Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2005, Qupperneq 32

Freyr - 01.09.2005, Qupperneq 32
SAUÐFJÁRRÆKT Sauðfjársæðinga- starfsemin árið 2004 Sæðingar sauðfjár eiga sér nánast hvergi í heiminum jafn langa hefð og hér á landi. Þessi starfsemi hefur samt á síðustu árum verið í mikilli þróun. Um- fang sæðinganna hefur aukist með hverju ári. Þannig verða þær sífellt veigameiri hlekkur í framkvæmd ræktunarstarfsins. Þær eiga þannig sinn ómælda þátt í þeim miklu og greinilegu ræktunarframförum sem blasa við í íslenskri sauðfjárrækt á allra síðustu árum. Þessi grein gefur í stuttu máli hefðbundið yfirlit um starfsemina á þessu sviði á árinu 2004. Þær breytingar hafa orðið á skipulagi sauðfjársæðinganna að rekstri stöðvar- innar á Möðruvöllum, sem fluttist þangað fyrir rúmum tveimur áratugum frá Akur- eyri, hefur verið hætt, Þessi stöð var sú elsta af stöðvunum ef litið er á hana sem beint framhald af rekstri stöðvar á Akur- eyri. Nú eru því tvær stöðvar I landinu, sem ráðgert er að verði með varanlega starf- semi á þessu sviði á næstu árum, stöðin í Laugardælum og stöðin við Borgarnes. Með auknum ræktunarframförum í stofninum fylgir að hrútakost stöðvanna þarf að endurnýja nokkuð hratt og ekki nema einstakir úrvalsgripir sem ná því lengur að geta verið stórstjörnur til margra ára. Þannig var meira en þriðjung- ur af hrútastofninum endurnýjaður á ár- inu. En þar sem hrútafjöldi stöðvanna í heild var óbreyttur milli ára féllu jafn- margir hrútar út og þeir sem mættu þarna sem nýliðar eða samtals 17 hrútar f hvor- um hópi. Ýmsar ástæður réðu því að hrútar hurfu af sjónarsviðinu svo sem að slys eða óhöpp urðu þeim að aldurtila eða þeir voru felldir í Ijósi þess að þeir höfðu skilað því sem af þeim var ætlast. Hrútarnir sem hurfu úr notkun frá í desember 2003 voru þessir: Sekkur 97-836, Hörvi 99-856, Són- ar 97-860, Ljómi 98-865, Stapi 98-866, Vinur 99-867, Dóni 00-872, Hnykkur 95- 875, Fífill 99-879, Abel 00-890, Vísir 01- 892, Kostur 98-895. Snoddi 99-896, Toppur 00-897, Farsæll 99-898, Kunningi 02-903 og Múli 03-907. Nýliðarnir eiga að vera öflugur og sterk- ur hrútahópur sem vonandi nær að skila sínu hlutverki til frekari framfara í íslenskri sauðfjárrækt. Það voru eftirtaldir hrútar (f númeraröð): Aladín 00-917 frá Fremri- Gufudal í Gufudalssveit, Hnokki 00-918 frá Melum I f Árneshreppi, Erpur 01-919 frá Heydalsá I í Steingrímsfirði, Kóngur 02- 920 frá Smáhömrum f Steingrímsfirði, Roði 00-921 frá Sveinungsvfk í Þistilfirði (þar fæddur en fenginn á stöð frá Sauðanesi á Langanesi), Eldar 01-922 frá Hríshóli í Eyja- fjarðarsveit, Lómur 02-923 frá Sveinungs- vík f Þistilfirði, Kuldi 03-924 frá Hesti f Borgarfirði, Trassi 99-925 frá Norðurhjá- leigu í Álftaveri, Toppur 00-926 frá Þykkva- bæ í Landbroti, Vestri 01-927 frá Skarði í Landsveit, Grfmur 01-928 frá Staðarbakka í Hörgárdal, Týr 02-929 frá Presthólum í Núpasveit, Glópur 00-930 frá Melum II í Árneshreppi, Langidalur 01-931 frá Úthlíð í Skaftártungu, Dfmon 01-932 frá Stóru- Mörk undir Eyjafjöllum og Ormur 02-933 frá Heydalsá II í Steingrímsfirði. Af þessum hrútum eru níu hyrndir og átta kollóttir og Aladín hefur auk þess sér til ágætis að vera svartbotnuflekkóttur sem talsverðu réð um val hans til notkunar á stöð. Ýtarlegar upplýsingar um ættir, uppruna, útlit og reynslu þessara hrúta má lesa f sameiginlegri hrútaskrá stöðvanna. Samtals voru því á stöðvunum til notkunar 47 hrútar. Af þeim voru 29 hyrndir og 16 kollóttir, auk tveggja for- ystuhrúta. Tíðarfar í desember var starfseminni hagstætt þannig að engar alvarlegar hindranir voru í dreifingu sæðis. Umfang sæðinganna í landinu varð meira en nokkru sinni. Með sæði frá stöðinni í Laugardælum voru sæddar samtals 13.793 ær og með sæði frá Borgarnesstöðinni 13.459 ær. Þessu til viðbótar voru sæddar samtals 2.735 ær með djúpfrystu sæði sem nánar er vikið að í lok greinarinnar. NOTKUN EINSTAKRA HRÚTA Eins og ætíð var umtalsverð dreifing á notk- un einstakra hrúta. Illu heilli féllu tveir af nýju hrútunum nær alveg út í notkun, úr Kóngi 02-920 tókst ekki að ná nothæfu sæði og úr Vestra 01-927 aðeins örfáum skömmtum. Um notkun á hrútunum liggja að vísu, eins og áður, aðeins fyrir upplýsing- ar um útsendinguna úr einstökum hrútum en augljóst er að hrútarnir, sem eru með mesta útsendinguna, eru þeir sem fá lang- mesta notkun. \£5m5ia f WSK IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands Frá stöðinni í Laugardælum var útsend- ing yfir þúsund skammtar úr eftirtöld- um hrútum: Frosti 02-913, 1.860 skammtar Lóði 00-871, 1.430 skammtar Langidalur 01-931, 1.390 skammtar Týr 02-929, 1.365 skammtar Áll 00-868, 1.365 skammtar Grímur 01-928, 1.215 skammtar Ægir 01-916, 1.020 skammtar Þúsund skammta markinu í útsendingu náðu þessir hrútar frá stöðinni við Borgarnes: Hylur 01-883, 1.731 skammtur Spakur 00-909, 1.670 skammtar Úði 01-912, 1.444 skammtar Gári 02-904, 1.413 skammtar Partur 99-914, 1.293 skammtar Lómur 02-923, 1.185 skammtar Kuldi 03-924, 1.078 skammtar Þó að það séu stórstjörnurnar frá haustinu 2004 sem fá mesta notkun er mjög ánægjulegt að líkt og allra síðustu ár fá margir af nýju hrútunum strax mikla notkun. Þannig fæst strax á öruggan hátt úr því skorið hvort viðkomandi hrútur veldur sínu nýja hlutverki. Því miður liggja ekki fyrir neinar heilstæð- ar upplýsingar um árangur sæðinganna frekar en áður. Flest bendir samt til að víðast um land hafi hann verið góður. Samt er vit- að að á Austurlandi, þaðan sem bestar upp- lýsingar er að hafa um árangur sæðinga á sfðustu árum, var árangur því miður ekki al- veg eins góður síðasta vetur og árið áður. TILRAUN MEÐ DJÚPFRYST HRÚTASÆÐI ( desember 2003 var gerð nokkuð viða- mikil tilraun með notkun á djúpfrystu 32 FREYR 09 2005

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.