Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2005, Qupperneq 36

Freyr - 01.09.2005, Qupperneq 36
FERÐAÞJÓNUSTA Sjálfbært samfélag í Hrísey - lykill að góðri ferðaþjónustu IEftir Ragnhildi Helgu Jónsdóttir, Landsskrifstofu Staðardagskrár 21, Borgarnesi Á undanförnum árum hefur verið unnið að verkefni við að skapa sjálfbært samfé- lag í Hrísey. Verkefnið er hluti af sérstökum stuðn- ingi iðnaðarráðuneytis, sem ráðuneytis byggðamála, og umhverfisráðuneytis, við fámenn sveitarfélög sem vilja móta sér stefnu um sjálfbært samfélag á 21. öldinni í anda Staðardag- skrár 21. Á árunum 2003-2005 hafa ár- lega runnið tvær milljónir króna af þessum stuðningi í verkefnið um sjálfbært samfélag í Hrísey. Fjármunirnir hafa verið nýttir í ýmis verkefni I eyjunni í anda sjálfbærrar þróunar. Meðal ann- ars hefur verið ráðist í rannsókn á orkumálum eyjunnar með það í huga að íbúar hennar verði sjálfum sér nægir um alla orku, hvort sem er til Ijósa, hitunnar eða sem eldsneyti á bíla. Það yrði gert með framleiðslu raf- magns úr jarðvarma sem finnst í miklum mæli í eyjunni. Einnig var keypt jarðgerðarvél, sem jarðgerir allan lífrænan úrgang sem fellur til hjá heimilum og fyrirtækjum. Með því móti minnkar sá úrgangur sem flutt- ur er í land til urðunar, auk þess sem þær auðlindir sem felast í lífrænum úrgangi nýtast til ræktunar úti í Hrísey. Allt frá upphafi þessa verk- efnis hafa menn velt fyrir sér hvernig hægt sé að nýta verk- efnið til atvinnusköpunar á svæðinu, auk þess að koma á framfæri sérstöðu svæðisins í þessum efnum. Einkum var horft til þeirrar atvinnugreinar sem vex hvað hraðast í heimin- um, þ.e. ferðaþjónustunnar. Með þessu verkefni um sjálf- bært samfélag í Hrísey, sem á sér ekki hliðstæðu hér á landi, var komin fram sérstaða sem heimamenn töldu rétt að nýta til að laða að ferðamenn. Upp- byggingin yrði gerð á forsend- um sjálfbærrar ferðaþjónustu. Sérstaklega er fjallað um ferða- þjónustu í samþykktri Staðar- dagskrá 21 fyrir Hrísey, sem staðfest var af hreppsnefnd í mars 2004. Lögð var áhersla á að hún verði í sem mestri sátt við umhverfið og sérstaða hennar nýtt til markaðssetning- ar á eyjunni. GRUNNÞÆTTIR SJÁLF- BÆRRAR FERÐAÞJÓNUSTU Áður en lengra er haldið er rétt að skoða grunnþætti sjálfbærar ferðaþjónustu. Átt er við ferða- þjónustu þar sem bæði maður og náttúra hafa hagnað af. Til þess að það sé mögulegt er nauðsynlegt að allar þjónustu- greinar vinni saman að því að ná settu markmiði. Ákveðin grunn- atriði þarf að hafa í huga þegar markmiðið er sjálfbær ferða- þjónusta. Þar má nefna að um- gengni við náttúru og samfélag þarf að einkennast af virðingu og að tryggt sé að heimamenn taki þátt í ákvarðanatöku og hafi ávinning af ferðaþjónustunni. Áhersla verður að vera á um- hverfisstjórnun í daglegum rekstri fyrirtækja til að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda. Einnig er nauðsynlegt að stíla inn á sérstöðu svæðisins og leggja áherslu á gæðavöru, þ.e. að ferðamannastaðurinn sé í há- um gæðaflokki og sé einstakur í sinni röð. Þegar horft er til samfélagsins ( Hrísey má í raun segja að nær allir aðilar tengist ferðaþjónustu, beint eða óbeint, því sjálfbær ferðaþjónusta leggur áherslu á samvinnu allra þjónustugreina. Einnig geta framleiðslufyrirtæki haft hag af henni, s.s. með auk- inni kynningu til ferðamanna og góðu orðspori. Ferðamenn á leið i skoðunarferð um Hrísey Ferjan Sævar er brúin milli lands og eyjar ^iHiiiiiin Dráttarvélar eru algengar í eyjunni og setja sinn svip á samfélagið 36 FREYR 09 2005

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.