Morgunblaðið - 17.05.2017, Síða 16

Morgunblaðið - 17.05.2017, Síða 16
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is „Kaupmáttaraukning og lífskjara- bati síðustu ára og áratuga hefur náð til flestra landsmanna, en sér- staka athygli vekur að ungt fólk hefur setið eftir,“ segir Konráð Guðjónsson, sérfræðingur hjá Greiningardeild Arion banka, í sam- tali við Morgunblaðið. Bankinn sendi í vikunni frá sér greiningu á málinu í Markaðspunktum undir yf- irskriftinni „Hvert fór kaupmáttur- inn?“ „Ef maður skyggnist aðeins dýpra þá sér maður hvað húsnæð- iskostnaðurinn vegur sífellt þyngra hjá fólki, því hann hefur hækkað miklu meira en aðrir liðir í vísitölu neysluverðs. Hann vegur þar af leiðandi meira en hann gerði í byrj- un þessarar aldar. Þannig að hjá fólki þar sem húsnæðiskostnaður vegur hvað þyngst hefur kaupmátt- urinn aukist minna.“ Neyslukarfa námsmanns aukist 11% meira Í Markaðspunktunum er tekið dæmi til frekari útskýringar um annars vegar námsmann í leiguhús- næði og hins vegar miðaldra hjón í skuldlitlu húsnæði. „Námsmaðurinn eyðir líklega stórum hluta ráðstöf- unartekna sinna í leigu og við mið- um hér við 30%, á meðan hjónin borga enga leigu en verja 5% af tekjum sínum í afborgarnir af hús- næðisláni. Þá ver námsmaðurinn hlutfallslega meiri peningum í mat, en hjónin meiru í ferðalög, fatnað, veitingar o.fl. […] Miðað við ofan- greindar forsendur hefði neyslu- karfa námsmannsins hækkað um næstum 11% meira en neyslukarfa hjónanna frá aldamótum,“ segir í greiningu Arion banka. Konráð seg- ir að þetta sýni að sigurvegararnir í efnahagsþróun síðustu ára séu með- al annarra hjón á aldrinum 55-59 ára. Konráð bætir við að í rauninni verði það aldrei þannig að kaup- máttur allra aukist jafnt, en kaup- máttaraukningin hefur að vissu marki dreifst þvert yfir þjóðfélags- hópa. Hann segir að vegna hinnar miklu hækkunar húsnæðisliðarins, þá hafi vægi annarra liða í vísitöl- unni minnkað. „Það sem hefur hald- ist eða aukist auk húsnæðisliðarins eru póstur og sími. Fólk kaupir kannski dýrari síma og greiðir meira fyrir fjarskiptaþjónustu. Vægi áfengis og tóbaks hefur sömu- leiðis haldið sér, sem helgast af verðhækkunum á þeim vörum.“ Í dag þarf meiri menntun En er þetta vandamál? „Já, þetta er vandamál af þeirri einföldu ástæðu að þetta eru neytendur og fjárfestar framtíðarinnar, og ef þeim gengur illa að fóta sig, þá gæti verið að þeim gangi verr þegar fram í sækir, eða þau freisti gæf- unnar annars staðar,“ segir Konráð. „Þetta virðist vera partur af alþjóð- legri þróun og breyttri samfélags- gerð. Þú þarft í dag meiri menntun og meiri starfsreynslu til að komast í hærra borguð störf.“ Ungt fólk hefur setið eftir í kaupmáttaraukningunni Þróun » Vísitala kaupmáttar launa hefur hækkað um 34% á sjö árum og 42% frá aldamótum. » Frá 1997 virðist eignadreif- ingin almennt hafa orðið held- ur ójafnari, sem birtist í því að meðaltal eignaverðs hefur auk- ist meira en miðgildi. » Tekjujöfnuður virðist frekar hafa aukist ef eitthvað er enda er hann meiri en í öllum ríkjum OECD skv. nýjustu tölum.  Sigurvegarar efnahagsþróunar síðustu ára og áratuga eru 55-59 ára gamalt fólk Meðaltal eigna eftir hópum Milljónir króna á föstu verðlagi 60 50 40 30 20 10 0 1997 2007 2017 55–59 ára meðaltal 25–29 ára einstætt foreldri Morgunblaðið/Eggert Laun Kaupmáttur eykst ekki jafnt. 