Morgunblaðið - 17.05.2017, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017
Aðalfundur Haga hf. 7. júní 2017
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinnmiðvikudaginn
7. júní 2017 og hefst hann kl. 09:00 áHilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður
fram til samÞykktar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2016/17.
4. Tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um kr. 91.831.651 að
nafnvirði með eftirfarandi viðbót við gr. 2.1 í samÞykktum félagsins:
„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um kr. 91.831.651
að nafnvirði. Forgangsréttur hluthafa skv. gr. 2.3 í samÞykktum félagsins
gildir ekki um hið nýja hlutafé. Stjórnin skal ráðstafa hlutafjárhækkuninni
til greiðslu fyrir hlutafé í Olíuverzlun Íslands hf. í samræmi við kaupsamning
Þar að lútandi á genginu 47,5 kr. á hlut. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi
í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Hlutafé félagsins eftir
hækkun verður kr. 1.263.333.841. Framangreind heimild stjórnar Haga
hf. rennur út á aðalfundi félagsins árið 2018 sem áætlaður er Þann 6. júní.
Heimild Þessi skal felld úr samÞykktum Þegar hún hefur verið nýtt.“
5. Ákvörðun um Þóknun til stjórnarmanna.
6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
8. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
9. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um
póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á
vefsíðu félagsins, http://www.hagar.is/hluthafaupplysingar/adalfundur/
Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, Þ.e. forsvarsmenn
fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og annarra hluthafa, ber að skila umboði við
skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
varði hendur sínar í gær og sagðist
hafa verið í fullum rétti þegar hann
deildi „staðreyndum“ með Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, og
Sergey Kislyak, sendiherra Rúss-
lands, í Washintgon á fundi þeirra í
síðustu viku.
Frétt Washington Post um að
Trump hefði deilt háleynilegum rík-
isleyndarmálum með Rússunum
tveimur olli miklum höggbylgjum í
höfuðborginni, og kölluðu að
minnsta kosti tveir þingmanna
Demókrataflokksins eftir því að
neðri deild þingsins höfðaði mál á
hendur Trump til embættismissis.
Heimildarmenn settir í hættu?
Samkvæmt fréttinni deildi Trump
upplýsingum með Lavrov og Kis-
lyak, sem meira að segja nánustu
bandamenn Bandaríkjanna hafa
ekki fengið í sínar hendur, en upp-
lýsingarnar munu hafa snúið að Ríki
íslams og ráðagerðum þess um að
reyna að útbúa sprengjur í fartölv-
um og reyna að granda þannig far-
þegaflugvélum á leið til Bandaríkj-
anna.
Það sem heimildarmönnum blaðs-
ins þótti einkum gagnrýnivert var að
talið var að upplýsingarnar gætu
hafa sett heimildarmann Banda-
ríkjastjórnar í hættu, auk þess sem
að trúnaður við hann hefði verið rof-
inn. Trump neitaði hins vegar öllum
slíkum ásökunum og tók fram að
lagalega séð mætti hann greina frá
því sem hann vissi eftir sinni eigin
dómgreind. Telst leynd þar með
sjálfkrafa aflétt af þeim gögnum.
Þá mótmælti H.R. McMaster
þjóðaröyggisráðgjafi því að Trump
hefði ljóstrað neinu því upp sem
hefði stefnt heimildarmanni Banda-
ríkjanna í hættu. Sagði hann frétt
Washington Post einfaldlega ranga,
án þess þó að taka nánar fram hvaða
atriði væru röng.
Sagði Trump að hann hefði stjórn-
ast af „mannúðarástæðum“, auk
þess sem hann hefði viljað fá aukinn
stuðning Rússa við baráttuna gegn
Ríki íslams og hryðjuverkum al-
mennt. Dimitri Peskov, talsmaður
Pútíns Rússlandsforseta, sagði
fregnirnar vera „kjaftæði“ sem ekki
væri þess virði að svara.
