Fréttablaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 30
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 16. umferðar 2017-18
West Ham - Chelsea 1-0
1-0 Marko Arnautovic (6.)
Swansea - West Brom 1-0
1-0 Wilfried Bony (81.)
C. Palace - Bournemouth 2-2
0-1 Jermain Defoe (10.), 1-1 Luka Mili-
vojevic, víti (41.), 2-1 Scott Dann (44.), 2-2
Jermain Defoe (45.).
Burnley - Watford 1-0
1-0 Scott Arfield (45.)
Huddersfield - Brighton 2-0
1-0 Steve Mounie (12.), 2-0 Mounie (43.)
Tottenham - Stoke 5-1
1-0 Sjálfsmark Ryan Shawcross (21.), 2-0
Heung-min Son (53.), 3-0 Harry Kane (54.),
4-0 Kane (65.), 5-0 Christian Eriksen (74.),
5-1 Ryan Shawcross (80.).
Newcastle - Leicester 2-3
1-0 Joselu (4.), 1-1 Riyad Mahrez (20.), 1-2
Demarai Gray (60.), 2-2 Dwight Gayle (73.),
2-3 Sjálfsmark Ayoze Pérez (86.)
S’ton - Arsenal 1-1
1-0 Charlie Austin (3.), 1-1 Olivier Giroud
(88.)
Liverpool - Everton 1-1
1-0 Mohamed Salah (42.) , 1-1 Wayne
Rooney, víti (77.).
Man. Utd. - Man. City 1-2
0-1 David Silva (43.), 1-1 Marcus Rashford
(45.), 1-2 Nicolás Otamendi (54.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man. City 16 15 1 0 48-11 46
Man. Utd 16 11 2 3 36-11 35
Chelsea 16 10 2 4 28-13 32
Liverpool 16 8 6 2 34-20 30
Arsenal 16 9 2 5 30-20 29
Tottenham 16 8 4 4 28-14 28
Burnley 16 8 4 4 15-12 28
Leicester 16 6 5 5 23-22 23
Watford 16 6 4 6 25-27 22
Everton 16 5 4 7 20-29 19
Southamp. 16 4 6 6 16-19 18
Huddersf. 16 5 3 8 11-26 18
Brighton 16 4 5 7 14-21 17
Bournem. 16 4 4 8 15-19 16
Stoke 16 4 4 8 19-35 16
Newcastle 16 4 3 9 16-25 15
West Brom 16 2 7 7 12-22 13
West Ham 16 3 4 9 14-32 13
Swansea 16 3 3 10 9-18 12
Cry. Palace 16 2 5 9 10-27 11
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn í 1-1
jafntefli Everton á móti
Liverpool á Anfield.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Spilar í Íslendingaslag á
móti Reading í kvöld.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Spilar í Íslendingaslag á
móti Cardiff í kvöld.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Sat allan tímann á
bekknum þegar Bristol
City vann útisigur á Sheff. Utd.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Lagði upp sigurmark
Burnley í 1-0 heimasigri á
Watford. Fimmta stoðsending hans
á tímabilinu.
Leikmaður helgarinnar
Huddersfield gerði Benin manninn Steve Mounie að
dýrasta leikmanni félagsins þegar liðið keypti hann frá
Montpellier fyrir 11,5 milljónir punda í sumar. Vænt-
ingarnar voru miklar og Mounie byrjaði vel og setti tvö
mörk í fyrsta leik á móti Crystal Palace en síðan ekki
söguna meir. Þegar kom að nýliðaslagnum á móti
Brighton um helgina þá var hann ekki búinn að
skora í 119 daga, níu leiki og í samtals 477 leik-
mínútur í ensku úrvalsdeildinni. Mounie bætti
hins vegar úr því og skoraði tvö mörk í fyrri
hálfleik í 2-0 sigri. Framherjinn var búinn
að glíma við meiðsli í hæl síðan í ágúst og
missti meðal annars úr fimm leiki. „Ég er
mjög ánægður með hann. Hann skoraði
tvö mörk sem er mjög mikilvægt fyrir
hann og mjög mikilvægt fyrir okkur,“ sagði
David Wagner, knattspyrnustjóri Hudders-
field, eftir leikinn. Mounie sýndi í mörkunum
að hann er markaskorari af guðs náð og þessi
frammi staða hans lofar góðu um framhaldið.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Manchester United
fékk tækifæri til
að halda smá lífi í
titilbaráttunni með
því að stoppa nágranna
sína í Manchester City en eftir að
þeir leyfði City að fara burtu með
öll þrjú stigin þá geta hin liðin við
toppinn farið að einbeita sér að
baráttunni um annað sætið.
Hvað kom á óvart?
