Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 32
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðríður I.
Ingimundardóttir
sem lést á Droplaugarstöðum
30. nóvember sl. verður jarðsungin
frá Háteigskirkju miðvikudaginn
13. desember klukkan 13.00.
Ingimundur Hjartarson
Anna María Hjartardóttir
Gunnlaugur B. Hjartarson Málfríður Gísladóttir
Alda Hjartardóttir Sveinn Muller
ömmubörn og langömmubörn.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Ágústs Jóhannssonar
húsgagnasmiðs,
Smárarima 26.
María Haraldsdóttir
Ólafía Ágústsdóttir
María Ágústsdóttir Guðjón Hauksson
Anna Ágústsdóttir Andrés Magnússon
og afabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúðarkveðjur og hlýhug við andlát
og útför foreldra okkar,
Erlu Eyjólfsdóttur og Bergs Jónssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar og
líknardeildar Landspítalans svo og hjúkrunarheimilisins
Sóltúns.
Jón Bergsson Guðrún Sederholm
Björn Bergsson
Kristjana Bergsdóttir Atli Árnason
Elín Bergsdóttir Sveinbjörn Jónsson
Arndís Bergsdóttir Björn Þorláksson
barnabörn og barnabarnabörn.Systir okkar,
Þórdís Gunnarsdóttir
sem lést á Borgarspítalanum
3. desember, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
12. desember kl. 15.
Systkini hinnar látnu,
Gunnar B. Gunnarsson
Pétur Gunnarsson
Sigrún Gunnarsdóttir
Ásdís Gunnarsdóttir
Þorgeir Gunnarsson
Sigurjón Gunnarsson
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Markús Jón Ingvason
lést föstudaginn 1. desember 2017.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 14. desember 2017
klukkan 15.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir.
Guðbjörg Sveinsdóttir
Sveinn Ingi Andrésson Auður Björk Gunnarsdóttir
Ingvi Þór Markússon
Iða Brá Kuforiji Markúsdóttir Ayodeji Gbeminiyi Kuforiji
Ragnheiður Ýr Markúsdóttir Helgi Freyr Helgason
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Sigurbjörg Hreiðarsdóttir
frá Garði,
lést á hjúkrunarheimilinu Lundi 4.
desember. Útförin fer fram
frá Hrunakirkju föstudaginn
15. desember kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Helga Ragnheiður Einarsdóttir Sigurdór Karlsson
Örn Einarsson Marit Einarsson
Björn Hreiðar Einarsson Margrét Óskarsdóttir
Hallgrímur Einarsson Elísabet Reynisdóttir
Eiður Örn Hrafnsson Hrönn Sigurðardóttir
1 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á N U d A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
1936 Georg 6. varð konungur Bretlands eftir afsögn eldri
bróður síns Játvarðs 8.
1941 Þýskaland og Ítalía sögðu Bandaríkjunum stríð á
hendur í síðari heimsstyrjöldinni.
1947 Auður Haralds rithöfundur fæddist.
1948 Gunnar Gunnarsson rithöfundur og Franzisca Antonia
Josephine Jörgensen, kona hans, gáfu íslenska ríkinu
Skriðuklaustur á Fljótsdalshéraði.
1972 Apollo 17 lendir á Tunglinu. Það er sjötta ferjan sem
lendir þar.
1975 Breski dráttarbáturinn Lloydsman sigldi tvisvar á
varðskipið Þór í mynni Seyðisfjarðar, um tvær sjómílur frá
landi. Íslendingar kærðu Breta til Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna vegna þessa.
2007 Tvær bílsprengjur urðu 31 manni að bana í Algeirs-
borg í Alsír.
Merkisatburðir
Taílenski veitingastaðurinn Menam á Selfossi fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Eigandi staðarins er Kristín Árnadóttir en hún hefur rekið Menam í
18 ár. Hún keypti staðinn af íslenskum
manni og taílenskri konu eftir að þau
höfðu átt staðinn fyrstu tvö árin. Fjór-
tán starfsmenn vinna hjá Kristínu, flestir
í hlutastarfi. Staðurinn nýtur mikilla
vinsælda, bæði hjá heimamönnum og
ferðamönnum.
„Ég sé ekki eftir mínútu í öll þessi
ár við rekstur staðarins, þetta hefur
verið frábær tími enda hef ég átt mína
tryggu og góðu viðskiptavini, svo ekki sé
minnst á starfsfólkið mitt sem hefur allt
verið frábært,“ segir Kristín. Hún segist
hafa tekið við staðnum blaut á bak við
eyrun, enda hafði hún enga þekkingu
eða reynslu á fyrirtækjarekstri þó hún
hafi unnið við þjónustustörf í Tryggva-
skála á Selfossi þar sem hún er fædd og
uppalin.
Kristín segir mjög vinsælt hjá taí-
lenskum hópum sem eru á ferð um
Ísland að koma á Menam til að borða.
„Já, ég er með taílenskan kokk sem veit
nákvæmlega hvað samlandar hans vilja
borða og hefur matinn sterkan. Hóp-
arnir eru mjög ánægðir með matinn
og hrósa okkur í hástert, það er gott að
finna það,“ segir Kristín. Þá segir hún
að hópar sem eru á Hótel Selfossi komi
mikið í mat á Menam, ásamt heima-
mönnum á Selfossi og næsta nágrenni.
„Ég elska að þjóna fólki og láta því líða
vel. Ég er meira að þessu af hugsjón en að
verða rík, sáttir og sælir viðskiptavinir er
það besta sem ég veit“, segir Kristín sem
er 67 ára og spáir nú í framtíðina. „Ég
finn að ég er að þreytast en ég er þó ekki
tilbúin að hætta alveg strax. Reksturinn
gengur ljómandi vel og ég sé ekki annað
að það sé bjart yfir Menam næstu árin og
áratugina. Hvort einhver tekur við kefl-
inu af mér á nýju ári eða á næstu árum
verður bara að koma í ljós“, segir eigandi
Menams brosandi. mhh@frettabladid.is
Elskar það að þjóna fólki
Kristín Árnadóttir tók við veitingastaðnum Menam blaut á bak við eyrun fyrir 18 árum.
Staðurinn fagnar 20 ára afmæli. Kristín segist elska að þjóna fólki og láta því líða vel.
Kristín sem er hér lengst til vinstri, ásamt hluta af starfsfólki sínu á Menam á Selfossi. Fréttablaðið/MagnúS Hlynur HreiðarSSon
Ég sé ekki eftir mínútu í
öll þessi ár við rekstur
staðarins, þetta hefur verið
frábær tími
auður Haralds, rithöfundur og blaðamaður, á afmæli í dag. 1
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
1
-2
9
F
4
1
E
7
1
-2
8
B
8
1
E
7
1
-2
7
7
C
1
E
7
1
-2
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K