Morgunblaðið - 17.05.2017, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Ef við fáum að vinna í friði þá
spjörum við okkur,“ sagði Ólafur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Ramma hf. í Fjallabyggð, í gær, en á
laugardag verður formlega tekið á
móti nýjum og
fullkomnum
frystitogara fyr-
irtækisins, Sól-
bergi ÓF 1. Skip-
ið var smíðað í
Tyrklandi og
nemur fjárfest-
ingin um fimm
milljörðum
króna. „Það eru
viss tímamót
fólgin í komu
þessa glæsilega skips og við höfum
miklar væntingar fyrir fyrirtækið,
áhöfnina og samfélagið hérna,“
sagði Ólafur.
Sjálfvirkni, bættur aðbúnaður
og aukin verðmætasköpun
Í brú og vélarrúmi er skipið búið
fullkomnum tæknibúnaði og í
vinnslunni leysir sjálfvirkni manns-
höndina af á mörgum sviðum. Bætt-
ur aðbúnaður um borð í löngum túr-
um og aukin verðmætasköpun eru
meðal lykilatriða sem nást með nýja
skipinu.
„Það er mikil sjálfvirkni um
borð,“ segir Ólafur. „Bitaskurðar-
eða vatnsskurðarvél frá Völku getur
skorið flökin í bita og síðan er fisk-
urinn blokkfrystur eða lausfrystur
eftir þörfum í sjálfvirkum frystum.
Róbótar í svokölluðu vöruhóteli taka
síðan við vörunni og senda á brett-
um niður í frystilest. Á þessari leið
hefur erfiðum og vondum störfum
verið útrýmt með tölvu- og róbóta-
væðingu. Úrsláttur úr pönnum, all-
ur kassaburður og fleira slíkt heyrir
nú fortíðinni til.
Fiskurinn fullnýttur
til hagsbóta fyrir alla
Próteinverksmiðja frá Héðni er
um borð í Sólberginu og er þetta
fyrsta verksmiðjan frá fyrirtækinu
sem er sett upp í frystiskip eins og
Sólbergið en hún hefur verið í þróun
síðustu ár. Það sem ekki fer í fryst-
ingu er unnið í prótein eða mjöl og
lýsi og markmiðið er að fullnýta
fiskinn til aukinna hagsbóta fyrir
alla.
Auk þess sem vinnslumöguleik-
arnir um borð verða mun fjölbreytt-
ari heldur en í gömlu flakafrystitog-
urunum verður nýja skipið miklu
afkastameira. Frystigetan er um 90
tonn af fiski á sólarhring og það er
eins og stærstu frystihús fyrir bol-
fisk.
Nýtir aflaheimildir beggja
gömlu frystiskipanna
Við miðum við að aflaheimildir
eldri skipanna beggja náist á nýja
skipið og reiknum með að þessi nýi
búnaður sem í því er gefi okkur
möguleika til þess að auka verðmæt-
ið um allt að fimmtung, jafnvel fjórð-
ung frá því sem hefðbundið er,“ seg-
ir Ólafur.
Sólbergið leysir tvö eldri frysti-
skip af hólmi, Mánabergið hefur ver-
ið selt til Rússlands og Sigurbjörg
ÓF verður gerð út fram að sjó-
mannadegi 11. júní, en fer þá í form-
legt söluferli. Á síðasta fiskveiðiári
veiddi Mánabergið 7.536 tonn og
Sigurbjörg veiddi 5.700 tonn eða
samtals 13.236 tonn af bolfiski.
Langmest af heimildum Ramma er í
þorski, en einnig talsverðar heimild-
ir í karfa, grálúðu, ýsu, ufsa og mak-
ríl. Rúmlega 20% af þorskaflaheim-
ildum Ramma eru í Barentshafi.
Ólafur segir að gömlu skipin sem
nú hverfa úr flotanum hafi „heldur
betur skilað sínu“ og verið mjög far-
sæl. Bæði eru þau komin til ára
sinna, Mánabergið er tæplega 45
ára, upphaflega smíðað á Spáni 1972
og bar áður nöfnin Merkúr og Bjarni
Benediktsson og Sigurbjörgin er 38
ára og var smíðuð á Akureyri. Óhætt
er að segja að mikil þróun hafi orðið í
útliti og búnaði skipa á síðustu fjór-
um áratugum.
Rammi starfrækir fiskiðjuver í
Þorlákshöfn og rækjuvinnslu á
Siglufirði. Auk Mánabergs og Sigur-
bjargar gerir fyrirtækið nú út ísfisk-
togarann Múlaberg SI, sem er ýmist
á rækju eða bolfiski, og Jón á Hofi
ÁR og Fróða ÁR, sem eru ýmist á
humartrolli eða fiskitrolli.
Miklar væntingar vegna Sólbergs
Frystiskipið Sólberg ÓF 1 til heimahafnar í Fjallabyggð fyrir helgi Um fimm milljarða fjárfesting
Spjörum okkur ef við fáum að vinna í friði, segir Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma
Ljósmynd/Tersan skipasmíðastöðin
Sólberg ÓF 1 Skipið hélt heimleiðis frá skipasmíðastöðinni í Tyrklandi fyrir tveimur vikum. Reiknað er með að skipið haldi til veiða fyrir mánaðamót.
Ólafur
Marteinsson
Í áhöfn á nýja skipinu verða 34
manns hverju sinni, en tvær
áhafnir verða á skipinu og verð-
ur einn túr á sjó á móti einum í
landi. Skipverjar á Mánabergi
og Sigurbjörgu fá flestir pláss á
nýja skipinu. Skipstjórar verða
Sigþór Kjartansson og Trausti
Kristinsson og yfirvélstjórar
Þórður Þórðarson og Haukur
Magnússon.
Í gær sigldi Sólbergið upp
með vesturströnd Írlands, en
skipið hafði í fyrradag viðkomu í
Cork. Þar var tekin olía, en skip-
verjar notuðu tækifærið og
keyptu einnig nýjan fisk í mat-
inn þar sem þeir voru orðnir
leiðir á að fá nautakjöt í flest
mál!
Skipið kemur líklega til lands-
ins á föstudag en móttöku-
athöfn verður á Siglufirði fyrir
bæjarbúa og gesti klukkan
13.30 á laugardag. Þar mun Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir,
sjávarútvegsráðherra, meðal
annars flytja ávarp.
Sólbergið er tæpir 80 metrar
að lengd, 15,4 metrar á breidd
og 3.720 brúttótonna frystitog-
ari. Það er hannað af fyrirtæk-
inu Skipsteknisk í Noregi og
smíðað í Tersan-skipasmíða-
stöðinni í Tyrklandi. Rými verð-
ur fyrir allt að 1.200 tonn af af-
urðum á brettum í 1.900
rúmmetra frystilest.
Móttaka á
laugardag
á Siglufirði
KEYPTU OLÍU OG FISK
Í CORK Á ÍRLANDI
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2016 63
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
EITT ER VÍST: ALNO