Freyr - 01.09.2005, Page 23
Vélar og tæki
Nýr Toyota Hilux
- stærri og veglegri
en forverarnir
Toyota Hilux hefur fyrir löngu sannað sig sem góður,
alhliða pallbíll á íslandi. Vinsældir jeppans hafa haldist
stöðugar um árabil. Bíllinn hefur þótt einkar hentugur
til breytinga en margir settu Hiluxinn á stærri dekk,
hækkuðu hann upp og festu brettakanta á hliðarnar.
( októbermánuði mun P. Samú-
elsson hf. hefja sölu á sjöttu
kynslóð Hilux-jeppa hér á
landi. Alls hafa selst 12 milljón
Hilux-jeppar í heiminum frá því
að framleiðsla þeirra hófst og
verma þeir annað sætið í sölu á
heimsvísu á eftir Corolla-
bílunum. Markmiðið hjá
Toyota með hönnun nýja Hilux-
jeppans var að búa til alhliða
jeppa fyrir heimsmarkað sem
byggði á arfleifð eldri árgerða -
þ.e. að einblína á gæði,
áreiðanleika og endingu.
Tíminn mun leiða i Ijós hvernig
nýi Hiluxinn reynist en víst er
að hér er á ferðinni sterk-
byggður og lögulegur bíll.
Bilarnir sem verða í boði í
Evrópu eru framleiddir f Suður-
Afríku og Tailandi. Eins og
tíðkast um bíla nú til dags eru
bílapartarnir framleiddir um
allan heim. Þannig er díselvél
Hilux-jeppanna framleidd i
VÉLBÚNAÐUR
• 2,5 lítra, 4 strokka, 16
ventla díselvél, slagrými
2.494 cc.
• Bein innspýting
• Eldsneytistankur: 80 lítrar
• Hámarkstog: (Nm/sn.mín)
260/1.600-2.400
• Dráttargeta: 2,2 tonn
DRIFLÍNA
• 4X4, driflæsing að aftan
• 5 gíra beinskipting
HJÓL, HEMLAR
OG FJÖÐRUN
• Tveggja arma gormafjöðrun
að framan en hefðbundnar
blaðafjaðrir að aftan.
• 15" álfelgur og 255/70R15
dekk
• Loftkældir diskar að framan
en hjólskálar að aftan
• ABS-hemlakerfi
Taílandi en gírskiptingin i
Indlandi.
Hér á landi verður boðið upp á
Hilux í Extra Cab- og Double
Cab-útgáfu. Rými inni í
jeppanum er töluvert meira en í
fyrri árgerðum og almennt er nýi
Hiluxinn stærri um sig. Lengdin
á Double Cab útgáfunni er rúmir
5,2 m sem er 34 cm lengri en
gamia útgáfan. Þá munar 4,5
cm á breidd og einnig er sá nýi
2,5 cm hærri en sá eldri. Skúffan
er sömuleiðis stærri en áður.
Undirvagninn er endurbættur
með sérstökum styrkingum sem
þykir gefa jeppanum meiri
stöðugleika í akstri jafnt á mal-
biki sem vegleysum. Þá er undir-
vagninn betur einangraður en í
fyrri árgerðum sem gerir það að
verkum að veg- og vélarhljóð
berst síður inn i jeppann. Að
framan er Hiluxinn á gormum en
hefðbundnar blaðafjaðrir eru að
aftan.
ÞYNGD
• Eigin þyngd 1.770-1.875
kg.
• Heildarþyngd 2.760 kg.
STÆRÐIR
• Lengd: 5.255 mm
• Breidd: 1.760 mm án
brettakanta, 1.835 mm með
brettaköntum.
• Hæð: 1.695-1.810 mm
• Hjólhaf: 3.085 mm
• Lengd palls: 1.520 mm
STAÐALBÚNAÐUR M.A.:
• SRS-loftpúðar
• Aðdraganlegt stýri
• Krómaðir hliðarspeglar og
hurðarhandföng
• Stigbretti
• Samlitir brettakantar
• Fjarstýrð samlæsing
• Timastilling á rúðuþurrku
• Armpúði að framan
• Útvarp og CD
stofnað í Japan á grunni verk- ota Corolla
smiðjunnar Toyoda Automatic Toyota Celica kemur á
Loom Works sem sérhæfði sig i markað
vélum fyrir vefnaðariðnaðinn. Toyota Camry markaðs-
Fyrirtækið markaði sér fijótlega sett
sérstöðu fyrir háþróaðar fram- Toyota 4-runner- jepp-
leiðsluaðferðir og vörustjórnun. inn kynntur á heimsmarkaði
Fyrsti smábill Toyota Lexus lúxusbíllinn kem-
settur á markað. ur fram á sjónarsviðið
ifjWjg Land Cruiser kemur á KEm Toyota framleiðir öku-
markað í upprunalegri mynd tæki númer 100.000.000
Framleiðsla hefst fyrir SO-T. Toyota er langstærsti
utan Japan í fyrsta skipti, n.t.t. bilaframleiðandi í Japan og sá
í Brasilíu. þriðji stærsti í heiminum.
Heildarframleiðsla bila Framleiðslan nemur um 5,5
á ári: 600.000 milljónum ökutækja á ári.
FREYR 09 2005