Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 8
Það er ekki pláss
fyrir neina kyn-
þáttahyggju í samfélagi
okkar.
Stefan Löfven
formaður Jafn-
aðarflokkurinn
Svíþjóð
Jól2017
Jólabæklingur Smith &
Norland er kominn út.
Glæsilegar vörur á
sérstöku jólaverði.
Sjá nánar á sminor.is.BOSCH
Þvottavél
WAT 2869SSN, Serie 6
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor með
10 ára ábyrgð.
Fullt verð: 175.900 kr.
Jólaverð:
127.900 kr.
A
kg
BOSCH
Þurrkari
WTW 854S9SN, Serie 6
Sjálfhreinsandi rakaþéttir.
Gufuþétting, enginn barki. LED-
skjár. Snertihnappar. Krumpuvörn
við lok kerfis.
Fullt verð: 149.900 kr.
Jólaverð:
117.900 kr.
A
kg
BOSCH
Handryksuga
BHN 14090
Öflug 14,4 V. Hægt að hlaða,
engin snúra. Ofnbursti fylgir með.
Fullt verð: 12.900 kr.
Jólaverð:
9.900 kr.
Svíþjóð „Ég er mjög hugsandi yfir
árásinni á bænahúsið í Gautaborg
á laugardaginn og að það hafi verið
kynt undir þetta ofbeldi gegn gyð-
ingum á fundi mótmælenda í Málm-
ey,“ sagði Stefan Löfven, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, í yfirlýsingu í gær.
Ráðist var á bænahúsið með
bensínsprengjum á meðan ung-
mennasamkoma fór þar fram. Áður
höfðu farið fram hörð mótmæli
gegn gyðingum í Málmey, þar sem
um 200 manns voru samankomnir.
„Það er ekki pláss fyrir neitt gyð-
ingahatur í samfélagi okkar. Árásar-
mennirnir þurfa að svara fyrir þetta.
Öll lýðræðisöfl verða nú að vinna
saman í þágu opins og frjálslynds
samfélags, þar sem allir finna örygg-
istilfinningu,“ segir Stefan Löfven.
Leiðtogi gyðinga í Gautaborg,
Allan Stutzinsky, var viðstaddur
þegar árásin var gerð á bænahúsið.
„Við vissum vel að öryggi samfélags
gyðinga væri ógnað, en það er samt
áfall að þetta skuli gerast,“ segir
Stutzinsky.
Í síðustu viku viðurkenndi
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, Jerúsalem sem höfuðborg
Ísraels og flutti sendiráð Banda-
ríkjanna frá Tel Avív til Jerúsalem.
Ákvörðunin hefur valdið talsverðu
uppnámi í Mið-Austurlöndum og
annars staðar í samfélagi araba.
Stutzinsky segist ekki í vafa um
að árásin hafi verið gerð í beinum
tengslum við ákvörðun Bandaríkja-
forseta.
Öryggið hefur verið hert mjög
mikið í kringum bænahús gyðinga
víða í Svíþjóð eftir árásina um
helgina, að því er sænska ríkisút-
varpið (SVT) greinir frá. Lögreglan í
Málmey hefur líka aukið öryggisvið-
búnað sinn af ótta við að fleiri atvik
kunni að verða.
Lögreglan í Gautaborg gerði ítrek-
aða leit að hinum grímuklæddu
árásarmönnum sem köstuðu bens-
ínsprengjunni og á sunnudags-
morgun voru þrír handteknir.
Sænska ríkisútvarpið sagði óljóst
hvort fleiri hefðu komið að árásinni.
Vitni hafa þó sagt að þau hafi séð í
kringum 20 grímuklædda menn
með svokallaða molotovkokteila
sem hent var inn í garðinn við
bænahúsið.
jonhakon@frettabladid.is
Ráðist á bænahús gyðinga í Svíþjóð
„Það er ekki pláss fyrir gyðingahatur í samfélagi okkar,“ sagði forsætisráðherra Svíþjóðar. Ráðist var á bænahús gyðinga með bensín-
sprengjum um helgina. Atvikið er rakið til þeirrar ákvörðunar Bandaríkjaforseta að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.
Löggæsla hefur verið hert í kringum bænahús gyðinga víða í Svíþjóð. Gyðingar víðsvegar um heiminn upplifa ógn eftir atburði síðustu viku. FréttabLaðið/EPa
Segir Bandaríkin óvin Palestínumanna
Víða hafa brotist út átök vegna
ákvörðunar Donalds Trump
um að viðurkenna Jerúsalem
sem höfuðborg Ísraels. Breska
ríkisútvarpið, BBC, greindi til
dæmis frá því að mótmælendur
komu saman nærri sendiráði
Bandaríkjanna í Beirút í Líbanon
um helgina. Þeir voru vopnaðir
steinum og kveiktu elda á götum
nærri sendiráðinu. Öryggissveitir
beittu táragasi gegn mótmæl-
endum. Hanna Gharib, leiðtogi
Kommúnistaflokksins í Líbanon,
sagði að Bandaríkin væru óvinir
Palestínumanna.
Kjaramál Ekkert hefur þokast í átt
að samkomulagi í samningavið-
ræðum Flugvirkjafélags Íslands og
Icelandair, að sögn Óskars Einars-
sonar, formanns Flugvirkjafélags
Íslands. Flugvirkjar hjá Icelandair
hafa boðað til ótímabundins verk-
falls klukkan sex að morgni þann
17. desember næstkomandi, takist
ekki að semja fyrir þann tíma.
„Aðallega er svo vegna þess að við
höfum verið að ræða saman frá því
í enda júlí. Samningar voru lausir
31. ágúst og við höfum bara ekki
náð neinum árangri í samninga-
viðræðum,“ sagði Óskar í hádegis-
fréttum Bylgjunnar í gær.
Boðað var til fundar hjá ríkis-
sáttasemjara í fyrradag og segir
Óskar að enn sé langt í land. „Það
munar þó nokkru því að við teljum
okkur eiga inni launaleiðréttingu
sem er búið að fara þó nokkur vinna
í að finna út úr. Við höfum svo sem
unnið það í samvinnu við okkar
viðsemjendur og höfum komist að
ákveðinni lausn í því máli og þar
stendur það í dag.“
Verði af verkfallinu mun það hafa
í för með sér mikla röskun á flugi
segir í tilkynningu sem Icelandair
sendi til Kauphallarinnar.
– ae, ngy
Segir viðræður við Icelandair árangurslausar
Fullyrt að verkfall myndi hafa mikil áhrif á flug icelandair. FréttabLaðið/VaLLi
Samningar voru
lausir 31. ágúst og
við höfum bara ekki náð
neinum árangri.
Óskar Einarsson, formaður
Flugvirkjafélags Íslands
1 1 . d e S e m b e r 2 0 1 7 m á N U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
1
-3
8
C
4
1
E
7
1
-3
7
8
8
1
E
7
1
-3
6
4
C
1
E
7
1
-3
5
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K