Fréttablaðið - 11.12.2017, Síða 12

Fréttablaðið - 11.12.2017, Síða 12
Alltaf öruggt start fyrir kuldann í vetur. 1 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á N U d A G U r12 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð sport LyFtiNGAr Á árinu 2017 hefur Þur­ íður Erla Helgadóttir náð að komast í hóp tuttugu bestu í heiminum í tveimur íþróttagreinum. Hún varð í tíunda sæti á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum í byrjun desember og hafði áður náð átjánda sæti á heimsleikunum í krossfit í ágúst. „Þetta er pottþétt mitt besta ár,“ segir Þuríður Erla Helgadóttir við Fréttablaðið. Hún tekur ólympísku lyftingarnar með krossfitinu og hefur staðið sig mjög vel á báðum stöðum. Þuríður Erla bætti þrjú Íslandsmet á heimsmeistaramótinu í Anaheim og náði ekki bara tíunda sætinu í 58 kílóa flokki heldur varð hún í þriðja sæti meðal evrópsku stelpnanna. Fullkomið mót „Ég bjóst alls ekki við því að komast inn á topp tíu og þetta mót er það sem hefur komið mér mest á óvart á þessu ári,“ sagði Þuríður Erla sem var í skýjunum yfir árangrinum. „Þetta var í rauninni fullkomið mót. Ég hefði ekki getað beðið um neitt betra,“ segir Þuríður og hún var ánægð með að fá að keppa fyrir hönd Íslands á svona móti. „Það er alltaf geggjað og mikill heiður enda flott mót,“ sagði Þuríður. Árið 2017 hefur gengið vel hjá henni. Hún vann Reykjavíkurleik­ ana í ársbyrjun og náði sínum besta árangri á ferlinum á heimsleikunum í ágúst. Hún náði síðan tíunda sæt­ inu á HM. Prófaði að æfa bara „Ég er mjög sátt. Það er alltaf hægt að finna eitthvað sem gekk ekki upp,“ segir Þuríður en hún hagaði hlut­ unum aðeins öðruvísi á árinu. „Ég prófaði núna að vera bara að æfa. Eftir heimsleikana í fyrra prófaði ég að vera bara að æfa og fékk ársleyfi frá skóla. Það byrjaði rosalega vel en svo finnst mér mjög fínt að vera í skóla líka. Þá er maður ekki bara að hugsa um að æfa. Það er svo geggjað að koma á æfingu þegar maður er búinn að vera í skólanum,“ segir Þur­ íður sem æfði tvisvar sinnum á dag fimm sinnum í viku á milli heims­ leikanna 2016 og 2017. „Krossfitið er númer eitt, tvö og þrjú á hjá mér en þar er mjög mikið af lyftingum þannig að maður er í ólympískum lyftingum fjórum sinnum í viku,“ segir Þuríður og hún var ekki alveg nógu sátt með átjánda sætið á heimsleikunum þrátt fyrir að ná sínum besta árangri á ferlinum. „Ég fékk kannski ekki alveg niður­ stöðurnar sem ég bjóst við og þá aðallega á heimsleikunum,“ segir Þuríður sem hækkaði sig um eitt sæti frá árinu á undan. „Þetta er nátt­ Má alveg fá sér jólasmákökur Það er nóg að gera hjá Þuríði Erlu Helgadóttur með fram prófunum í háskólanum. Hún flaug í morgun út til Dubai til að taka þátt í mjög sterku krossfit móti og tók námsbækurnar með. Þuríður hefur átt frábært ár og hápunkturinn varð þegar hún varð tíunda á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum á dögunum. Þuríður Erla Helgadóttir sést hér í Sporthúsinu í gær en hún keppir í Dubai í þessari viku. Fréttablaðið/StEFán úrulega heimsmeistaramót þannig að maður getur ekki mikið kvartað,“ segir Þuríður. „Ég kom mér sjúklega mikið á óvart á heimsleikunum 2016 í hverri þrautinni á fætur annarri. Mér gekk betur en ég bjóst við og ég hugsaði að það þyrfti ekkert mikið til að ég gæti verið í toppbaráttu. Ég ákvað að leggja allt í sölurnar en svo gekk ekki jafnvel á þessum heimsleikum. Ég varð fyrir vonbrigðum,“ segir Þur­ íður sem náði samt að hækka sig um eitt sæti. „Ég læri mikið á hverju móti og það á bara meira eftir að koma,“ segir Þuríður og áhuginn minnkar ekkert. „Það er magnað. Maður klárar viku keppni sem tekur mikið frá manni og um leið og hún er búin þá er maður byrjaður að hugsa um næsta mót,“ segir Þuríður en hvar finnur hún orkuna? Miklar þyngdir á stönginni „Það er ekkert erfitt. Auðvitað þarf maður að borða hollan mat, sofa og gera allt sem maður getur til að halda sér í standi. Þetta er svo gaman og svo fjölbreytt. Þú getur verið að gera svo mikið því þú ert að synda, hlaupa, hjóla og lyfta,“ segir Þur­ íður. Hún keppir í 58 kíló flokki en var að lyfta 86 kílóum í snörun og 108 kílóum í jafnhendingu á heims­ meistaramótinu. Þetta eru því engar smáþyngdir. „Maður þarf smá keppnisskap í þetta. Það gerist alveg að ég hætti við lyftu en svo lærir maður. Ef maður ætlar sér ekki að lyfta þessu þá lyftir maður þessu ekki. Ég er búin að ákveða það að ég ætli að gera þetta,“ sagði Þuríður. Það er nóg að gera hjá þessari 26 ára gömlu afrekskonu því auk þess að vera í miðjum jólaprófum í háskólanum þá er hún að leiðinni til Persaflóans í dag til að keppa á sterku krossfit móti. námsbækurnar með til Dubai „Ég er ekki búin með prófin og eigin­ lega að fara út á milli prófa. Ég tek námsbækurnar með út. Það er fínt að geta hugsað um eitthvað annað inn á milli,“ segir Þuríður sem er í sjúkraþjálfun og segir námið hjálpa henni í íþróttunum. „Ég læri fullt inn á líkamann í krossfitinu og það er fínt að geta tengt þetta saman,“ segir Þuríður. Hún segist hafa verið mjög heppin með meiðsli síðustu ár. „Ég var í fótbolta þegar ég var yngri og þá var mér alltaf illt í hnjánum og ökklunum. Svo eftir að ég byrjaði að lyfta af einhverju viti þá er allt í góðu,“ segir Þuríður. Hún þarf að hugsa mikið um mat­ aræðið sitt en hvernig er þá jólamán­ uðurinn hjá henni. „Ég er alveg að leyfa mér, bara ekki að borða smá­ kökur allan daginn. Það má alveg borða nokkrar. Það er bara betra og gefur manni orku,“ segir Þuríður létt. „Mataræðið er stór hluti af þessu. Ég borða eins hollt og ég get og borða mikið. Það er það helsta sem ég þarf að hugsa um,“ segir Þuríður. Hana dreymir líka enn um að keppa á Ólympíuleikunum. „Ég held bara áfram að reyna að bæta mig og vona það besta,“ segir Þuríður að lokum. ooj@frettabladid.is FyRStA tAPið HjÁ BjARKA Bjarki Þór Pálsson tapaði létt­ vigtartitlinum til Stephens O’Keefe í aðalbardaga FightStar Champ­ ionship 13 bardagakvöldsins í London um helgina. Írinn náði Bjarka í gólfið og lét höggin dynja á honum þar til dómarinn stöðvaði leikinn eftir rúma mínútu og dæmdi O’Keefe sigurinn og tók sá írski léttvigtarmeistaratitilinn. Þetta var fyrsti ósigur Bjarka í atvinnumannabardaga. NæR KR LOKSiNS Að viNNA BiKARLEiK Í LjÓNAgRyFjuNNi? KR­ingar heimsækja Njarðvík í kvöld í átta liða úrslitum Malt­ bikarsins í körfubolta en KR hefur unnið bikarkeppnina undanfarin tvö ár. KR­liðið hefur nú unnið tólf bikarleiki í röð eða alla bikar­ leiki síðan liðið tapaði í bikarúr­ slitaleiknum á móti Stjörnunni í febrúar 2015. KR­liðinu hefur hins vegar gengið afar illa í bikarleikjum í Njarðvík en vesturbæingar hafa tapað fjórum bikar­ leikjum í röð í Ljóna­ gryfjunni eða öllum bikarleikjum sínum í hús­ inu í 17 ár eða frá síðasta bikarsigri sínum þar 10. desember 2000. SKORAði 43 Stig Í BANdARÍSKA HÁSKÓLABOLtANuM Íslenski landsliðsbakvörðurinn Elvar Friðriksson fór á kostum með liði Barry í banda­ ríska háskóla­ körfuboltanum um helgina. Elvar skoraði 43 stig í 107­103 Barry á tampa í tvífram­ lengdum leik og var hann aðeins fimm stigum frá því að jafna skóla­ metið. Elvar hitti meðal annars úr 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum og setti niður 14 af 15 vítaskotum. Elvar var einnig með 3 stoð­ sendingar og 3 stolna bolta á þeim 45 mínútum sem hann spilaði í leiknum. Elvar er með 21,5 stig og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik á tímabilinu. SNORRi Í 29. Sæti Í SviSS Snorri Einarsson endaði í 29. sæti í keppni í 15 kílómetra skíðagöngu með frjálsri aðferð á heimsbikar­ móti í davos í Sviss í gær. Snorri var skráður inn sem 83. sterkasti keppandinn í mótinu út frá heims­ lista FiS en heimslistinn hefur ekki verið uppfærður neitt síðan heims­ bikarmótaröðin hófst. Snorri náði hæst í 12. sæti í keppninni í gær en hún er gríðarlega spennandi þar sem mjög lítið skildi á milli kepp­ enda. Að lokum endaði Snorri í 29. sæti sem er stórkostlegur árangur og skilar honum tveimur heimsbikarstigum en einungis 30 efstu fá heimsbikar­ stig. Eftir keppni helgarinnar er Snorri í 57. sæti í heildar­ stiga­ keppni heims­ bikarsins og í 44. sæti í keppni í lengri vega­ lengdum. 1 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 1 -2 0 1 4 1 E 7 1 -1 E D 8 1 E 7 1 -1 D 9 C 1 E 7 1 -1 C 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.