Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 11
Til úthlutunar úr sjóðnum árið 2018 eru um 55 milljónir króna. Kynntu þér málið á landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018. →→ → ERT ÞÚ AÐ RANNSAKA ORKU OG UMHVERFI? Náttúrulegir orkugjafar, ný nálgun og hugvitsamlegar lausnir móta orkuvinnslu framtíðarinnar. Við óskum eftir umsókn um til Orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar sem veitir styrki til rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála. Biðjið Jerúsalem friðar segir í Davíðssálmunum. Full ástæða er til að taka þessi orð alvarlega nú þegar Bandaríkin hafa tilkynnt að þau viðurkenni Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og muni flytja sendiráð sitt frá Tel Avív til borgarinnar helgu. Ákvörð- unin er mjög eldfim meðal Palest- ínumanna og arabaríkja almennt. Hún getur haft víðtæk áhrif til hins verra í Mið-Austurlöndum. Framtíð Jerúsalemborgar, sem er heilög í augum gyðinga, kristinna manna og múslima, verður ein- ungis ákvörðuð með samkomulagi Ísraels og Palestínumanna, en ekki einhliða ákvörðun Bandaríkjanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt áherslu á þetta og alþjóðasam- félagið almennt. Sú kenning Trumps um að sendi- ráðsákvörðunin muni flýta fyrir friðarferlinu milli Ísraels og Pal- estínu bendir til þess að hann hafi ekki hlustað á ráðgjafa sína í friðar- málum. Ákvörðunin mun hafa þveröfug áhrif, um það eru helstu sérfræðingar í málefnum Mið-Aust- urlanda sammála. Undirritaður starfaði í Jerúsalem og þekkir hið spennuþrungna andrúmsloft sem þar ríkir. Nánast má telja öruggt að ofbeldi muni aukast í borginni. Hryðjuverkaógnin mun auk þess fá byr undir báða vængi. Ákvörðunin getur spillt sam- skiptum Jórdaníu og Ísraels en Jórdanar hafa haft yfirumsjón með Musterishæðinni eða „Temple Mount“ í Jerúsalem. Það kæmi sér illa fyrir Ísrael enda svæðið mjög viðkvæmt fyrir átökum. Friðar- samkomulagið við Jórdaníu er þeim einnig mikilvægt en þeir eiga mikilvæga sameiginlega hagsmuni eins og í vatnsbúskap. Leyniþjónusta Ísraels varaði Bandaríkin við Í byrjun þessa árs varaði Jórdaníu- konungur Trump sérstaklega við því að flytja sendiráðið til Jerúsal- em. Auk þess hefur ísraelska leyni- þjónustan varað við því að ofbeldi myndi aukast og að ákvörðunin gæti leitt til þess að meðlimum í hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við ríki Íslams myndi fjölga. Ákvörðun Trumps kemur á slæmum tíma fyrir Palestínumenn jafnt sem Ísraela út frá viðskipta- legum forsendum. Mikill ferða- mannastraumur er að jafnaði til Betlehem í kringjum fæðingarhátíð Krists. Það er viðbúið að hann verði svipur hjá sjón þessi jólin og mikil óvissa er fram undan í þessum efnum. Bandaríkin hafa stóra sendiráðs- byggingu á besta stað í Tel Avív. Frá borginni er einungis 45 mínútna akstur til Jerúsalem. Auk þess hafa þeir ræðismannsskrifstofu í Jerúsal- em. Engin þörf er fyrir nýja sendi- ráðsbyggingu. Það er því auðvelt að álykta sem svo að ákvörðunin feli í sér ögrun. Framkvæmir fyrst og hugsar svo Trump sagði í ræðu sinni, þegar ákvörðunin var tilkynnt, að friðar- viðræður milli Ísrels og Palestínu hefðu engu skilað á undanförnum árum og hann ætlaði ekki að halda sig við gömlu formúluna í þeim efnum, því miður eru miklar líkur á því að nýja Trump-formúlan sé eitruð. Trump státaði sig einnig af því í ræðunni að hann gæti tekið ákvörðun sem forverar hans höfðu ekki haft hugrekki til að taka sl. 20 ár. Af þessu má sjá að ákvörðunin er greinilega til heimabrúks og að standa við vanhugsað kosninga- loforð. Enda nauðsynlegt að beina athyglinni frá óþægilegum málum heima fyrir eins og rannsókn alríkislögreglunnar á kosninga- baráttu Trumps. Það sem veldur hins vegar áhyggjum er að Trump er valdamesti maður heims, sem virðist framkvæma fyrst og hugsa svo. Það kann aldrei góðri lukku að stýra. Í þessu sambandi kemur Norður-Kórea upp í hugann og sú raunverulega hætta að Trump tæki afdrifaríka ákvörðun, án þess að hugsa um afleiðingarnar og beitti hervaldi gegn ríkinu með tilheyr- andi hörmungum. Utanríkismálanefnd Alþingis þarf að fylgjast vel með fram- vindu mála í Mið-Austurlöndum og á Kóreuskaga. Alvarleg átök á þessum slóðum munu hafa víðtæk áhrif um heim allan. Óveðursský yfir Jerúsalem Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins og starfaði í Jerú- salem fyrir Sam- einuðu þjóðirnar Utanríkismálanefnd Alþingis þarf að fylgjast vel með framvindu mála í Mið-Austurlöndum og á Kóreuskaga. Alvarleg átök á þessum slóðum munu hafa víðtæk áhrif um heim allan. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 1 1 . D e S e M B e R 2 0 1 7 1 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 1 -1 B 2 4 1 E 7 1 -1 9 E 8 1 E 7 1 -1 8 A C 1 E 7 1 -1 7 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.