Morgunblaðið - 17.05.2017, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.05.2017, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 ✝ María Sigurð-ardóttir Norð- dahl fæddist á Álf- geirsvöllum í Skagafirði 25. apríl 1932. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð 7. maí 2017. Foreldrar henn- ar voru Magndís Guðmundsdóttir, f. 18. júlí 1906, d. 25. september 1997, og Sigurður Jónsson, f. 12. september 1903, d. 19. júlí 1933. Þau hjón giftu sig 21. júní 1931 og hófu búskap á Álfgeirsvöllum í Skagafirði, þar sem María ólst upp ásamt bróður sínum, Sigurði Sigurðs- syni, f. 20. ágúst 1933. María giftist Magnúsi Guð- mundssyni Norðdahl 16. októ- ber 1953 í Amman, Jórdaníu. Hann fæddist í Reykjavík 20. febrúar 1928. Þau eignuðust fimm börn: 1) Sigurður, f. 22. nóvember 1952. Eiginkona hans er Sigríð- ur Þorsteinsdóttir og eiga þau þrjú börn: María, f. 23. janúar 1978, maður hennar Helgi Bene- diktsson og eiga þau þrjú börn. Sigrún Jóna, f. 28. febrúar 1981. Snorri, f. 19. júní 1985. 2) Guðrún, f. 22. september Álfgeirsvöllum en flutti síðan til foreldra sinna sem bjuggu á Sveinseyri í Tálknafirði þegar María var sex ára gömul. Þegar komið var að framhalds- skólagöngu systkinanna fluttist María með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur. Hún gekk í Laug- arnesskóla og vann í Holts- apóteki þar til hún kynntist Magnúsi, eiginmanni sínum. Þau bjuggu fyrstu tvö árin í Amman, Jórdaníu, þar sem Magnús starfaði sem flugmaður hjá ArabAirways. Heim fluttust þau síðla árs 1954 og í Kópavog árið 1955 þar sem þau bjuggu til ársins 1999. María sinnti uppeldi barna sinna og sá um heimilið þar til að hún fór aftur út á vinnumarkaðinn. Hún stofnaði heildsölufyrirtækið Norco sf. tæplega fimmtug að aldri og rak það til ársins 1995. María rak fyrirtækið með Magnúsi eig- inmanni sínum eftir að hann hætti störfum sökum aldurs í febrúar 1991 en hann starfaði hjá Loftleiðum og síðar Flug- leiðum lengst af sem flugstjóri. Aldamótaárið settust þau að í Mosfellsbæ og hafa búið þar síð- an. María greindist með Alzheimer-sjúkdóminn um 2011 og fluttist á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í maí 2013. Útför Maríu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 17. maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. 1956. Fv. maður hennar er Árni Þór Helgason og eiga þau tvö börn: Helga Dís, f. 6. nóvember 1981 í sambúð með Brynjari Sigurðs- syni og eiga þau tvö börn. Árný Rún, f. 30. janúar 1989, í sambúð með Stein- ari Sveinssyni. Nú- verandi maður Guð- rúnar er Grímur Hannesson. 3) Guðmundur, f. 10. septem- ber 1960. 4) Magnús Steinarr, f. 27. ágúst 1962. Eiginkona hans er María Másdóttir og eiga þau þrjú börn: Magnús, f. 22. desem- ber 1986 í sambúð með Heiðrúnu Hafliðadóttur og eiga þau eitt barn. Bjarki Þór, f. 16. október 1989 í sambúð með Alexander De Luka. Thelma Björk, f. 14. mars 1993. 