Freyr - 01.09.2005, Page 19
VIÐTAL
Seglbúðir í Landbroti. Bæjarhúsin til vinstri en hægra megin hlykkist Grenlækurinn fram Landbrotshraunið.
því sambandi er mér minnis-
stæðast þriggja sólarhringa
ofsaveður af austri á sauðburði
seint i maí 1944. Ég sé enn fyrir
mér, þegar ég horfi út um suð-
urgluggana heima, sandmökk-
inn rísa hátt á loft upp ekki
langt sunnan við bæinn. Þetta
gífurlega sandfok fór yfir Land-
brotsvötnin, sem Grenlækur og
fleiri lækir í Landbroti runnu j,
og fyllti farveg þeirra. Þau-færð-
ust því til og fóru að renna um
hin grösugu stararflóð sem áður
voru slegin.
Sandbylurinn gerði þó ennþá
meiri spjöll í Meðallandi á gróðri
og mannvirkjum. Ábúendur á
Leiðvelli fluttu strax I burtu og
árið eftir fóru Feðgar í eyði. Á
fleiri bæjum kom sandurinn
heim að dyrum.
Frá fyrri öldum eru margar
slíkar sagnir um hamfarir nátt-
úrunnar, eins og hvernig sand-
urinn fór yfir Kirkjubæjarklaust-
ur í nokkrar aldir og setti að lok-
um bæinn og kirkjuna þar í kaf.
Einn forfeðra minn, Jón
Magnússon, tengdasonur Odds
í Seglbúðum, bjó á Klaustri frá
1816 og fram yfir 1830. Þegar
hann kemur þangað er sandur-
inn að fara yfir bæinn og fékk
Jón því leyfi til að flytja hann
vestur fyrir lækinn þar sem hann
hefur verið síðan.
Síðustu áratugina höfum við
þó fyrst og fremst séð foldarsár-
in gróa í kjölfar breyttra búskap-
arhátta, hagstæðs tíðarfars og
fyrir atbeina Landgræðslu ríkis-
ins.
Nafnið Landbrot, hver er upp-
runi þess?
Það virðist vera frá Landnáms-
öld því að í Njálssögu segir Flosi
Sigfússonum að taka vöru hans
í Meðallandi og flytja austur, svo
og í Landbroti og Skógahverfi.
Og um 1070 er Guðni hinn góði
talinn hafa gefið tvö kristbú, í
Eystri-Dalbæ og Uppsölum í
Landbroti. Bendir það til þess að
þá hafi verið bærilegt undir bú,
þrátt fyrir nafnið. Nafnið Land-
brotsá á litlum læk skammt frá
Seglbúðum veitir heldur engar
skýringar. Uppspretturnar eru
reyndar í stórum farvegi sem
bendir til þess að þar hafi áður
verið mikið vatnsfall eins og víð-
ar þar í kring. Þau eru nú horfin
nema Grenlækur, en eftir
standa örnefni eins og Tröllshyl-
ur, þar sem enn eru djúpar
tjarnir í botni.
Bæirnir í Landbroti standa á
jaðri Landbrotshraunsins. Það
hefur runnið yfir votlendi og því
myndast þar mörg þúsund hól-
ar, margir með gervigígum.
Menn eru ekki á einu máli hve-
nær þetta hraun rann. Sumir
jarðfræðingar segja að það hafi
gerst árið 934 en mér finnst þá
vakna ýmsar spurningar.
( Landbrotinu er mikið mann-
virki sem liggur suður Landbrot-
ið nokkurn veginn þar sem
þjóðvegurinn er nú, frá Ásgarði
suður að Þykkvabæ. Þetta er
mikill manngerður garður. Jarð-
fræðingarnir Sigurður Þórarins-
son og Þorleifur Einarsson grófu
í hann og greindu kekkina í
hleðslunni. Þeir töldu garðinn
ekki yngri en frá 1200.
En þá vantar skýringu á því
hvernig unnt hefur verið að
hlaða þennan garð upp af
hrauni sem hefur runnið þar
innan við 300 árum áður, ef
horft er á austurbrún Skaftár-
eldahraunsins núna, skammt
við hringveginn, þar sem aðeins
er gamburmosi og ekki unnt er
að stinga nokkurn kökk á þriðja
hundrað árum eftir að það
rann. Og ekki er síður erfitt að
skilja hvernig unnt var, 80 árum
eftir að hraunið rann, að stunda
þar blómlegan búskap, sem gat
staðið undir leigugreiðslum.
Þannig er hægt að halda
áfram að spyrja.
Manst þú eftir skipsströndum?
Já, ég á skýra minningu um
það þegar ég var fimm ára, að
einn morgun milli jóla og nýárs
var ég vakinn þar sem ég svaf í
baðstofunni og mér sagt að
verða ekki hræddur þó að
komnir væru ókunnugir menn í
sum rúmin þar. Þá um nóttina
höfðu komið þrír þýskir sjó-
menn af skipi sem hafði strand-
að við Skaftárós og gengið upp
eftir, af því að þeir sáu útiljósið á
baðstofuburstinni, en slíkt hafði
gerst áður fyrir mitt minni. Þess-
ir skipbrotsmenn voru af þýska
togaranum Albatross.
Skipsströnd voru tíð þarna í
Meðallandsbugtinni á fyrri öld-
um og fram undir 1960. Sem
betur fer var það ótrúlega oft
sem flestir eða allir björguðust
enda var alltaf brugðið skjótt
við þegar vart var við strand og
slðan reynt að hlúa vel að hrökt-
um skipbrotsmönnum þó að
húsakynni væru lítil og þröngt í
búi á mörgum heimilum.
FREYR 09 2005
19