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk | Sími 551 5979 | lebistro.is Fiskur með frönskum og bjór alla miðvikudaga 2.990 kr. 17. maí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 103.01 103.51 103.26 Sterlingspund 133.17 133.81 133.49 Kanadadalur 75.57 76.01 75.79 Dönsk króna 15.174 15.262 15.218 Norsk króna 12.098 12.17 12.134 Sænsk króna 11.673 11.741 11.707 Svissn. franki 103.17 103.75 103.46 Japanskt jen 0.9072 0.9126 0.9099 SDR 141.05 141.89 141.47 Evra 112.9 113.54 113.22 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 143.2459 Hrávöruverð Gull 1234.05 ($/únsa) Ál 1899.0 ($/tonn) LME Hráolía 50.89 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● HS Orka hyggst undirbúa mögu- lega sölu á 30% hlut sínum í Bláa lóninu. Samkvæmt tilkynningu hefur HS Orka ákveðið að kanna sölu á eignarhlutnum í heild eða að hluta í kjölfarið á sýndum áhuga á hlutnum. Haft er eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku, að þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða þá falli starf- semi Bláa lónsins ekki að kjarna- starfsemi fyrirtækisins, sem er fram- leiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því hafi verið ákveðið að hefja þetta ferli. „HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess,“ segir Ásgeir. Stöplar Advisory mun ræða við hugs- anlega fjárfesta fyrir hönd HS Orku og stýra ferlinu. Kannar sölu þriðjungs- hlutar í Bláa lóninu Blá lónið Áhugi á 30% hlut HS Orku. STUTT Hagnaður Reita fasteignafélags nam 1.475 milljónum króna á fyrsta fjórð- ungi ársins, en hann var 919 millj- ónir á sama tímabili í fyrra. Leigu- tekjur námu liðlega 2,6 milljörðum króna og jukust um 17,6% frá árinu á undan. Rekstrarhagnaður fyrir mats- breytingu (NOI) var 1,8 milljarðar króna og jókst um 16,1% á milli ára. Matshækkun fjárfestingareigna nam 900 milljónum króna, en til sam- anburðar var hún 417 milljónir á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Leigutekjur námu 2,6 milljörðum króna og jukst um 17,6% milli ára. Stærsti hluti tekjuvaxtar er til kom- inn vegna breytinga í eignasafninu, segir í afkomutilkynningu til Kaup- hallar, en fjórðungurinn er sá síðasti þar sem eignir keyptar af sjóðum í rekstri Stefnis skýra stærstan hluta breytinga á milli ára. Nýtingarhlut- fall var 96,7%. Heildareignir Reita námu 135,5 milljörðum króna í lok mars. Eigið fé nam 46,6 milljörðum og var eigin- fjárhlutfall 34,4%. Hagnaður Reita 1,5 milljarðar Icelandair hefur gengið frá fjár- mögnun á fjórum Boeing 737 MAX flugvélum. Félag- ið hefur gert samning við BO- COMM Leasing, dótturfélag Bank of Communica- tions í Kína, um sölu og endur- leigu á einni vél til afhendingar á fyrsta ársfjórðungi 2018 og þremur á fyrsta ársfjórðungi 2019. Tvær vélanna eru Boeing 737 MAX8 og tvær Boeing 737 MAX9. Icelandair hefur jafnframt einhliða rétt á að bæta tveimur vélum við samn- ingana. Bogi Nils Bogason, framkvæmda- stjóri fjármála Icelandair Group, segir í tilkynningu til Kauphallar að ánægjulegt sé að fjármögnun 737 MAX vélanna gangi samkvæmt áætlun. „Vinna við fjármögnun ann- arra véla sem afhentar verða 2018 og 2019 stendur yfir og gengur vel.“ Icelandair semur um fjármögnun á flugvélum Icelandair Fjár- magna þotur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.