5) Jóna María, f. 17. júní 1967. Fv. maður hennar er Magnús Steinþór Pálmarsson og eiga þau tvö börn: Heiðrún María, f. 12. mars 1993, í sambúð með Gísla Grímssyni. Daníel Stein- þór, f. 20. febrúar 1995. María missti föður sinn aðeins eins árs gömul og var bróðir hennar þá ófæddur. Móðir henn- ar bjó með börn sín næstu árin á Í dag kveðjum við með sökn- uði Maríu tengdamóður mína og langar mig að þakka henni fyrir samfylgdina í rúmlega 40 ár. María var mörgum góðum kostum gædd, hún var elskuleg og glaðlynd með sterkar skoð- anir og lét hún þær óspart í ljós. Hún átti auðvelt með að kynnast fólki, var ræðin og hafði áhuga á mönnum og málefnum. Hún fylgdist vel með þjóðmálum, var mikið náttúrubarn og hafði áhuga á listum og fallegri hönn- un. Hún var glæsileg kona, há og grönn og var alltaf í nýjustu tísku og fallega klædd svo eftir var tekið. María var fagurkeri og list- ræn sem sást best á glæsilegu heimili hennar. Hún hafði mik- inn áhuga á garðrækt og íslensk- um villtum plöntum sem hún þekkti flestar. Garðurinn í Holtagerði var einstaklega fal- legur og fékk hún nokkrum sinn- um verðlaun fyrir garðinn sinn. Þegar hún flutti í minna húsnæði í Mosfellsbæ ræktaði hún upp villtan garð með íslenskum plöntum. Við María deildum sameiginlegum áhuga okkar á plöntum og garðrækt og á vorin sáðum við fræjum og plöntuðum í gróðurhúsinu hennar. Ég lærði mikið af henni og hún var óspör á góð ráð og að deila reynslu sinni af garðræktinni. María sinnti stóru heimili og barnauppeldi þar til hún stofnaði sitt eigið fyrirtæki. Það hefur þurft kjark til að ráðast í stofnun fyrirtækis tæplega fimmtug haf- andi verið heimavinnandi í 30 ár. Hún stofnaði heildsölufyrirtækið Norco sf. og byrjaði smátt í bíl- skúrnum í Holtagerði, fljótlega stækkaði fyrirtækið og flutti í stærra húsnæði við Smiðjuveg í Kópavogi. Hún var sjálfstæð og fylgdi því fast eftir sem hún tók sér fyrir hendur. Allt sem hún gerði var unnið af vandvirkni og alúð og aldrei kastað til höndum. Hún hafði gaman af ferðalög- um og saman ferðuðust þau hjónin um allan heim og var þá farið á listasöfn, í antikbúðir og áhugverðir staðir skoðaðir ásamt nýjustu tískunni á hverj- um tíma. Þau bjuggu í Amman í Jórdaníu í tæplega tvö ár. Þá var elsta barnið fætt, Sigurður eiginmaður minn, en hann var á meðan í fóstri hjá Magndísi móður Maríu. Þegar María hætti fyrir- tækjarekstri og Magnús var kominn á eftirlaun þá keyptu þau sér hús í Melbourne í Flór- ída og dvöldu þar í 5 mánuði á ári þar til fyrir sex árum að þau seldu litla húsið sitt vegna heilsu Maríu. Hún talaði um að tíminn í Ameríku hefði verið þeirra besti tími saman og hlakkaði alltaf til dvalarinnar í Flórída. Á sumrin ferðuðust þau um landið á húsbíl, nutu íslenskrar náttúru oft á fáförnum slóðum að spjalla við heimamenn. Síðustu fjögur ár dvaldi hún í Sunnuhlíð og hefur verið erfitt fyrir fjölskylduna að sjá hana fjarlægjast smátt og smátt. Í veikindum hennar hefur Magn- ús sinnt henni á einstakan hátt, hlúð að henni og sýnt henni ást og umhyggju svo eftir var tekið. Þau hafa verið saman í 65 ár og verður tómlegt fyrir Magnús að hafa ekki Maríu til að hugsa um. Við eigum dýrmætar minn- ingar um mömmu, ömmu og tengdamömmu sem við geymum í hjörtum okkar og munum aldr- ei gleyma. Elsku María, þú varst ein- stök, ég kveð þig með virðingu og þakklæti fyrir vináttu og stuðning. Blessuð sé minning þín. Sigríður