Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 2
Veður Hægur vindur í dag, víða léttskýjað og kalt í veðri. Vaxandi suðaust- anátt á Suður- og Vesturlandi seinni partinn, þykknar upp og dregur úr frosti. sjá síðu 18 0 kr. fyrsti mánuðurinn! Verið vel tengd Aðventan upp á gamla mátann Alla jafna er mikið um að vera á Árbæjarsafninu í aðdraganda jóla. Gestir safnsins geta fylgst þar með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Í gær voru þar bræðurnir Ketkrókur og Bjúgnakrækir og bersýnilega fóru þeir ekki tómhentir af safninu. Fréttablaðið/SteFán DýravernD „Ég var á Hlemmi að taka strætó þegar ég sá geiturnar tvær fyrir utan Mathöllina. Mér var mjög misboðið að sjá dýrin svona í umhverfi sem er þeim alls ekki náttúrulegt,“ segir Helga Marín Jónatansdóttir grænmetisæta. „Ég tók mynd af geitunum og hringdi í lögregluna sem vísaði mér áfram á Matvælastofnun og ég ætla að til- kynna þessa meðferð á dýrunum þangað.“ Geiturnar tvær voru til sýnis við Mathöllina á miðvikudaginn á svo- kölluðum „Geitardegi“ sem var liður í sýningu útskriftarnema í meistara- námi í hönnun við Listaháskóla Íslands. Þá voru geitaréttir á boð- stólum á þremur veitingastöðum í höllinni. „Það var fólk að klappa geitum fyrir utan og borða þær inni,“ segir Helga Marín og sættir sig illa við þessa þversögn. „Þarna var alls konar lið að atast í þeim og hlæja. Þetta er vanvirðing við dýrin sem komið er fram við eins og hluti. Ég held að þeim hafi ekki liðið vel. Þetta er ekki þeirra umhverfi og hávaðinn og áreitið á Hlemmi er mikið.“ Helga Marín birti myndina á Facebook-síðu vegan fólks á Íslandi. Óhætt er að segja að í athuga- semdum þar hafi heitar tilfinningar blossað upp og meðal annars talað um „algera aftengingu“, „dýravald- níðslu“ og „ömurlegan viðbjóð“. Á heimasíðu Matvælastofnunar segir að hverjum þeim sem verði var við illa meðferð á dýrum beri að tilkynna slíkt til MAST eða lög- reglu. Á Facebook-síðunni ber þó ekki öllum saman um að illa hafi farið um skepnurnar á Hlemmi: „Þær voru þarna í tvo tíma, ég sá þær nokkrum sinnum og þær voru bara í góðu lagi elsku fólk,“ segir í einni athugasemdinni. Samkvæmt reglugerð um vel- ferð sauðfjár og geitfjár ber að tilkynna fyrirhugaða notkun á dýrunum á viðburðum sem þess- um til MAST með tíu daga fyrir- vara. Óheimilt er að nota dýrin í umhverfi sem er þeim ekki eðlilegt fyrr en að lokinni úttekt MAST. Konráð Konráðsson, héraðsdýra- læknir suðvesturumdæmis, kannast ekki við að slíkt erindi hafi borist vegna „Geitardagsins“ og algengt að fólk sé ekki meðvitað um lög og reglugerðir um meðferð dýra og geri því ýmislegt í trássi við allt slíkt. Helga Marín telur einnig að van- þekking ráði oft för. „Fyrir okkur er þetta mikið tilfinningamál og hrikalegt að dýr séu notuð sem sýningargripir. Og það er svo sem skiljanlegt þar sem það er ekki mikið talað um þetta.“ thorarinn@frettabladid.is Misbauð meðferð á geitum á Hlemmi Vegan fólk er í tilfinningalegu uppnámi vegna tveggja geita sem voru til sýnis við Mathöllina á Hlemmi fyrr í vikunni. Ein úr þeirra hópi, Helga Marín Jónat- ansdóttir, segir dýrin vera vanvirt og ætlar að tilkynna uppátækið til MAST. Heitar tilfinningar blossuðu upp hjá grænmetisætum vegna sýningar á tveimur geitum við Hlemm. Fréttablaðið/ernir Það var fólk að klappa geitum fyrir utan og borða þær inni Helga Marín Jónatansdóttir grænmetisæta. náttúra Vel yfir hundrað skjálftar mældust í fjallinu Skjaldbreið um helgina. Að minnsta kosti 66 skjálft- ar mældust í fyrradag og um það bil 50 í gær. Í fyrrakvöld mældist stærsti skjálftinn 3,7 og í gærmorgun varð skjálfti að stærð 3,8. Fyrir þessa hrinu höfðu ekki mælst svo öflugir skjálftar í fjallinu frá árinu 1992. Veðurstofan segir engan gosóróa hafa fundist í þessari hrinu. Um sé að ræða hreina brotaskjálfta sem verða þegar jörð brestur vegna upp- safnaðrar spennu á flekamörkum. Ef um gosóróa væri að ræða þá væri um að ræða samfelldari skjálfta. – bo Meira en 100 skjálftar mældir LögregLumáL Móðir Klevis Sula, Albanans sem lést eftir hnífsstungu- árás í miðbænum fyrir rúmri viku, segir að hann hafi ætlað að hjálpa manninum sem grunaður er um að hafa ráðist á hann. Hún kom hingað til lands eftir árásina og gat verið hjá honum síðustu augnablik ævi hans. „Hann var yndislegur, Hann vildi hjálpa öllum. Vinum sínum og fjöl- skyldu. Hann talaði mjög vel um Íslendinga og kunni vel að meta fólkið hérna,“ segir Natasha Sula, um son sinn. Í fréttum Stöðvar 2 í gær kom fram að vitnisburður vinar Klevis, sem einnig var stunginn umrætt kvöld, er á þá leið að Klevis hafi tekið eftir manni sem var grátandi. Hann hafi boðið honum aðstoð en þá verið stunginn með hnífi. Ekki er talið að mennirnir hafi þekkst neitt fyrir árásina. – ngy Ætlaði að hjálpa manninum sem réðst á hann LögregLumáL Erlendur karlmaður var í lok síðustu viku úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. janúar næst- komandi grunaður um tilraun til manndráps. Þremur dögum áður hafði Hæstiréttur fellt úr gildi gæslu- varðhaldsúrskurð yfir manninum. Maðurinn er grunaður um að hafa í tvígang þrengt að öndunar- vegi konu á heimili þeirra með þeim afleiðingum að hún missti meðvitund. Í fyrra skiptið var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald á þeim grundvelli að hann gæti torveldað rannsókn málsins en Hæstiréttur féllst ekki á það. Nú er gæsluvarð- haldið með vísan til almannahags- muna. „Hann var boðaður í skýrslutöku á fimmtudag og handtekinn að nýju að henni lokinni,“ segir Guð- mundur Páll Jónsson lögreglufull- trúi. „Dómarinn tók sér sólarhrings umhugsunarfrest og féllst að því loknu á gæsluvarðhald.“ Verjandi mannsins, Sigurður Freyr Sigurðsson, segir að úrskurð- ur dómarans hafi verið kærður til Hæstaréttar. Niðurstaða mun liggja fyrir í þessari viku. – jóe Aftur í varðhald þvert á úrskurð Hæstaréttar 1 1 . D e s e m b e r 2 0 1 7 m á n u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 1 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 1 -1 6 3 4 1 E 7 1 -1 4 F 8 1 E 7 1 -1 3 B C 1 E 7 1 -1 2 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.