Pelosi hafnar ákærukröfum
Fregnin olli engu að síður tals-
verðum skaða fyrir Trump, ekki síst
meðal samflokksmanna hans á
Bandaríkjaþingi, sem sagðir eru
vera orðnir þreyttir á sífelldum
hneykslismálum sem virðast ætla að
umlykja forsetatíð Trumps. Var
Paul Ryan, forseti neðri deildar
þingsins, sagður hafa krafist þess að
fá „fullar útskýringar“ á málinu.
John McCain, öldungadeildar-
þingmaður repúblikana, sem hingað
til hefur ekki talist til bandamanna
forsetans, gagnrýndi Trump hins
vegar og sagði að fregnirnar væru
grafalvarleg tíðindi.
Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í
neðri deild þingsins, neitaði hins
vegar að taka undir kröfur þess efnis
að deildin hæfi þegar í stað ákæru-
ferli til embættismissis Trumps, líkt
og að minnsta kosti tveir samflokks-
manna hennar höfðu krafist. Sagði
Pelosi að staðreyndir málsins bentu
ekki til þess að forsetinn hefði gerst
brotlegur við stjórnarskrána. Í slíku
ferli yrði meirihluti neðri deildarinn-
ar að samþykkja ákærur og öldunga-
deildin myndi síðan rétta yfir forset-
anum. Tveir þriðju hlutar
deildarinnar yrðu síðan að finna for-
setann sekan á grundvelli ákæranna.
Vilja að Trump verði ákærður
Nancy Pelosi hafnar kröfum samflokksmanna sinna um að þingið hefji ákæruferli til embættismissis
Trumps Meintar „uppljóstranir“ Trumps á leyndarmálum til Rússa valda höggbylgjum í Washington
AFP
Uppnám Trump fundaði í gær með Erdogan Tyrklandsforseta þrátt fyrir uppnámið sem frétt Washington Post olli.
Bandaríkjaþing hefur einungis
höfðað mál til embættismissis á
hendur tveimur Bandaríkja-
forsetum, þeim Andrew Johnson
árið 1868 og Bill Clinton árið
1998. Johnson var ákærður af
neðri deild þingsins í ellefu lið-
um, og munaði einungis einu at-
kvæði í öldungadeildinni að hann
yrði sakfelldur og hrakinn úr
embætti. Að auki sagði Richard
Nixon af sér embætti árið 1974,
áður en þingið gat hafið ákæru-
ferlið, en talið var nær öruggt að
það myndi ná fram að ganga.
Tvisvar reynt,
aldrei tekist
EMBÆTTISMISSIR
Blaðamenn í Mexíkó stóðu í gær fyrir mótmælum í Mexíkóborg, en landið
er hið þriðja hættulegasta í heimi fyrir fulltrúa pressunnar á eftir hinum
stríðshrjáðu löndum Sýrlandi og Afganistan. Að minnsta kosti 16 blaða-
menn voru myrtir á síðasta ári í Mexíkó.
Blaðamannamorð algeng í Mexíkó
AFP
Fórnarlambanna minnst
Íraskar hersveitir hafa náð aftur á
sitt vald um 90% af vesturhluta Mó-
sul-borgar úr höndum Ríkis íslams.
Eru vígamenn hryðjuverkasamtak-
anna sagðir vera á „barmi algjörs
ósigurs“, samkvæmt upplýsingum
talsmanns Írakshers.
Bardagar hafa nú staðið um borg-
ina í nærri því sjö mánuði, en austur-
hluti hennar var frelsaður fyrr á
þessu ári. Eru endalokin nú sögð í
augsýn fyrir samtökin í Írak, en Mó-
sul er stærsta borgin sem þau náðu
að taka á sitt vald í sókn sinni árið
2015. „Þeir hafa tvo kosti: að deyja
og fara til helvítis eða að gefast upp.
Það er enginn millivegur,“ sagði Ab-
dulwahab al-Saadi, undirhershöfð-
ingi í Íraksher, við AFP-fréttastof-
una í höfuðstöðvum sínum í Mósul í
gær.
Talið er að um hálf milljón manna
hafi neyðst til þess að flýja heimili
sín vegna orrustunnar og um 250.000
óbreyttir borgarar eru enn sagðir
fastir á áhrifasvæði Ríkis íslams.
Ósigur Ríkis íslams
sagður í nánd
90% af Mósul aftur í höndum Íraka