Fréttablaðið - 11.12.2017, Side 11
Til úthlutunar úr sjóðnum árið
2018 eru um 55 milljónir króna.
Kynntu þér málið á
landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018.
→→
→
ERT ÞÚ AÐ RANNSAKA
ORKU OG UMHVERFI?
Náttúrulegir orkugjafar, ný nálgun og
hugvitsamlegar lausnir móta orkuvinnslu
framtíðarinnar. Við óskum eftir umsókn um
til Orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar
sem veitir styrki til rannsókna á sviði
umhverfis- og orkumála.
Biðjið Jerúsalem friðar segir í Davíðssálmunum. Full ástæða er til að taka þessi
orð alvarlega nú þegar Bandaríkin
hafa tilkynnt að þau viðurkenni
Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels
og muni flytja sendiráð sitt frá Tel
Avív til borgarinnar helgu. Ákvörð-
unin er mjög eldfim meðal Palest-
ínumanna og arabaríkja almennt.
Hún getur haft víðtæk áhrif til
hins verra í Mið-Austurlöndum.
Framtíð Jerúsalemborgar, sem er
heilög í augum gyðinga, kristinna
manna og múslima, verður ein-
ungis ákvörðuð með samkomulagi
Ísraels og Palestínumanna, en ekki
einhliða ákvörðun Bandaríkjanna.
Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt
áherslu á þetta og alþjóðasam-
félagið almennt.
Sú kenning Trumps um að sendi-
ráðsákvörðunin muni flýta fyrir
friðarferlinu milli Ísraels og Pal-
estínu bendir til þess að hann hafi
ekki hlustað á ráðgjafa sína í friðar-
málum. Ákvörðunin mun hafa
þveröfug áhrif, um það eru helstu
sérfræðingar í málefnum Mið-Aust-
urlanda sammála. Undirritaður
starfaði í Jerúsalem og þekkir hið
spennuþrungna andrúmsloft sem
þar ríkir. Nánast má telja öruggt
að ofbeldi muni aukast í borginni.
Hryðjuverkaógnin mun auk þess fá
byr undir báða vængi.
Ákvörðunin getur spillt sam-
skiptum Jórdaníu og Ísraels en
Jórdanar hafa haft yfirumsjón
með Musterishæðinni eða „Temple
Mount“ í Jerúsalem. Það kæmi sér
illa fyrir Ísrael enda svæðið mjög
viðkvæmt fyrir átökum. Friðar-
samkomulagið við Jórdaníu er
þeim einnig mikilvægt en þeir eiga
mikilvæga sameiginlega hagsmuni
eins og í vatnsbúskap.
Leyniþjónusta Ísraels
varaði Bandaríkin við
Í byrjun þessa árs varaði Jórdaníu-
konungur Trump sérstaklega við
því að flytja sendiráðið til Jerúsal-
em. Auk þess hefur ísraelska leyni-
þjónustan varað við því að ofbeldi
myndi aukast og að ákvörðunin
gæti leitt til þess að meðlimum
í hryðjuverkasamtökunum sem
kenna sig við ríki Íslams myndi
fjölga.
Ákvörðun Trumps kemur á
slæmum tíma fyrir Palestínumenn
jafnt sem Ísraela út frá viðskipta-
legum forsendum. Mikill ferða-
mannastraumur er að jafnaði til
Betlehem í kringjum fæðingarhátíð
Krists. Það er viðbúið að hann verði
svipur hjá sjón þessi jólin og mikil
óvissa er fram undan í þessum
efnum.
Bandaríkin hafa stóra sendiráðs-
byggingu á besta stað í Tel Avív. Frá
borginni er einungis 45 mínútna
akstur til Jerúsalem. Auk þess hafa
þeir ræðismannsskrifstofu í Jerúsal-
em. Engin þörf er fyrir nýja sendi-
ráðsbyggingu. Það er því auðvelt að
álykta sem svo að ákvörðunin feli í
sér ögrun.
Framkvæmir fyrst og hugsar svo
Trump sagði í ræðu sinni, þegar
ákvörðunin var tilkynnt, að friðar-
viðræður milli Ísrels og Palestínu
hefðu engu skilað á undanförnum
árum og hann ætlaði ekki að halda
sig við gömlu formúluna í þeim
efnum, því miður eru miklar líkur
á því að nýja Trump-formúlan sé
eitruð. Trump státaði sig einnig af
því í ræðunni að hann gæti tekið
ákvörðun sem forverar hans höfðu
ekki haft hugrekki til að taka sl. 20
ár. Af þessu má sjá að ákvörðunin
er greinilega til heimabrúks og að
standa við vanhugsað kosninga-
loforð. Enda nauðsynlegt að beina
athyglinni frá óþægilegum málum
heima fyrir eins og rannsókn
alríkislögreglunnar á kosninga-
baráttu Trumps. Það sem veldur
hins vegar áhyggjum er að Trump
er valdamesti maður heims, sem
virðist framkvæma fyrst og hugsa
svo. Það kann aldrei góðri lukku
að stýra. Í þessu sambandi kemur
Norður-Kórea upp í hugann og sú
raunverulega hætta að Trump tæki
afdrifaríka ákvörðun, án þess að
hugsa um afleiðingarnar og beitti
hervaldi gegn ríkinu með tilheyr-
andi hörmungum.
Utanríkismálanefnd Alþingis
þarf að fylgjast vel með fram-
vindu mála í Mið-Austurlöndum
og á Kóreuskaga. Alvarleg átök á
þessum slóðum munu hafa víðtæk
áhrif um heim allan.
Óveðursský yfir Jerúsalem
Birgir
Þórarinsson
þingmaður
Miðflokksins og
starfaði í Jerú-
salem fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar
Utanríkismálanefnd
Alþingis þarf að fylgjast
vel með framvindu mála
í Mið-Austurlöndum og á
Kóreuskaga. Alvarleg átök á
þessum slóðum munu hafa
víðtæk áhrif um heim allan.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 1 1 . D e S e M B e R 2 0 1 7
1
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
1
-1
B
2
4
1
E
7
1
-1
9
E
8
1
E
7
1
-1
8
A
C
1
E
7
1
-1
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K