Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 10
NAUTGRIPIR
Gangur
burðar hjá ís-
lenskum kúm
- vanhöld kálfa og heilsufar kúa um burð
Vanhöld kálfa hér á landi eru mjög mikil og fara
vaxandi. Markmið verkefnisins, sem hér er fjallað um,
voru m.a. að afla upplýsinga um gang burðar hjá ís-
lenskum kúm og varpa Ijósi á þá þætti sem skýrt geta
þessi miklu vanhöld.
YFIRLIT
Upplýsingar um gang 687
burða á 27 búum komu til upp-
gjörs. Engin burðarvandamál
voru skráð I 73,4% tilfella, aft-
urfótafæðing í 4,7%, legsnurða
í 0,3%, mjög stór kálfur í 6,7%,
annað í 8,7% og óþekkt 16,3%
tilfella. Engin burðarhjálp var
veitt í 55,5% tilfella, lítilsháttar í
28,2%, mikil f 11,6%, aðstoðar
dýralæknis var þörf í 2,6%,
keisaraskurður í 0,3% og burð-
arhjálp var ekki skráð í 1,7% til-
fella. Kynjahlutfall var á þann
veg að 55,5% voru naut,
42,9% kvlgur, f 0,4% burða
komu tvö naut, 0,1% tvær
kvígur, 0,4% naut og kvíga og
kynferði kálfanna var ekki skráð
í 0,6% tilfella. Stærðarflokkun
var á þann veg að 0,9% kálf-
anna voru mjög litlir, 5,1% litlir,
31,3% tæplega meðalstórir,
41,5% rúmlega meðalstórir,
16,6% stórir, 3,5% mjög stórir
og í 1,2% tilfella var stærð ekki
skráð. Afdrif kálfanna voru á
þann veg að 81,1% kálfanna
lifðu, 18,8% kálfanna drápust
og í 0,1 % tilfella var um tvfbura
að ræða þar sem annar kálfur-
inn lifði. Ef kálfarnir voru dauð-
ir, voru 7,1% löngu dauðir,
40,9% nýdauðir, 35,4% dráp-
ust í fæðingu, 3,1 % drapst á 1.
klst., 1,6% drapst á 1. sólar-
hring, 1,6% eftir 1. sólarhring
og í 10,2% tilfella var þessi
þáttur ekki skráður. Meðal-
þyngd 39 kálfa sem voru vigt-
aðir var 34,8 kg. ( 77,1 % tilfella
var faðir kálfsins sæðinganaut
og 22,9% heimanaut. Heilsufar
kúnna um burð var þannig að
4,5% kúnna voru skráðar með
fastar hildir, 6,8% með doða,
1,9% með júgurbólgu með
hita, 0,4% annað og 0,6%
kúnna drápust.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Samhliða spurningalistum voru
eyðublöð til skráningar burðar-
upplýsinga send til þeirra 90
búa sem lentu í úrtaki vegna
könnunarinnar. Á eyðublaðinu
voru bændur beðnir um að skrá
númer kýrinnar, tal, föður kálfs-
ins (sæðinganaut eða heima-
naut), burðardag og burðarferil,
burðarvandamál, burðarhjálp,
kyn, stærð (á skala 1-6) og
þyngd í kg, afdrif kálfsins og
heilsufar kýrinnar um burð.
NIÐURSTÖÐUR
Alls fengust upplýsingar um
gang burðar hjá 687 kúm á 27
búum, sem báru á tímabilinu
ágúst 2004 til janúar 2005. (
tæplega % tilfella voru engin
skráð burðarvandamál, önnur
burðarvandamál en þau sem
voru á lista voru skráð í 8,7%
tilfella og mjög stór kálfur var
talin orsök burðarvandamála í
6,7% tilfella. Nánari útlistun er
á 1. mynd.
(ríflega helmingi tilfella gekk
burður sinn gang án aðstoðar,
rúmlega fjórðungur kúnna fékk
lítilsháttar aðstoð við burðinn
og rúm tíunda hver kýr mikla
aðstoð. Nánara yfirlit yfir burð-
IEftir Baldur Helga Benjamínsson, Baendasamtökum íslands,
Grétar Hrafn Harðarson, Landbúnaðarháskóla íslands og
Þorstein Ólafsson, Búnaðarsambandi Suðurlands
1. mynd. Burðarvandamál.
70,0%
Engin
Afturfótafæðing Legsnurða Annað
Flokkur
Mjög stór kálfur Ekki vitað
2. mynd. Burðarhjálp.
3. mynd. Stærð kálfanna.
45,0%
40,0%
35,0%
£ 30,0%
3 25,0%
€ 20,0%
3
£ 15,0%
10,0%
5,0%
0,0%
41,5%
0,9%
Mjög lítill
5,1%
16,6%
ö
3,5%
1,2%
Mjög stór Ekki skráö
araðstoð má sjá á 2. mynd.
Kynjahlutfall var talsvert
skekkt, 55,5% kálfanna voru
naut og 42,9% kvígur. ( tæp-
lega 1 % tilfella var um tvíbura
að ræða.
Stærðardreifing kálfanna var
nokkuð skekkt á þann veg að
61,6% kálfanna töldust yfir
meðaltali að stærð, en 37,3%
undir meðalstærð. Nánar má sjá
stærðardreifingu á 3. mynd.
Afdrif kálfanna voru þau að
81,1% þeirra lifðu en 18,9%
voru fæddir andvana eða dráp-
ust eftir burð. Algengast er að
10
FREYR 09 2005