjósemi að stríða Rithöfundarnir Ewa Marcinek (Pól- land/Ísland), Elías Knörr (Galisía/ Ísland), Mazen Maarouf (Líbanon/ Ísland) og Roxana Crisologo (Perú/ Finnland) koma saman kl. 17 í dag, miðvikudag 17. maí, í Kaffislipp á Hotel Reykjavík Marina þar sem þau munu lesa úr verkum sínum og spjalla við gesti. Öll eiga þau það sameiginlegt að skrifa á öðru máli en því sem er ríkjandi í landinu sem þau búa í, eða á fleiri málum en einu. Dagskráin er skipulögð af Reykja- vík Bókmenntaborg UNESCO og No- litchX-verkefninu (Nordic Literatures in Change and Exchange), sem miðar að því að vekja athygli á og skapa umræðu um bókmenntir innflytjenda á Norðurlöndum. Allir velkomnir. Kl. 17-18 á morgun, fimmtudaginn 18. maí, taka rithöfundarnir fjórir síð- an þátt í pallborðsumræðum í Borg- arbókasafninu Grófinni um stöðu innflytjendabókmennta á Norður- löndum og sína persónulegu reynslu. Petronella Zetterlund frá NolitchX- samtökunum stýrir umræðunum sem fara fram á ensku. Staða innflytjendabókmennta á Norðurlöndum Fjórir rithöfundar lesa úr verk- um sínum og spjalla við gesti Upplesarar F.v. Roxana Crisologo, ljóðskáld og aktívisti, Elías Knörr, rithöfund- ur, þýðandi og málvísindamaður, Ewa Marcinek rithöfundur og Mazen Maarouf, rithöfundur, þýðandi og gagnrýnandi. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.