Morgunblaðið - 17.05.2017, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Enn snjallara
heyrnartæki
Beltone Legend
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Nýr hvalaskoðunarbátur í eigu
hvalaskoðunarfyrirtækisins Am-
bassador kom til hafnar á Akureyri
seint í fyrrakvöld. „Við vorum rétt
tæpa tvo sólarhringa á 910 sjómílna
leið okkar frá Bergen í Noregi sem
verður að teljast býsna gott,“ sagði
Magnús Guðjónsson, skipstjóri og
einn eigenda fyrirtækisins.
Magnús á von á að báturinn, sem
ber nafnið Konsúll, verði tekinn í
notkun á næstu tveimur vikum en
þetta er fjórði báturinn sem sinnir
hvalaskoðun hjá Ambassador.
Báturinn tekur um 70 manns í
sæti. Hann er töluvert minni en aðr-
ir hvalaskoðunarbátar fyrirtækis-
ins, sem taka á bilinu 100-150
manns í sæti. Ganghraði bátsins er
um 25 mílur í góðu veðri og er hann
sérútbúinn til farþegaflutninga.
Mikill vöxtur er í hvalaskoðunar-
ferðum og fara tugþúsundir ferða-
manna í bátsferðir á hverju ári á
vegum Ambassador.
aronthordur@mbl.is
Fá fjórða
bátinn í
hvalaskoðun
Vaxandi áhugi
á hvalaskoðun
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Hvalaskoðun Nýi báturinn Konsúll
við komu til Akureyrar í vikunni.
Sjómannadagurinn í ár verður
haldinn viku seinna en venjulega,
eða sunnudaginn 11. júní næstkom-
andi.
Sjómannadaginn skal halda
fyrsta sunnudaginn í júní ár hvert,
nema ef hvítasunnu ber upp á þann
dag, þá næsta sunnudag þar á eftir.
Þannig háttar einmitt til í ár því
hvítasunnudag ber upp á 4. júní.
Undirbúningur fyrir hátíðahöld
dagsins eru hafin um land allt. Há-
tíð hafsins, fjölmennasta hátíðin,
verður að venju haldin við Reykja-
víkurhöfn um sjómannadagshelg-
ina. Hún verður óvenju vegleg í ár
því þess verður minnst að 100 ár
eru liðin frá því hafnargerðinni
miklu lauk. Höfnin var byggð á ár-
unum 1913 til 1917.
Elsti hluti hennar, Ingólfsgarður,
var reistur frá 1913 til 1915 og lok-
ið var við gerð Örfiriseyjargarðs
1917. Það er einmitt á Grandanum
þar sem aðalhátíðahöldin fara fram
hverju sinni.
Sjómannadagurinn er hátíðis-
dagur allra sjómanna. Dagurinn
var fyrst haldinn hátíðlegur þann 6.
júní árið 1938 í Reykjavík og á Ísa-
firði. Í alfræðiriti Netsins segir að
frá upphafi 20. aldar tíðkaðist að
halda sérstakar sjómannamessur í
kirkjum áður en þilskipin héldu til
veiða eftir vetrarlægi, sem var yfir-
leitt 3. eða 4. sunnudag eftir þrett-
ánda.
Árið 1987 var dagurinn lögskip-
aður frídagur sjómanna. Sam-
kvæmt lögunum eiga öll fiskiskip
að vera í höfn þennan dag.
sisi@mbl.is
Viku seinna en venjulega
Morgunblaðið/Golli
Hátíð hafsins Mikill mannfjöldi sækir jafnan viðburði sjómannadagsins.
Sjómannadagurinn frestast vegna Hvítasunnunar
Lögreglan á Suð-
urnesjum hand-
tók um síðast-
liðna helgi
nokkra ökumenn
í umdæminu
vegna gruns um
að þeir ækju und-
ir áhrifum áfeng-
is og/eða fíkni-
efna. Tveir þeirra
voru sviptir öku-
réttindum á staðnum en sá þriðji
hafði aldrei öðlast slík réttindi.
Fíkniefni fundust sömuleiðis í fórum
eins þeirra þriggja sem handteknir
voru. Einn ökumannanna, sem
handtekinn var vegna gruns um ölv-
unarakstur, var aðeins 17 ára gamall
og var því brot hans tilkynnt til
barnaverndarnefndar.
Þá slasaðist karlmaður þegar
hann féll af reiðhjóli á Krísuvíkur-
vegi með þeim afleiðingum að hann
rotaðist og var hann fluttur á Land-
spítalann til aðhlynningar en meiðsl
hans voru ekki talin alvarleg.
Tveir undir
áhrifum og sá
þriðji próflaus
Lögreglan Mikið
um ölvunarakstur.