Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 4
MJÓLKURFRAMLEIÐSLA
Lífræn mjólkur-
framleiðsla í sókn
ég hef alltaf fyllt kvótann sem er
aðalmarkmiðið. Fóðurgildið
hefur verið mjög gott almennt
myndi ég segja, enda tún
snemma slegin. Allt hey er rúll-
að hér á Neðra-Hálsi."
BIOBÚ FRAMLEIÐIR OG
SELUR JÓGÚRT
Fyrirtækið Biobú ehf. hefur
starfað frá árinu 2003 og fram-
leitt lífræna jógúrt og selt í
verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu og víðar. Markmiðið með
stofnun fyrirtækisins var og er
að efla markað fyrir lífrænar
mjólkurafurðir með kynningum
og upplýsingum fyrir neytendur
og með framleiðslu á hágæða
mjólkurafurðum. (júní 2003 var
fyrsta varan sett á markað sem
Þeir sem framleiða iífræna mjólk eiga kost á 25% hærra afurða-
stöðvaverði, segir Kristján Oddsson á Neðra-Háisi í Kjós
Mikil og hröð þróun hefur
orðið síðustu ár í sölu og
framleiðslu á lífrænum mat-
vælum. Víða erlendis er iíf-
ræni geirinn sá hluti land-
búnaðarins sem vex hvað
hraðast. Neytendur kunna
að meta matvörur þar sem
uppruninn er þekktur, fram-
leiðslan án ýmissa hjálpar-
efna og skepnurnar í
náttúrulegu umhverfi. Hér
á landi eru nokkrir bændur
sem hafa sérhæft sig í
framleiðslu lífrænna afurða
og eitt þeirra búa er Neðri-
Háls í Kjós. Þar er framleidd
lífræn mjólk eftir ströng-
ustu reglum og hún seld
sem slík eða sem jógúrt
undir vörumerkinu „Biobú".
Eftirspurnin hefur farið
vaxandi og er nú svo komið
að þessa mjólk vantar á
markaðinn. Kristján Odds-
son og Dora Ruf, sem eru
eigendur Biobú ehf, aug-
lýstu fyrir skömmu eftir
samstarfsaðilum til þess að
framleiða lífræna mjólk til
jógúrtgerðar.
Freyr fór á stúfana og
ræddi við Kristján um eðli
og gang fyrirtækisins og
búskapinn á Neðra-Hálsi.
NEÐRI-HÁLS
Á Neðra-Hálsi er búið með 32
mjólkandi kýr að jafnaði og
geldneyti eru um 40 á öllum
aldri. Túnstærð er um 50 ha.
Kristján fór í Bændaskólann
á Hvanneyri og er með bú-
fræðingspróf þaðan. Árið 1978
hóf hann rekstur í félagi við
föður sinn en við fráfall hans
árið 1982 tók Kristján alfarið við
búinu. Um svipað leyti kynntist
hann konu sinni, Doru Ruf, og
þau hófu fljótlega sameigin-
legan búskap.
Dora Ruf og Kristján Oddsson búa á Neðra-Hálsi í Kjós og eru
'eigendur fyrirtækisins Biobú ehf. sem framleiðir lífræna jógúrt.
Hvenær ákváðuð þið að fara
yfir í lífrænan búskap?
„Ég hef lengi haft þá til-
finningu að framleiða eigi land-
búnaðarvörur með sem náttúru-
legustum hætti. Fljótlega komst
ég að því að fleiri voru á sömu
skoðun og voru t.d. að setja
hornin í að notaður væri til-
búinn áburður. Kveikjan að því
að ég fór að íhuga af alvöru að
fara út í lífrænan búskap ein-
göngu, var árið 1984 þegar
læknir nokkur ráðlagði mér
með mataræði vegna exems
sem ég þjáðist af. Ég fór að
hans ráðleggingum sem voru
að einfalda mataræðið, t.d.
minnka neyslu á unnum mat og
jafnvel borða sem mest hrátt.
Skemmst er frá því að segja að
ég sleppti því versta úr matar-
æðinu og losaði mig þannig við
exemið sem engin lyf höfðu
dugað á. Ég fer ennþá eftir
þessum ráðleggingum þó ég
drekki nú enn kaffi, en ég hef
það lífrænt!
Aðlögun túna hófst 1987 fyrir
lífræna ræktun. Við byrjuðum á
því að framleiða gulrætur og
selja sem lífrænt árið 1989. Við
höfum alltaf haft gaman að
grænmetisræktun en lögðum
hana af þegar við fórum út í
framleiðslu á lífrænu jógúrtinni.
Við ræktum þó enn fyrir
heimilið að sjálfsögðu. (kjölfarið
einbeittum við okkur eingöngu
að mjólkinni enda hefur verið
nóg að gera í henni. Vottun á
mjólk og grænmeti fengum við
1996 en síðasta áburðarkornið
var notað hér árið 1994. ( dag
notumst við eingöngu við
búfjáráburð og fiskimjöl og
slægjan er alveg þokkaleg."
Hvernig er fóðurgildið í þessu
heyi?
„Það hefur nú yfirleitt verið
nokkuð gott. Reyndar hef ég
verið linur við að senda sýni og
þau stundum dagað uppi f
frystikistunni. Kýrnar hafa verið
að mjólka alveg þokkalega og
FREYR 09 2005