Freyr - 01.09.2005, Page 37
FERÐAÞJÓNUSTA
Veitingahúsið Brekka er vinsælt meðal gesta og hefur þar gjarnan verið notað hráefni úr eyjunni
Umhverfi Hríseyjar býður upp á þægilegar gönguleiðir
MARKAÐSRÁÐ HRÍSEYJAR
SETT Á FÓT
Þótt margir aðilar í eyjunni komi
að þjónustu við ferðamenn
beint eða óbeint, hefur til þessa
verið lítið sem ekkert samstarf
þeirra á milli í markaðssetningu
á svæðinu. í mótun Staðardag-
skrár 21 fyrir Hrísey kom fram
sú hugmynd að ferðaþjónustu-
aðilar mynduðu samstarfsvett-
vang. Til að svo mætti vera
efndi verkefnisstjórn um sjálf-
bært samfélag í Hrísey til fundar
með öllum ferðaþjónustuaðil-
um í eyjunni. Þar hélt Kjartan
Bollason, sérfræðingur á Hóla-
skóla, fyrirlestur um væntanleg-
an ávinning af því að auglýsa
Hrísey á þessu sviði. í máli sínu
lagði hann mikla áherslu á
nauðsyn þess að koma á sam-
eiginlegri markaðssetningu
ferðaþjónustunnar í Hrísey en á
vordögum 2005 var haldinn
stofnfundur Markaðsráðs Hrís-
eyjar. Tilgangur ráðsins verður
að sameina krafta fyrirtækja og
annarra þjónustuaðila f Hrísey
og vinna sameiginlega að mark-
aðssetningu á Hrísey sem sjálf-
bæru samfélagi, sem væri liður i
að laða að fleiri ferðamenn.
Stefnt er að því að fá eyjuna
vottaða samkvæmt Green
Globe 21, sem er alþjóðlegt
umhverfisvottunarkerfi ferða-
þjónustunnar, byggt á Dagskrá
21 og hugmyndafræði sjálf-
bærrar þróunar. Einn af stöðlum
Green Globe 21 lýtur að samfé-
lögum og yrði sá staðall lagður
til grundvallar starfinu í Hrísey.
Einnig er það tilgangur Mark-
aðsráðs Hríseyjar að efla inn-
byrðis tengsl og þekkingu fyrir-
tækja f Hrísey og ekki síður að
vera sameiginlegur málsvari
samfélagsins í eyjunni.
( framhaldi af stofnun mark-
aðsráðsins var ákveðið að koma
á fót sameiginlegri heimasíðu
allra ferðaþjónustuaðila f Hrísey
þar sem hægt er að koma eyj-
unni á framfæri, kynna hvað
hún hefur upp á að bjóða, jafn-
framt því sem gestir geta pant-
að gistingu eða ferðir í gegnum
sfðuna.
ÁVINNINGUR
En þá er það spurningin hvaða
ávinningur er af því fyrir eyjuna
sjálfa, samfélagið og fyrirtækin
að auglýsa og markaðssetja
sameiginlega þennan áfanga-
stað sem sjálfbæran ferða-
mannastað? Búast má við að
með því að kröftum allra aðila
sé beint að sameiginlegu mark-
miði náist betri árangur. Þannig
er hægt að laða að fleiri gesti
sem vilja heimsækja eyjuna á
forsendum hennar sjálfrar og
samfélagsins sem hana byggir.
Það skiptir ekki bara máli að
ferðamönnum fjölgi, heldur
þarf sú fjölgun að vera í sátt við
umhverfið og innan þeirra
marka sem umhverfið og sam-
félagið þolir. Með samvinnu
geta ferðaþjónustuaðilar verið
hluti af einni sterkri heild, sem f
sameiningu geta boðið margvfs-
lega þjónustu og afþreyingu,
þótt hver um sig bjóði aðeins
takmarkaða þjónustu.
Það er trú þeirra sem vinna að
þessu verkefni að með því stuðla
að sjálfbæru samfélagi í Hrísey, sé
verið að styrkja stöðu samfélags-
ins enn frekar, laða fram hið ein-
stæða sem þar er að finna og
bjóða gestum að koma og njóta
þessa sérstaka staðar, í sátt við
umhverfi og samfélag.
FREYR 09 2005
37