Freyr

Volume

Freyr - 01.09.2005, Page 16

Freyr - 01.09.2005, Page 16
FÓÐUR Kolvetni í fóðri jórturdýra (1) Kolvetni í gróffóðri og korni eru mikilvægasti nær- ingarefnaflokkurinn og sá sem gefur stærstan hluta (60-70%) fóðurorkunnar sem drífur búvörufram- leiðsluna - í mjólk og kjöti. Nú er í þróun nýtt samnorrænt fóðurmatskerfi fyrir jórturdýr á Norður- löndum, - NorFor. Hagnýt- ing nýrrar þekkingar um meltingu, niðurbrot og eig- inleika kolvetna sem aflað hefur verið í rannsóknum undanfarin 10 -15 ár er einn af grunnþáttum nýja fóður- matkerfisins. Innan skamms er hægt að reikna með að aukin áhersla verði lögð á mæl- ingar á kolvetnum, frumu- veggjarefnum og eiginleik- um þeirra í fóðri. Mæling- arnar munu mynda traust- ari grundvöll að fóðurmati og skipulagi fóðursam- setningar fyrir mjólkurkýr. Hér verður fjallað stuttlega um kolvetni í fóðri, hver þau eru, hvernig þau eru flokkuð og aðgreind og hlutverk þeirra í fóðurmati. KOLVETNI Kolvetni í fóðri eru fjölbreytileg- ur efnaflokkur myndaður úr frumefnunum; kolefni (C), súr- efni (0) og vatnsefni (H), - (CH^Ojn. Efnaflokkurinn spannar allt frá einföldum sykr- ungum (glúkósi, galaktósi, fruk- tósi) og yfir í flókin og torleyst efnasambönd (sellulósa, hemi- sellulósa, fruktan og glukan). Sykur og sterkja eru einföld og vel þekkt kolefnasambönd. Þau eru auðnýtanleg öllum skepnum, klofna hratt niður í meltingarveginum og meltast nær fullkomlega (100 %). Kolvetnin sem mynda frumu- vegg í plöntum (stoðvef plantn- anna) samanstanda hins vegar af þremur efnahópum; pektíni, seliulósa og hemisellulósa. Fjórði efnahópurinn í frumu- vegg sem að vísu telst ekki til kolvetna en myndar efnasam- bönd og tengist hinum þremur er lignin. Lignín er ómeltanlegt en vegna sambands sem það myndar við frumuveggjarkol- vetnin hefur það mikil áhrif á meltanleika þeirra og nýtingu. Tréni eða plöntutrefjar er fóð- urfræðilegt samheiti yfir frumu- veggjarkolvetnin og lýsir bæði lífræðilegum og efnafræðileg- um eiginleikum þeirra. Þessi efnaflokkur hefur til þessa ekki verið efnagreindur í fóðri hér á landi. Nú mun hins vegar verða þar breyting á með nýja NorFor- fóðurmatskerfinu sem áður var nefnt. Sameiginlegt einkenni plöntukolvetna er að þau melt- ast ekki vegna meltingarhvata sem húsdýrin framleiða, heldur aðeins fyrir tilstuðlan meltingar- hvata sem örverunar ( vömb og víðgirni jórturdýra framleiða. Það er því örverugerjun í vömb jórturdýra sem gerir nýtingu þessara þýðingarmiklu efasam- banda mögulega. Við örverugerjun kolvetna í vömb myndast svokallaðar rok- gjarnar fitusýrur. Mikilvægastar þeirra eru ediksýra, própíonsýra og smjörsýra. Þessar sýrur eru gríðarlega þýðingarmikil orku- uppspretta fyrir jórturdýrin, þvf um 70-75 af hundraði fóður- orkunnar kemur frá þessum þremur fitusýrum. Til viðbótar mikilvægu orkugjafarhlutverki eru ediksýra og smjörsýra einnig mikilvæg byggingarefni til myndunar mjólkurfitu. Þrópí- onsýra er á hinn bóginn afar mikilvægt hráefni til myndunar blóðsykurs í lifrinni. Við örveru- gerjun í vömb myndast einnig mikið af orku sem örverurnar nýta til myndunar á örveru- IEftir Gunnar Guðmundsson, Bændasamtök- um íslands próteini, sem nær að mæta 50 til 90 af hundraði próteinþarfa jórturdýra. PLÖNTUTREFJAR - TRÉNI - FIBER Plöntutrefjarnar eru stærsti ein- staki efnaflokkurinn í gróffóðri og korni. Rétt ákvörðun á melt- anleika trénis hefur þar af leið- andi afgerandi þýðingu um ákvörðun á orku- og prótein- gildi fóðursins og ennfremur um mat á virku fóðuráti grip- anna. Plöntutrénið er einnig þýðingarmikill hiekkur í að við- halda eðlilegri vambarstarfsemi, efla örverugerjun og jórtur og þar með myndun munnvatns sem stjórnar umhverfinu, eða m. ö. o. sýrustiginu í vömbinni. Plöntutrefjarnar / frumuveggjar- efnin í fóðrinu mynda einnig svonefnt „trénisteppi" á yfir- borði vambarinnihaldsins. Tepp- ið eða „mottan" virkar eins og sía eða skilja sem stjórnar áframflæði uppleystra fóðu- ragna út frá vömbinni. Það kemur í veg fyrir of hratt flæði fóðuragna út frá vömbinni sem veldur því að næringarefni fara forgörðum. f núverandi fóðurmatskerfi (FEm, AAT/PBV) er fóðrinu skipt í þurrefni, prótein, fitu, tréni, ösku og NFE þar sem NFE er reiknað sem afgangur eftir að hinir þættirnir hafa verið efna- greindir (NFE, gíkgþe= 1000- (prótein + fita + tréni + aska). Þarna eru tréni og NFE-mæliein- ingar fyrir kolvetnahluta fóðurs- ins en tilgangurinn er að skipta þessum fóðurefnaþætti í tor- meltan (tréni) og auðmeltan (NFE) hluta. Það hefur hins veg- ar komið í Ijós að þessi skipting kolvetnanna er ónákvæm. Því mun í fóðurmatskerfi framtíðar- 16 FREYR 09 2005

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.