Morgunblaðið - 17.05.2017, Side 31

Morgunblaðið - 17.05.2017, Side 31
Barst þá loks hljóð úr horni,eða þannig, vel grafin tón-smíð úr ranni vanmet-innar listakonu – Fanny Mendelssohn-Hensel. Vafalaust var snilligáfa hennar síst minni og síðri en bróður hennar, Felix, en skyldur og þjóðfélagsstaða kvenna á þeim tíma voru aðrar en nú. Eigi að síður liggja yfir 500 tónverk eftir Fanny sem jafnvel hörðustu klassíkerar vita engin deili á. Forleikurinn, hin áheyrilegasta tónsmíð en jafnframt eina hljómsveitarverk, Fannyar hófst með værð en brátt tóku við hröð snilldarhlaup strengja með smitandi blæbrigðum sem blásarar tóku upp. Efnisskráin tefldi því næst fram öðrum Íslands-frumflutningi en nú með skarpri dýfu, þ.e. innhverfu hins sveitta holds. Verk Hafliða byggist á fimm kvæðum, hverju úr sinni átt líkt og minningabrot úr hafsjó tilfinninga og viðhorfa, skotin samúð ef ekki meðaumkun. Söngv- arnir fimm eru ennfremur tileink- aðir bróður tónskáldsins, mann- og listvininum Guðmundi Hallgríms- syni lyfjafræðingi. Tónmálið orkaði í senn djúpviturt og íhugult enda kvæðatextinn meitlaður mis- óbeinum vísunum líkt og í kvæði William Blake, Flugan (The Fly): Litla fluga, sumarleik þinn hefur skeytingarlaus hönd mín strokið í burtu. Er ég ekki fluga eins og þú? Og ert þú ekki maður eins og ég? Eins mátti nema kurr dulvitund- arinnar hjá Christiana Rossetti, bergmál frá ófullkomleika mannsins Úr Djúpinu (De Profundis): Ég kæri mig ekki um að ná til tunglsins, ein kringla með einhæfri fábreytni;… Ég horfi aldrei á dreifð- an eld stjarnanna, né langförula lest sólarinnar… Því að ég er bundin holdsins böndum, gleði, fegurð eru utan míns svigrúms… Líkt og áður er nálgun Hafliða mörkuð af auðmýkt en þó strangri formfestu arkitektsins. Hvert kvæði fékk eigin sérkenni sem kvik hljóm- sveitin svaraði af skerpu og sannri tilfinningu. Söngur Helenu var jafn- an glæsilegur, innblásinn leikrænum tóni og litríkum auk þess sem texta- meðferðin var afburðagóð. Eftir hlé hélt tregablandinn þráð- ur Hafliða áfram. Flutningur hljóm- sveitarinnar á þeirri sjöttu eftir Sibelius var einstaklega flæðandi og lifandi undir skynsamlegum gang- hraða Storgårds. Það var tam. áber- andi hvað strengjasveitin naut sín vel við að kasta tregafullum hend- ingum sín á milli. Sú sjötta er jafnan kölluð hin finnska, en skýringin ligg- ur eflaust í strúktúr verksins, þ.e. dórískum módal hætti (fram yfir tó- nal d-moll hljómagang) sem gefur aðra litaáferð í nágrenni við finnsku þjóðlögin. Hljómsveitin hefur á stundum náð hærri hæðum í spilamennskunni eins og maður sem gerir sér daga- mun, en nú var líkt og meðalgildið hefði náð nýjum hæðum; rýnir hefur í raun aldrei heyrt jafn heilsteyptan og áreynslulausan leik úr ranni hljómsveitarinnar, líkt og hún væri öll mætt saman á hærra leikjaborð eða level í leiknum. Vafalítið á Stor- gårds stóran þátt í því þar sem hann lék sér með öll fínlegri blæbrigðin í vopnabúri hljómsveitarinnar. Út- koman var fumlaus og blátt áfram flutningur en þrungin sterkri undir- öldu hins norræna, kyrra fölbláma. Morgunblaðið/Golli Tónskáld Fimm söngvar fyrir sópran og hljómsveit, op.52 (1914-15) eftir Hafliða Hallgrímsson voru fluttir af SÍ og Helenu Juntanen á tónleikum í Eldborg 11. maí síðastliðinn. Hér sést tónskáldið í Hallgrímskirkju. Undir norrænum fölblámafána Eldborg í Hörpu bbbbb Forleikur í C-dúr (1832) eftir Fanny Mendelssohn-Hensel. Fimm söngvar fyrir sópran og hljómsveit, op.52 (1914- 15) eftir Hafliða Hallgrímsson. Sinfónía nr.6 í d-moll, op.104 (1923) eftir Jean Sibelius. Einsöngvari: Helena Juntunen Stjórnandi: John Storgårds Fimmtudaginn 11. maí kl. 19.30 INGVAR BATES TÓNLIST MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2017 Ein þekktasta portrettmynd listmálar- ans Pablo Picasso var nýverið seld á upp- boði hjá uppboðshúsinu Christie’s í New York fyrir 45 milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar rúmum 4,6 milljörðum ís- lenskra