Freyr

Volume

Freyr - 01.09.2005, Page 14

Freyr - 01.09.2005, Page 14
STEINSMÍÐI Steinsmíði - Fínvinna við steina 2. þáttur Oftast þarf að fínvinna steina til að þeir gegni hlutverki sínu. Þetta er oft erfið vinna sem nota þarf sérhæfð verkfæri við. ( þessu sem öðru er það æfingin sem skapar meistarann. Höfundur greinarinnar er Helge Haugen blaðamaður, en viðmælandi er Erik T. Skretting, fyrrverandi bóndi. Fínvinnan skiptist í tvennt. Annars vegar þarf að „snyrta" steininn; rétta hliðar á honum og fjarlægja bungur eða ójöfnur sem spilla útliti og skemma notagildi hans. Hinn hluti fínvinnunnar felst í að laga hliðarnar þannig að steininn falli að öðrum steinum í hleðslunni og bindi múrinn sam- an, og einnig til að fá fram beinar línur í hleðslunni. Takmarkið er að það þurfi á sem minnstri fínvinnu að halda. ( upphafi, þegar verið er að undirbúa klofningu grjótsins, ber að hafa í huga í hvað á að nota steinana og haga sér eftir því. Að jafnaði þarf að fínvinna steininn meira eftir því sem klofni steinninn er lengri. Á byggingarstaðnum verður maður að velta steininum á alla vegu til að finna þá hlið sem snúa á út. VERKFÆRI Steinn er harður. Verkfærið þarf að vera gott til að duga. Grunnútbúnaðurinn er hand- meitlar. Af þeim þarf þrjár gerðir, einn með beitta egg, einn með odd og einn með flata og breiða egg. Þessir meitlar eru notaðir til skiptis, eftir því hversu stórt stykki á að brjóta af steininum, (þ.e. hversu djúpt á að taka). Hamar, um 1,5 kg að þyngd, þarf til að slá með. Meitlarnir þurfa að vera úr gæða- efni til að duga og eru eftir því dýrir, þ.e. kosta þúsundir króna hver, en með réttri notkun endast þeir ævi manns. (verkfærasettinu þarf líka að vera gadda- hamar. Ásláttarflöturinn á honum er með göddum úr hörðum málmi. Þessi hamar er notaður til að jafna út fleti eða til að fá líf ( dauða fleti. Þetta áhald er til í mörgum gerðum með óllkum göddum. Gadda- hamar er oftast nær neðarlega á innkaupa- listanum hjá byrjendum í steinsmíði. Til að grófhöggva steina þarf sleggju og mismunandi gerðir af meitlum. Meitlarnir eru í lögun eins og hamar með löngu skafti. Tvo menn þarf til verksins, annar stýrir meitlinum en hinn slær á hann með sleggjunni. Ein gerð af meitlum er með langa egg og önnur er með oddhvassa egg. Sérstakasta gerðin er með tvöfalda egg. Hún er aflöng og U-laga og með tvær hvassar brúnir. Notuð er venjuleg sleggja með 4-5 kg haus til að lemja á meitlana. í könnun sem fram fór á minjasafninu „Ryfylkemuseet" taldi reyndur steinsmiður þó að sleggjan mætti ekki vera stærri (þyngri), en meitillinn. HÖGGVA LAUST! Erfitt er að gefa forskrift að því hvernig þessi fínvinna fer fram. Æfingin skapar meistarann og það gildir að hafa auga fyr- ir verkinu. Gott er að fara varlega af stað og höggva lítið burt ( byrjun og finna hvernig verkfærin vinna á einstökum gerð- um af steinum. Þegar höggva á til kantinn á steininum er merkt fyrir honum og síðan vinnur stein- smiðurinn sig áfram endanna á milli. Hér gildir að taka lítið fyrir í einu með léttum en ákveðnum höggum - en beita ekki kröft- um, það eyðileggur verkfærin. Það horn sem meitillinn myndar við stein- inn og hversu fast er slegið stýrir því hversu mikið brotnar úr steininum. Hamars- eða Meitlasett, f.v. meitill með odd, meitill með egg og meitill með flata egg með skörpum köntum. Brothamrar. Til vinstri eru tveir hamrar með eggjar með tvo skarpa kanta, þar næst er odd- hvass hamar og til hægri er hamar með aflanga egg. Takið eftir að þyngdarpunktur hamarshausanna er eggjarmegin við gatið á hausunum. 14 FREYR 09 2005

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.