Morgunblaðið - 17.05.2017, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.05.2017, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 Gaman Það er mikið líf við Reykjavíkurhöfn og þessi ferðamaður virtist kátur þar sem hann kom úr hvalaskoðun. Ófeigur Hafi einhver haldið að hugmyndafræði skipti litlu eða engu í sveitarstjórnum, þá ætti sá hinn sami að hugsa sig tvisvar um. Ekki þarf annað en horfa til Reykjavíkur. Skoða hvernig staðið er að verki við stjórn- sýslu borgarinnar, bera þjónustu við íbúana saman við það sem gengur og gerist í nágrannasveitarfélögunum. Þegar hugmyndaauðgi meirihluta borgarstjórar um auknar álögur er höfð í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að hug- myndafræði – pólitísk sannfæring – kjörinna fulltrúa hafi veruleg áhrif á afkomu og lífsgæði Reykvíkinga. Rekstur og þjónusta sveitarfélaga hafa bein áhrif á lífskjör almennings. Það skiptir okkur öll miklu, hvar sem við búum, hvernig til tekst við rekstur sveitarfélagsins, hvernig staðið er að skólamálum, hvernig þjónusta við eldri borgara er, að þörfum fatlaðra sé sinnt en þeim ekki gleymt, líkt og dæmi eru um. Íbúum sveitarfélags þar sem um- hverfismálum er sinnt af kostgæfni líður örugglega betur en íbúum sveitarfélags þar sem umhverfið er hornreka. Einu sinni var sagt: Hrein borg er fögur borg. Þessi einföldu sannindi hljóma ekki lengur í höf- uðborginni. Víða hefur tekist að samþætta góða þjón- ustu sveitarfélaga og hóflega skattheimtu og álögur. En svo eru dæmi þar sem álögur eru eins háar og lög leyfa án þess að þjón- ustan sé með þeim hætti sem íbúarnir ætl- ast til. Þegar óánægjan kemur upp á yfirborðið bregðast sveitarstjórn- armenn við með mis- jöfnum hætti. Meirihlutinn í Reykjavík ákvað að hætta þátttöku í árlegri samanburð- arkönnun á þjónustu sem gerð er fyrir stærstu sveitarfélög landsins. Niðurstaða könnunarinnar, sem birt var í febrúar 2015, var of bitur og óþægileg fyrir meirihlutann: Hvergi voru íbúar eins óánægðir með þjón- ustu leikskóla, grunnskóla, þjónustu við eldri borgara, fatlaða, og barna- fjölskyldur og í Reykjavík. Borg- arstjóri gerði lítið úr niðurstöðunum og sagðist halda að Reykvíkingar væru „bara kröfuharðari og svona gagnrýnni“ en íbúar annarra sveit- arfélaga. Þar með hafði meirihlutinn litla ástæðu til að huga að því sem miður hefur farið. Hugmyndafræði skortsins Sá tími er löngu liðinn að Reykja- víkurborg líti á það sem skyldu sína að tryggja nægjanlegt framboð af lóðum fyrir íbúðir – einbýli, raðhús, fjölbýli. Hugmyndafræði skortsins hefur ráðið ríkjum síðustu ár. Afleið- ingin er gríðarleg hækkun íbúða- verðs og stöðugt verður erfiðara fyr- ir fjölskyldur að láta drauma sína um eigin íbúð rætast. Í hugum þeirra sem ráða för í borgarstjórn, eru draumar af því tagi aðeins draumar smáborgara og skipta því engu. Atlagan að séreignarstefnunni gengur ágætlega í höfuðborginni og valfrelsi í húsnæðismálum verður stöðugt minna. Samgöngur í höfuðborginni eru í lamasessi. Hugmyndafræði holu og þrenginga ræður ríkjum. Borgaryf- irvöld telja sig ekki lengur hafa þá skyldu á herðum að tryggja greiðar samgöngur og allra síst fyrir einka- bílinn. Með góðu eða illu skal þvinga íbúana til að fara sinna ferða í strætó eða á hjóli. Skipulega er unnið að því