Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 18

Freyr - 01.09.2005, Blaðsíða 18
VIÐTAL í sambýli við feiknskap náttúrunnar VIÐTAL VIÐ JÓN HELGASON í SEGLBÚÐUM, SEINNI HLUTI Hjónin Jón Helgason og Guðrún Þorkelsdóttir í Seglbúðum. Á bak við Guðrúnu má sjá myndarlegan öl sem Búnaðarfélag íslands gaf Jóni þegar hann var sextugur. Nú er þarna vöxtulegur skógur. SAMGÖNGUR Hvernig var samgöngum þarna háttað framan af öldinni? Það var fyrst árið 1935 sem segja mátti að sveitirnar milli Sanda kæmust í akvegasam- band og bílfært yrði austur að Klaustri á þeirra tíma mæli- kvarða, þó að Dagbjartur Ás- mundsson á Teygingalæk hafi fyrstur manna keyrt alla þá leið haustið 1928 eða vorið 1929. Lárus Helgason var alþingis- maður sýslunnar á árunum 1927 til 1933 og barðist mikið fyrir samgöngubótum í sýslunni. Árið 1929 var brúin yfir Eldvatn hjá Stórahvammi í Skaftártungu byggð og árið eftir yfir Tungu- fljót. Síðan kom vegalagning milli þeirra og á gamla veginn yfir Eldhraunið. Skálm var brúuð 1932, Kerlingadalsá 1934 og loks Múlakvísl 1935 með vegi að henni inn eftir Höfðabrekku- heiði. Þessar framkvæmdir sköpuðu gjörbreyttar aðstæður og nýja möguleika. Siggeir Lárusson hóf fastar áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Klausturs sumar- ið 1936 og Bjarni í Hólmi reisir frystihúsið sama ár. Ári síðar byggir Kaupfélag Skaftfellinga vörugeymslu á Klaustri með verslunarbúð fyrir daglega af- greiðslu. Eftir það lagðist upp- skipun og verslun við Skaftárós niður. Varð þá einnig breyting í Seglbúðum, en um það segir Þórarinn Helgason í bók sinni „Lárus á Klaustri" m.a: „Meðan verslunin var við Skaftárós lá aðalumferðarleiðin hjá Seglbúðum. Var þar mikill áningarstaður, meðan hestarnir voru notaðir til aðdráttanna. Því var oft gestkvæmt hjá þeim hjónum I Seglbúðum, Gyðríði Pálsdóttur og Helga Jónssyni, og mun gestrisni þeirra og ein- stök greiðasemi Helga bónda minnisstæð, meðan nokkur lifir, er hennar naut". SlMINN Landssímalína var lögð árið 1929 beint frá Vík austur að Klaustri. Komust sveitirnar milli Sanda þá í símasamband við umheiminn, en loftskeytastöð hafði verið sett upp á Klaustri 1922. Síðan var lögð innansveit- arlína með einum þræði suður Landbrot, Meðalland og yfir Kúðafljót út í Álftaver. Það voru aðeins fáir bæir í hverri þessari sveit sem fengu símann og voru allir á sömu línunni. Árið eftir var lögð aukalína frá Seglbúð- um suður að Skaftáósi með innirofa í Seglbúðum. Sú lína var tengd þar inn á hina, þegar þörf var á. Einnig voru þar rofar fyrir aðallínuna, þannig að hægt var að loka fyrir í sitt hvora átt. Notuðu margir sér það því að hringingar urðu daufar, þegar margir fóru að hlusta, sérstak- lega þegar t.d. þurfti að ná í símstöðina á Klaustri utan úr Álftaveri og Meðallandi. Var þá hægara að ná að Seglbúðum, enda hringingin þangað aðeins „ein löng", og biðja um aðstoð við að ná að Klaustri. Engum mun þó hafa dottið í hug að fara fram á greiðslu fyrir þessa aukaslmaþjónustu. Símastaurunum var skipað upp við Skaftárós og boðinn út flutningur og dreifing á þeim á línuna haustið áður. Bændur tóku það að sér og miðuðu við að geta flutt staurana frá Skaft- árós á æki. En það kom aldrei hald allan veturinn svo að flytja varð staurana á hestvögnum, sem varð erfiðara og dýrara fyrir bragðið. Dagbjartur á Teyg- ingalæk mun þó hafa notað sinn nýja bíl til þess í Fljótshverfi. Símavinnuflokkur Björnæs setti svo upp línu og síma. UMBROT í NÁTTÚRUNNI Þarna hafa orðið ýmis umbrot I náttúrunni, bæði í þinni tíð og áður. Já, eldgos og jökulhlaup hafa á liðnum öldum eða frá örófi alda, má ef til vill segja miðað við okkar sjónarhorn, ógnað og mótað byggðarlagið. En í kjölfar þeirra hamfara hefur sandfok og sandburður haldið áfram stórtækri iðju náttúruaflanna. ( 18 FREYR 09 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.