Fyrsti sigur West
Ham undir stjórn
David Moyes kom
á móti meisturum
Chelsea. West Ham
liðið hefur verið að spila betur
að undanförnu og leikmenn
Moyes gerðu mjög vel í Lundúna-
slagnum þegar sigurmarkið kom
strax í upphafi leiksins.
Mestu vonbrigðin
Liverpool náði ekki
að landa sigri í Bítla-
borgarslagnum. Liver-
pool komst í 1-0 og
hafði lengst af mikla yfir-
burði á móti nágrönnum sínum
í Everton. Everton liðið pakkaði í
vörn og beið færis. Everton fékk
síðan ódýra vítaspyrnu þrettán
mínútum fyrir leikslok og fór
heim með eitt stig.
David Silva skorar hér fyrra mark Manchester City á móti Manchester United á Old Trafford í gær en David de Gea kemur engum vörnum við i marki Manchester United. United náði að jafna en það dugði ekki til og City fagnaði sigri. NORDiCPHOTOS/GETTy
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Sat allan tímann á bekkn-
um þegar Villa gerði markalaust
jafntefli við Millwall.
fótbolti Pep Guardiola er búinn að
setja saman enn eitt yfirburðaliðið
í fótboltanum. Þetta byrjaði allt
saman hjá honum með Barcelona
á Spáni, svo færði hann sig yfir til
Bayern München í Þýskalandi og nú
hefur hann framkvæmt töfra sína
hjá City-liðinu í Manchester-borg.
Á öllum vígstöðvum hefur hann
sett saman lið sem hefur stungið af
í deildinni og nú er fyrsti titillinn í
augsýn með Manchester City.
City liðið er komið með aðra
höndina á enska meistaratitilinn
eftir fjórtánda deildarsigurinn í röð
á Old Trafford í gær. Liðið hefur ell-
efu stigum meira en United og það
eru enn þrettán dagar til jóla.
Guardiola hefur gerbreytt leikstíl
Manchester City og frískað mikið
upp á liðið. Það tók hann eitt tíma-
bil að fá liðið til að ná alvöru tökum
á leikstílnum hans en eftir að allir
leikmennirnir hans voru farnir að
hlaupa í takt þá virðist ekkert lið
eiga lengur möguleika í City.
Við getum spilað svona bolta
„Fólk sagði að það gengi aldrei upp
að spila eins og Barcelona í Eng-
landi en það er mögulegt og við
erum að gera það. Við getum spilað
svona fótbolta í Englandi,“ sagði
Pep Guardiola sigurreifur eftir leik-
inn í gær þar City vann Manchester
slaginn 2-1.
City vann engan titil á hans fyrsta
tímabili með liðið og knattspyrnu-
spekingarnir voru farnir að tala um
að Guardiola stíllinn skilaði ekki
sama árangri í enska boltanum og
Hægt að spila eins og Barcelona í enska boltanum
Lærisveinar Pep Guardiola í Manchester City eru komnir með ellefu stiga forystu í toppsætinu í ensku úrvals- deildinni eftir 2-1 sigur á nágrönnum sínum í United
í toppslagnum á Old Trafford í gær . City vann sinn fjórtánda deildarleik í röð og jafnaði met Arsenal frá 2002. Ekki fyrsta liðið undir stjórn Guaridola sem stingur af.
annars staðar. Annað hefur komið
á daginn á þessari leiktíð.
„Ég vissi það líka á síðasta tíma-
bili og ég hef alltaf haldið trú minni
á það. Allir geta spilað sinn fótbolta
og þess vegna er fótbolti svona falleg
íþrótt. Ég er mjög ánægður með að
fara bæði á Stamford Bridge og
Old Trafford og vinna með þessum
hætti,“ sagði Guardiola.
City hefur þegar unnið útileiki
sína á móti Manchester United og
Chelsea og liðið hefur unnið heima-
leikina á móti Liverpool og Arsenal
með samtals sjö mörkum. Það eru
bara Gylfi Þór Sigurðsson og félagar
sem hafa náð að taka stig af City í
fyrstu sextán umferðunum. City og
Everton gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta
leik Gylfa 21. ágúst en síðan hefur
Manchester City ekki tapað einu
einasta stigi í deildinni.
Jöfnuðu met Arsenal
Aðeins eitt annað lið hefur náð að
vinna fjórtán leiki í röð í efstu deild
á Englandi en Arsenal náði því frá
febrúar til ágúst 2002. City er því
fyrsta liðið sem nær því á einu og
sama tímabilinu.
1 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á N U d A G U r14 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
1
-1
B
2
4
1
E
7
1
-1
9
E
8
1
E
7
1
-1
8
A
C
1
E
7
1
-1
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K