að skerða valfrelsi í samgöngu- málum. Þar sem hægt er eru þreng- ingar og hindranir settar og gatna- kerfinu er ekki haldið við. Og loks þegar hafist er handa við fram- kvæmdir eru þær skipulagðar með þeim hætti að þær valdi sem mest- um truflunum og töfum á umferð. Á vef Félags íslenskra bifreiðaeig- enda er bent á að umferðarstjórnun á Miklubraut vegna framkvæmda við mikilvægar samgöngu- og um- hverfisbætur við Klambratún hafi brugðist. Ábendingar rýnihóps sem fór yfir öryggismál vegna fram- kvæmdanna voru hafðar að engu. „Þrengingarnar við Klambratún or- saka umferðateppur og tafir út um allt höfuðborgarsvæðið,“ segir á vef FÍB og síðan segir: „Svo virðist sem ekki hafi verið gert ráð fyrir því að tryggja forgang viðbragðsaðila lögreglu, sjúkraliðs og slökkviliðs á framkvæmdasvæð- inu og víðar. Þarna skammt frá er þjóðarsjúkrahúsið, Landspítali, sem nánast er hafður í gíslingu á háanna- tímum vegna þessara umferða- þrenginga. Sú sjálfsagða krafa er gerð til þeirra sem reka umferð- armannvirkin í borginni að allt verk- lag sé meðvitað með öryggi og þæg- indi borgaranna í fyrirrúmi. Ekki þýðir að benda á aðra samgöngu- máta, öll umferð teppist. Það er ver- ið að búa til óþarfa vandamál, óþæg- indi, tafir og mengun sem koma má í veg fyrir með aukinni fyrirhyggju og skipulagi.“ Hvernig staðið er að verki við Miklubraut er birtingarmynd verk- stjórnar meirihluta borgarstjórnar. Mikið verk fyrir höndum Nokkrum vikum eftir sveitar- stjórnarkosningar 2014, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn beið sögulegt afhroð, hélt ég því fram hér á síðum Morgunblaðsins að borgarfulltrúar flokksins yrðu að taka stöðu með valfrelsi borgarbúa og berjast fyrir lægri álögum: „Þeir eiga að leggja áherslu á raunverulegt val í samgöngum, í bú- setu og skólum. Þeir eiga að draga fram árangur sjálfstæðismanna í ná- grannasveitarfélögunum þar sem tekist hefur að samþætta öfluga þjónustu, hófsamar álögur og lágar skuldir. Þeir verða að berjast fyrir hagsmunum sjálfstæðra atvinnurek- enda sem hafa átt undir högg að sækja síðustu fjögur ár. Borgar- fulltrúar sjálfstæðismanna eiga að leggja áherslu á opið bókhald borg- arinnar og að óskir íbúanna séu virt- ar í skipulagsmálum.“ Þremur árum eftir að þessi orð voru sett á blað og ári fyrir næstu kosningar eiga sjálfstæðismenn í höfuðborginni mikið verk fyrir höndum – þeir eiga eftir að draga skýr mörk á milli sín og vinstri manna í borgarstjórn. Þeir verða að sannfæra borgarbúa um að Sjálf- stæðisflokkurinn standi fyrir auknu valfrelsi íbúanna á öllum sviðum, hafi skýra framtíðarsýn í skipulags- málum og að kjörnir fulltrúar hans séu þess megnugir að stýra fjár- málum borgarsjóðs af festu. Fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins þurfa að boða nýja tíma í rekstri borgarinnar og þjónustu við íbúana, segja skilið við tímabil skortsins sem hefur valdið þenslu og hækkun íbúðaverðs og sannfæra kjósendur um að á þá verði hlustað. Eftir Óla Björn Kárason » Fyrir næstu kosn- ingar eiga sjálfstæð- ismenn í höfuðborginni mikið verk fyrir hönd- um – þeir eiga eftir að draga skýr mörk á milli sín og vinstri manna. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hugmyndafræðileg barátta í sveitarstjórnum Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að raf- orka framleidd á Ís- landi skuli nýtt til verð- mætasköpunar innanlands því fjöl- breyttur og öflugur iðn- aður er forsenda góðra lífskjara. Það er ekki hægt að horfa framhjá þeim ávinningi sem hlýst af raforkunýtingu hjá fyrirtækjum á Ís- landi og því mikilvægt að staðinn sé vörður um samkeppnishæfni orku- notenda í alþjóðlegu samhengi. Raf- orkuframleiðsla og nýting hennar gegnir lykilhlutverki í efnahags- starfseminni og er veigamikil upp- spretta verðmætasköpunar en tæp- lega fjórðungur útflutningstekna þjóðarinnar byggist á nýtingu og framleiðslu raforku. Skipulag, upp- bygging og þróun raforkumarkaðar hér á landi skiptir því miklu máli fyrir iðnfyrirtæki og efnahagslífið í heild sinni. Samkeppni er eitt besta tækið til að draga fram það besta og hag- kvæmasta í atvinnustarfsemi. Þannig er hag kaupenda og seljenda best borgið og ábati samfélagsins há- markaður. Þess vegna er skyn- samlegt að leita allra leiða við að koma á og styðja við samkeppni þar sem henni verður við komið. Það á við um raforkumarkaðinn eins og aðra markaði. Í nýrri raforkustefnu Samtaka iðn- aðarins kemur fram að nauðsynlegt sé að rjúfa tengsl milli Landsvirkj- unar og Landsnets hið fyrsta til að aðskilnaður verði milli framleiðslu- og flutningsfyrirtækja raforkunnar. Landsvirkjun hefur yfirburðastöðu á íslenskum raforkumarkaði á sama tíma og Landsnet hefur einok- unarrétt á flutningi á raforku. Skapa þarf skilyrði til að auka samkeppni á raforkumarkaði. Hlutdeild Lands- virkjunar í raforkuframleiðslu þarf að minnka enda er vandséð að ávinn- ingur frjálsrar samkeppni náist fram að fullu þegar eitt fyrirtæki er með yfir 70% markaðs- hlutdeild. Það er því bæði óeðlilegt og óæski- legt að Landsvirkjun eigi stóran eignarhlut í Landsneti sem er jafn- framt að miklu leyti fjármagnað af Lands- virkjun. Þessi eigna- tengsl og fjármögn- unartengsl eru óheppileg. Að undanförnu hefur fjölbreytni raforku- kaupenda aukist þegar nýjar atvinnugreinar spretta upp líkt og gagnaversiðn- aðurinn og fjölmörg öflug iðnfyrir- tæki sem eru að vaxa hratt. Það má búast við að millistórum raforkunot- endum fjölgi en á sama tíma tekur verðlagning og þjónusta til þessara aðila ekki mið af því. Raforkusalar og dreifiveitur ættu að sjá sér hag í að mæta ólíkum þörfum lítilla, meðal- stórra og stórra raforkukaupenda með mismunandi kjörum eins og þekkist víða erlendis. Til þess að svo megi verða þarf að breyta umgjörð raforkumála hér á landi. Með raforkulögum frá árinu 2003 voru veigamiklar breytingar gerðar á íslenska raforkumarkaðnum þar sem markmiðin voru að skapa forsendur fyrir virka samkeppni í raforkusölu, auka skilvirkni í flutningum og dreif- ingu og tryggja gæði. Það er mat Samtaka iðnaðarins að þessum mark- miðum hafi ekki verið náð. Er ekki tímabært að stigin verði ákveðnari skref í þá átt að ná fram þessum markmiðum nú þegar 14 ár eru liðin frá því raforkulögunum var breytt? Eftir Almar Guðmundsson Almar Guðmundsson » Skipulag, uppbygg- ing og þróun raf- orkumarkaðar hér á landi skiptir miklu máli fyrir iðnfyrirtæki og efnahagslífið í heild sinni. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Tímabært að breyta umgjörð raforkumála

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.