Þorsteinsdóttir. Elsku amma mín, nú hefurðu kvatt og haldið á vit nýrra æv- intýra. Minningarnar lifa áfram þó að elsku amma hafi kvatt þessa jörð. Amma sem hefur alltaf verið hluti af mínu lífi er farin á vit nýrra ævintýra. Þegar ég hugsa til baka koma upp í hug- ann minningar um samveru með ömmu. Það var oft mikið fjör í fallega garðinum hennar ömmu þegar barnabörnin voru öll samankomin og í minningunni var alltaf sól. En fyrsta minn- ingin mín frá Holtagerðinu er þó þegar við systur vorum að drullumalla í rigningu í inn- keyrslunni þegar við vorum að bíða eftir að bróðir okkar kæmi í heiminn. Amma var með græna fingur. Hún var með rósir í gróðurhúsi og ræktaði margar tegundir af grænmeti. Við systur fengum oft að klippa rósir til að setja í vasa og vökva blómin og græn- metið sem var ótrúlega skemmtilegt og síðsumars var beðið eftir að fá að smakka á sætum gulrótunum. Á sumrin var farið í fjöru- ferðir og berjamó. Amma naut þess að vera úti í náttúrunni og var óþreytandi við að sýna barnabörnunum undur náttúr- unnar í þessum ferðum. Hún fylgdist ávallt vel með fuglalíf- inu hvar sem hún var. Mér er það minnisstætt frá einni fjöru- ferðinni þegar við börnin þorð- um ekki að fara út í fjöruna vegna kríanna sem sveimuðu ógnandi yfir. Amma leysti það á einfaldan hátt, setti plastkassa á höfuð okkar og fór með okkur niður að sjónum enda ekkert að óttast þar sem kríuvarpið var lengra frá. Ég entist nú samt ekki lengi en amma stóð heil- lengi í fjörunni með kríurnar sveimandi yfir sér og ég man eftir að hafa dáðst að því hversu óhrædd hún var. Hvíl í friði, elsku amma mín. Þín María. María S. Norðdahl ✝ ÞórarinnBjarnason fæddist í Hafnar- firði 18. febrúar 1937. Hann varð bráðkvaddur 27. apríl 2017. Foreldrar hans voru Bjarni Guð- mundsson, f. 1897, d. 1976, og Sigríð- ur Helgadóttir, f. 1905, d. 1994. Þór- arinn var þriðji elstur sex systkina, en elstur var Halldór Bjarnason, f. 1930, d. 1980, Guðmunda Kristín Bjarnadótt- ir, f. 1933, Guðrún Bjarnadótt- ir, f. 1939, og Birna Helga Bjarnadóttir, f. 1941, og Auður Bjarnadóttir, f. 1944. Þórarinn kvæntist í desem- ber 1968 Kristínu Karólínu Stefánsdóttur, f. 8. október 1939. Foreldrar hennar voru Stefán Sigurgeir Jónsson, f. 1909, d. 1990, og Ragnhildur Þorvaldsdóttir, f. 1907, d. 1981. Þórarinn og Kristín eign- uðust fjögur börn: 1) Bjarni Þórarinsson, f. 1. desember 1968. 2) Drengur, f. 21. febr- úar 1970, d. 21. febrúar 1970. 3) Ragnhildur Þórarinsdóttir, f. 17. desember 1971, sambýlis- maður hennar er Sigurður Þorsteinn Guð- jónsson, f. 11. mars 1970, börn þeirra eru Thelma Rut Sigurðardótt- ir, f. 8. apríl 1997, Embla Ósk Sigurð- ardóttir, f. 24. maí 2004, og Snædís Eva Sigurðar- dóttir, f. 25. apríl 2009. 