króna. Frá þessu er greint á vef BBC. Þar kemur fram að síðast þegar myndin var seld fyrir sex árum fór hún á 26 milljónir dala. Myndin nefnist „Femme assise robe bleu“ (Sitjandi bláklædd kona) og er af Doru Maar, sem var ein margra ást- kvenna listmálarans. Þegar hann málaði myndina 1939 var hann 58 ára og hún 31. Samband þeirra stóð í níu ár. Fram kem- ur í frétt BBC að nasistar lögðu hald á málverkið í seinni heimsstyrjöld, en voru stöðvaðir af frönsku andspyrnuhreyfing- unni á leið sinni frá París til Móravíu. Ár- ið 2015 seldist annað verk eftir Picasso fyrir metverð hjá Christie’s, en þar var um að ræða „Konur frá Alsír“ sem seld- ist á 179 milljónir bandaríkjadala. Bláklædda konan boðin upp Portrett Sitjandi bláklædd kona eftir Picasso.. AFP Tölvuhakkarar halda því fram að þeir hafi komist yfir eintök af kvikmyndunum Pira- tes of Caribbean: Dead Men Tell No Tales og Cars 3 frá Walt Disney sem ætlunin var að frumsýna í Bandaríkj- unum á næstunni og heimta lausnarfé í raf- eyrinum bitcoin ella dreifi þeir myndunum á netið. Frá þessu greinir breska dag- blaði The Guardian. Nýjustu Pirates of Caribbean-myndina þar sem Johnny Depp leikur aðal- hlutverkið stendur til að frumsýna vest- anhafs 25. maí og Cars-myndina 16. júní. Haft er eftir Bob Iger, forstjóra kvik- myndaversins, að þar á bæ hafi menn neit- að að greiða lausnarféð og rannsókn fari nú fram á málinu í samstarfi við yfirvöld. Iger segir að hakkararnir hóti því að birta fyrst fimm mínútna bút úr myndinni og síð- an 20 mínútna bút verði ekki gengið að kröfum þeirra. Stutt er síðan ónefndur hakkari eða hakkarar birtu fimmtu þátta- röð Orange is the New Black eftir að streymisveitan Netflix neitaði að greiða. Hakkarar hóta birtingu Sjóræningi Johnny Depp í hlutverki Jack Sparrow. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Nýja sviðið) Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara. Úti að aka (Stóra svið) Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn. Síðustu sýningar leikársins! MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s. Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Mið 14/6 kl. 20:00 Sing-along Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Mið 7/6 kl. 20:00 Sing-along Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Allra síðustu sýningar komnar í sölu! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 21/5 kl. 13:00 aukas. Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar RVKDTR- THE SHOW (Litla svið) Mið 17/5 kl. 20:00 2. sýn. Lau 20/5 kl. 20:00 4. sýn. Fim 18/5 kl. 20:00 3. sýn. Lau 3/6 kl. 20:00 5. sýn. Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið og láta gamminn geisa. Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið) Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 9/9 kl. 20:00 6. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn Sýningar í haust komnar í sölu. Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 21/5 kl. 13:00 Sun 28/5 kl. 13:00 Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Húsið (Stóra sviðið) Mið 17/5 kl. 19:30 Lau 27/5 kl. 19:30 Lau 20/5 kl. 19:30 Fim 1/6 kl. 20:00 Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga. Tímaþjófurinn (Kassinn) Fim 18/5 kl. 19:30 20.sýn Lau 20/5 kl. 19:30 19.sýn Lau 27/5 kl. 19:30 23.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 21.sýn Fös 26/5 kl. 19:30 22.sýn Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Maður sem heitir Ove (Kassinn) Sun 21/5 kl. 19:30 Sun 28/5 kl. 19:30 Lokasýning Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Álfahöllin (Stóra sviðið) Fim 18/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 11.sýn Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson! Gísli á Uppsölum (Kúlan) Lau 20/5 kl. 17:00 17.sýn Sun 21/5 kl. 17:00 18.sýn Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Naktir í nátturunni (None) Fim 15/6 kl. 19:30 ÁHUGASÝNING ÁRSINS leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.