Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 6
Við vinnum að því markmiði að varðveita menningararfinn með þessum hætti. Hallfríður Baldurs- dóttir, fagstjóri skylduskila hjá Landsbókasafni Ármúla 4-6, Reykjavík | Firðinum, Hafnarfirði 511 2777 | sala@betribilakaup.is Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu í 511 2777 2018 Volvo XC90 Hybrid T8 2017 Kia Optima Phev 2017 Mitsubishi Outlander Phev Hannaðu hann eins og þú vilt! AWD - Plug-In Hybrid Forpöntun Afhendingartími er 4-5 mánuðir Verð 7.390.000 kr. Glæsilegur og mjög vel útbúinn Harman/Kardon hljóðkerfi Plug-In Hybrid Hraðastillir með aðlögun Verð 3.790.000 kr. Fullkominn fyrir íslenskar aðstæður 4X4 - Plug In-Hybrid 360° myndarvélakerfi 2 tegundir í boði! Verð 4.430.000 kr. facebook.com/betribilakaup Menning Aukin prentun íslenskra bóka á erlendri grund veldur Lands- bókasafni nokkrum áhyggjum og gæti það haft í för með sér að erfið- ara verði að varðveita menningar- arf þjóðarinnar. Skylt er að skila til Landsbókasafns prentuðum bókum og einnig rafbókum, hljóðbókum, kvikmyndum og tónlist. Fréttablaðið sagði frá því fyrir skömmu að hin íslenska jólabók innbundin í kápu muni brátt heyra sögunni til. Oddi mun í upphafi nýs árs hætta prentun þessarar gerðar bóka og því mun öll harðspjalda bókaprentun flytjast úr landi. Í jóla- bókaflóðinu um þessi jól eru tvær af hverjum þremur bókum prentaðar erlendis, einungis þriðjungur er prentaður hér á landi. Hallfríður Baldursdóttir, fagstjóri skylduskila Landsbókasafns segir þetta nokkrum vandkvæðum bund- ið. „Hér áður fyrr þurftum við bara að hafa samband við prentsmiðj- urnar sem eru tiltölulega fáar hér á landi. Nú hins vegar færist skyldan yfir á útgefendur en þeir eru margir og mjög misjafnt hversu stórtækir þeir eru í útgáfu,“ segir Hallfríður. „Því er það mun meira verkefni fyrir okkur að vakta bókamarkaðinn svo allar bækur skili sér til okkar.“ Hallfríður segir skilaskyldu bóka skipta miklu máli fyrir varðveisl- una. „Við vinnum að því markmiði að varðveita menningararfinn með þessum hætti. Hingað kemur allt útgefið efni og því mikilvægt að allt berist til okkar til varðveislu kom- andi kynslóða,“ segir Hallfríður. Fyrstu lög um skylduskil bóka voru samþykkt árið 1886. Var það þá hluti af prentsmiðjulögum lands- ins og náðu eingöngu til prentaðs efnis. Árið 1949 voru lög um skila- skyldu gerð að sjálfstæðum lögum og umsjón færð til Landsbóka- safns frá lögreglustjórum landsins. Núgildandi lög um skylduskil voru samþykkt á Alþingi í tíð Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra. Er tilgangur þeirra að varðveita til frambúðar þann íslenska menn- ingararf sem skilaskyldan nær til. Landsbókasafni, Amtsbókasafni á Akureyri og Kvikmyndasafni Íslands er gert að varðveita skyldueintök. sveinn@frettabladid.is Torsóttara verður að varðveita íslenskt efni Landsbókasafni og Amtsbókasafni á Akureyri er skylt að varðveita skylduein- tök allrar prentútgáfu á Íslandi. Með erlendri prentun flytjast skylduskil frá prentsmiðjum til útgefenda sem margir vita ekki um mikilvægi þess. Á Landsbókasafni situr margur háskólaneminn og lærir fyrir próf í desembermánuði. Margir þeirra vita kannski ekki að bókasafnið varðveitir og getur útvegað allt prentað efni frá árinu 1886. FréttabLaðið/antonbrink MenntaMál Bæjarstjórn Akureyrar áformar að verja sextíu milljónum króna á næstu þremur árum til nútímavæðingar í leik- og grunn- skólum bæjarins. Er þetta gert til að styðja við uppfærslu á tæknibúnaði í skólum sem og að efla þekkingu fagfólks innan skólakerfisins. Á opnum kynningarfundi bæjar- stjórnar þann 29. nóvember síðast- liðinn kynnti bæjarstjórn þessa hugmynd sína fyrir næstu fjárhags- áætlun sem verður samþykkt síðar í þessum mánuði. Fræðsluráð fagnar þessari ákvörðun bæjarstjórnar og er vinna hafin innan hennar hvern- ig hægt sé að nýta fjármagnið sem best. „Við erum nú að fara yfir stöðuna. Skólarnir eru misjafnt á veg komnir með tækjabúnað og okkur skortir enn aukið fjármagn til að geta sinnt því. Einnig þurfum við að efla þekk- ingu kennara og fagfólks á tækninni og hvernig megi nýta hana sem best í kennslu,“ segir Dagbjört Pálsdóttir, formaður fræðsluráðs og bæjarfull- trúi. „Þetta er fagnaðarefni því að við viljum gera vel í þessum málum hér á Akureyri.“ Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, segir þetta stórt og mikilvægt skref. „Hvert lítið skref skiptir máli í hinum tæknivædda heimi. Þetta er mjög mikilvægt skref í þá átt að nútímavæða kennslu og nýta tæknina í skólastarfi,“ segir Soffía. „Markmiðið er að nútíma- væða skólastofuna. Við erum að stíga inn í fjórðu iðnbyltinguna með nýju tungumáli sem er for- ritun. Líklega verður það svo að yfir helmingur þeirra starfa sem til eru í dag verða ekki til í framtíð barna okkar. Því þurfum við að halda vel á spöðunum.“ – sa Sextíu milljónir í að nútímavæða skóla Framtíð barna okkar bíður annar veruleiki en okkar sem eldri erum að mati fræðslustjóra. FréttabLaðið/Pjetur 1 1 . d e s e M b e r 2 0 1 7 M á n U d a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 1 -3 D B 4 1 E 7 1 -3 C 7 8 1 E 7 1 -3 B 3 C 1 E 7 1 -3 A 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.