4) Guðbjörg Þórarinsdóttir, f. 11. september 1974, eig- inmaður hennar er Bjarni Ant- onsson, f. 27. janúar 1972. Börn þeirra eru Sandra Bjarnadóttir, f. 14. maí 2002, Björk Bjarnadóttir, f. 2. febr- úar 2004, Bryndís Sara Bjarnadóttir, f. 29. júní 2009, og Lára Kristín Bjarnadóttir, f. 14. apríl 2011. Þórarinn ólst upp í Hafn- arfirði, þar gekk hann í barna- skóla og Flensborgarskólann. Hann útskrifaðist úr Sjó- manna- og stýrimannaskól- anum árið 1958. Þórarinn fór ungur að vinna á sjó og starf- aði á ýmsum bátum og tog- urum um ævina. Á efri árum fór hann að vinna í landi við störf er tengdust sjómennsku. Útförin fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, 17. maí 2017, klukkan 13. Elsku pabbi, það er erfitt að trúa því að þú sért farinn frá okkur. Við fjölskyldan höfum setið saman og rifjað upp svo margar og góðar minningar sem við höfum átt saman í gegnum árin. Af mörgu er að taka, þú hafðir gaman af að elda góðan mat og gera til- raunir í eldhúsinu. Við munum svo vel eftir því þegar þú leyfð- ir okkur krökkunum að vera með í að búa til allskonar góð- gæti, þú kallaðir það sælgæt- isgerðina Subbu því þá gekk ýmislegt á í eldhúsinu og það var alltaf jafn skemmtilegt og mikið hlegið. Þú hafðir gaman af því að ferðast um landið og nýlega fórum við saman í ferð í tilefni af áttræðisafmælinu þínu í Grímsborgir þar sem fjöl- skyldan var öll samankomin. Þú ljómaðir af ánægju og við áttum öll svo yndislega og skemmtilega stund saman. Þú sagðir okkur að sjó- mennskan hefði heillaði þig alltaf alveg frá því að þú varst lítill strákur og aldrei kom ann- að til greina hjá þér en að kom- ast á sjóinn. Það eru ófáar minningarnar tengdar sjónum þegar við vorum börn og við vorum að bíða eftir að pabbi kæmi heim til okkar eftir veiði- túra. Þegar pabbi var að koma heim úr siglingunum með fullar töskur af einhverju fallegu fyr- ir okkur og mömmu. Þegar við fórum í gönguferðir með pabba í góðu veðri og komum að sjálf- sögðu við á bryggjunni þar sem pabbi þekkti svo marga og bíl- túrarnir sem margir hverjir voru með viðkomu á bryggj- unni. Fjölskyldan skipti þig svo miklu máli og stóðst þú alltaf með okkur, sama hvað það var sem okkur datt í hug og skammaðir okkur aldrei heldur ræddir málin í rólegheitum. Þú varst alltaf svo umhyggjusamur og hafðir góða nærveru. Þú varst rólegur og yfirvegaður, hækkaðir aldrei róminn þó mik- ið gengi á með þrjá krakka á heimilinu. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur systkinin og studdir okkur í einu og öllu. Yndislegri pabba er ekki hægt að hugsa sér og við erum svo óendanlega þakklát fyrir að hafa átt þig að og hefðum viljað hafa þig hjá okkur lengur. Kallið kom okkur á óvart og við vorum alls ekki tilbúin til þess að kveðja þig strax en verðum þó að reyna okkar besta til að takast á við það að þú sért ekki hér lengur. Elsku pabbi okkar, við viljum þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Við söknum þín svo mikið og sárt á hverjum degi og mun minningin um þig lifa í hjörtum okkar um alla eilífð. Takk fyrir allt, elsku besti pabbi okkar. Bjarni, Ragnhildur og Guðbjörg. Í dag kveðjum við elskulegan tengdapabba. Það er erfitt að trúa því að hann sé farinn svona skjótt og ekki hafi gefist tími til þess að kveðja. Þór- arinn var maður sem öllum lík- aði við. Hann var stór og sterk- ur sjómaður sem hafði unnið mikið allt sitt líf. Þrátt fyrir að skrokkurinn bæri merki um erfiða vinnu þá kvartaði hann aldrei og ég heyrði hann aldrei kveinka sér yfir neinu. Hann var ekta sjómaður, ótrúlega sterkur og duglegur. Það var ekkert sem gat komið