Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 9

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 9
BJARGRÁÐASJÓÐUR Sjóðurinn er mikil- væg samtrygging fyrir bændur Guðbjartur Gunnarsson, stjórnarmaður í Bjargráðasjóði: „Málefni sjóðsins skipta máli fyrir allar búgreinar og engin ein ákveður örlög sjóðsins." Guðbjartur Gunnarsson hef- ur verið stjórnarmaður í Bjargráðasjóði frá árinu 1996 og er annar fulltrúa Bændasamtakanna í sjóðn- um. Guðbjartur býr á Hjarð- arfelli á Snaefellsnesi og rekur blandað bú með sauðfé og kýr. Hinn fulltrúi samtakanna er Hörður Harðarson, svínabóndi í Laxárdal. Störf stjórnar- manna felast helst í því að afgreiða umsóknir um tjónabætur en allar beiðnir fara um hendur þeirra. Stjórnin fundar 5-7 sinnum á ári en fundunum hefur heldur fækkað nú seinni ár- in í takt við færri tjón. „Bótareglurnar eru unnar í sam- ræmi við lög sjóðsins og í sam- ræmi við reglur sem stjórnin setur. Reglur hverrar búgreinar eru almennt settar í samvinnu við viðkomandi búgreinasamtök og þær eru yfirleitt endur- skoðaðar árlega. Búgreinasam- tökum gefst þannig kostur á að endurskoða þær reglur sem um greinina gilda og koma með til- lögur um úrbætur ef þarf," segir Guðbjartur. Hefur tilgangur sjóðsins og eðli tjóna breyst á undanförnum ár- um? „[ hinum svokölluðu 'kjarn- fóðurgreinum' hefur margt breyst á síðustu árum. Búin eru að stækka og þeim hefur fækkað. Ef það verða tjón á þessum búum þá verða þau miklu stærri en almennt er ( sauðfjár- eða kúabúskap. Annars eru stærðirnar afstæðar og t.d. getur lambalát á sauðfjárbúi valdið miklu tjóni sem getur hlut- fallslega komið jafn illa við búreksturinn og hjá svínabónd- anum sem verður fyrir tjóni þó krónutalan sé lægri. Tölurnar eru stærri f kjarnfóðurgreinunum en þar er veltan margfalt meiri. Það má segja að miðað við núverandi reglur þá ræður sjóðurinn, m.v. inneign viðkomandi búgreinar, ekki við mjög stór áföll. Ef stóru búgreinarnar ætla að tryggja sig upp í topp þá þurfa þær í raun að kaupa sér viðbótar- tryggingar." ENGINN BÓNDI ER UNDANSKILINN Guðbjartur telur að einn megin- kostur sjóðsins fyrir landbúnað- inn sé sá að þarna hafi bændur eins konar samtryggingu. „Allir bændur eiga rétt á að fá greidd búfjártjón svo framarlega sem það er í samræmi við reglur sjóðsins og greitt hafi verið búnaðargjald af framleiðslunni fram að tjóni. Ef sjóðurinn yrði lagður af þá myndi alltaf ein- hver hluti ekki tryggja sig fyrir tjónum - með sameiginlegum sjóði er enginn undanskilinn." BÆNDUR NJÓTA GÓÐS AF ALMENNU DEILDINNI „Almenna deildin hefur oft á tíð- um hjálpað verulega í kalárum. Þann tíma sem ég hef verið í stjórn þá hafa umtalsverðir fjár- munir farið til bænda í gegnum a-deildina. Ég get nefnt dæmi um kalárin 1995, 1997 og 1999. Kalbætur hafa numið á annað hundrað milljóna króna á þessum árum. Framlög inn í a-deildina byggjast á innborgunum sveitar- félaganna og ríkisins. Auk þess stendur a-deildin straum af kostnaði við rekstur sjóðsins en á móti kemur að allir vextir af inni- stæðum Bjargráðasjóðs falla inn í a-deildina." UPPSÖFNUN MUN AÐ ÖLL- UM LlKINDUM HÆTTA Tjónum hefur fækkað nokkuð á siðustu árum og í takt við það hefur sá hluti búnaðargjaldsins, sem rennur til Bjargráðasjóðs, lækkað. „Inngreiðslur sumra greina, t.d. í sauðfjárbúskap, eru lægri en útborgaðar tjóna- bætur hafa verið á undan- förnum árum. Ég hygg að sú uppsöfnun, sem orðið hefur hjá kúabændum, muni ekki halda áfram. Það er í fyrsta lagi vegna þess að inngreiðslurnar eru minni nú en áður og í öðru lagi voru reglurnar rýmkaðar svo að með sjóðnum væri hægt að bæta hærra hlutfall tjóna í bú- greininni. Alla tíð hefur verið haft samráð við búgreinafélögin um fyrirkomulag og Landssam- band kúabænda hefur unnið með okkur í þeim efnum eins og önnur félög." Telur þú að hægt sé að bjóða sömu tjónavernd og Bjargráða- sjóður býður upp á á almennum tryggingamarkaði? „Ég sé ekki fyrir mér að það sé hægt að gera með góðu móti með kaltjónin. Vera má að hægt sé að tryggja vissa þætti í búfjár- tjónum en ég hef ekki trú á því að það myndi reynast bændum hagkvæmara. Þeir sem hafa lesið (slandssöguna í gegnum aldirnar vita að við getum átt von á ýmsu hér á Islandi, t.d. eldgosum og tjónum samfara því. Bjargráða- sjóður mun ekki einn geta bætt slík tjón en þar er þó leið fyrir ríkið til að koma að málum og ákveðin þekking við að meta tjón." Hver er framtíð sjóðsins? „Bændur þurfa að ná lendingu um tilgang og starf- semi Bjargráðasjóðs. Málefni sjóðsins skipta máli fyrir allar bú- greinar og engin ein ákveður ör- lög sjóðsins. Ég er ekki viss um að það yrði til bóta að leggja sjóðinn niður í þeirri mynd sem hann er í. Sumir segja að leggja ætti niður búnaðardeildina en þá er líka almenna deildin farin. Það viðhorf hefur komið fram hjá forsvarsmönnum sveitarfélag- anna að það þjóni engum tilgangi að reka almennu deildina ef búnaðardeildin er ekki með. Það er vel skiljanlegt að minu mati. Langmestur hluti styrkja úr a-deildinni fer í land- búnaðinn. Annars má segja að samstaða ríki innan stjórnarinnar um að bæta þau tjón sem falla undir lög og reglur sjóðsins," segir Guðbjartur Gunnarsson, stjórnarmaður í Bjargráðasjóði. 7TB FREYR 09 2005 9

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.