honum úr jafnvægi því hann var ein- staklega yfirvegaður og róleg- ur. Dæturnar mínar fjórar hafa allar notið þessa að fá að dvelja hjá afa Þóra og ömmu Stínu. Oft eftir veikindi þá fóru stelp- urnar okkar til þeirra til þess að jafna sig betur áður en þær fóru í skólann eða leikskólann. Þeim fannst alltaf gott að koma til þeirra. Þórarinn sagði þeim sögur, spjallaði og lék við þær og hann hafði endalausa þol- inmæði. Þórarinn hafði einstak- lega rólega og þægilega fram- komu sem hafði mjög góð áhrif á börnin okkar. Við hjónin töl- uðum stundum um að senda börnin til Þóra og Stínu í Hafn- arfjörðinn til að núllstilla þau. Þar fengu þau frí frá amstri dagsins og komu alltaf endur- nærð til baka. Betri afa er vart hægt að hugsa sér fyrir börnin sín. Eftir 80 ára afmælið hans Þórarins fórum við fjölskyldan saman í sumarbústað á Flúðum þar sem við áttum frábæra stund í frábæru veðri. Þessi ferð mun varðveitast lengi í minningunni þar sem hún var okkar síðasta saman. Það er góð minning því í þeirri ferð ljómaði Þórarinn því honum þótti ákaflega gaman að fara út á land og hafa öll barnabörnin nálægt sér. Eftir situr minning um einstakan mann sem gaf mikið af sér. Bjarni Antonsson Elsku afi, við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Við eigum yndislegar minningar um allar þær stundir sem þú varst að passa okkur og þegar við vor- um í heimsókn hjá þér. Róleg nærvera þín smitaði út frá sér og það var hvergi betra að vera en hjá þér til að slappa af og safna orku. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman Hann var svo góður,hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár. En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt. (Katrín Ruth) Takk fyrir allt, elsku afi, við söknum þín og munum aldrei gleyma þér. Sandra, Björk, Bryndís Sara og Lára Kristín. Elsku afi okkar, við söknum þín svo mikið. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar ömmu og það er svo erfitt að þú sért ekki lengur þar. Þú varst alltaf svo glaður að sjá okkur, studdir okkur alltaf í því sem við vorum að gera og gafst okkur góð ráð. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Takk fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman, elsku afi, við munum aldrei gleyma þér. Thelma Rut, Embla Ósk og Snædís Eva. Í dag kveðjum við kæran mág minn og vin, Þórarin Bjarnason. Leiðir okkur lágu fyrst saman þegar hann og Stína systir mín fóru að vera saman fyrir um fimmtíu árum síðan. Fyrsta minningin er um hávaxinn myndarlegan mann með falleg ljósblá augu og fal- legt bros, manninn sem heillaði hana systur mína. Allar mínar minningar um Þórarinn eru kærar. Hann var einstaklega góður og traustur maður, greiðvikinn, skapgóður, ljúfur og mikill fjölskyldumaður og var systur minni góður félagi. Við kveðjum þig nú, kæri vinur, með miklum söknuði og þökk- um þér fyrir samfylgdina. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Elsku Stína, Bjarni, Ragn- hildur og Guðbjörg og aðrir að- standendur. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og megi Guð vera með ykkur. Guðrún og Helgi. Þórarinn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.