Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 2
Veður
Það verður allhvöss suðvestanátt
og éljagangur í dag, en bjartviðri
norðaustan- og austanlands. Kólnar
í veðri, hiti 0 til 4 stig eftir hádegi.
sjá síðu 22
„Við erum krökkunum ævinlega þakklát. Þau eru algjörir snillingar og færa mikla jólagleði inn í hjörtu okkar félagsmanna. Þetta er alveg yndis-
legt,“ segir Svanhildur Ólafsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Árnessýslu, sem tók á móti 1.116.000 króna gjöf frá nemendum Sunnulækjarskóla
á Selfossi í gær. Peningunum söfnuðu krakkarnir á góðgerðardegi skólans sem var haldinn í síðustu viku. Fréttablaðið/Magnús Hlynur Hreiðarsson
NýsköpuN Íslenska smáforritið
Muss ila, sem er hannað til þess að
kenna börnum grunnatriði í tón-
list í gegnum skapandi leik, hefur
vakið mikla eftirtekt víða um heim.
Nýleg rannsókn á smáforritinu
gefur til kynna mikla gagnsemi þess.
„Rannsóknin fór fram í Eistlandi og
í Garðabæ,“ segir Margrét Júlíana
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Rosamosa sem framleiðir smáfor-
ritið.
Í rannsóknarverkefni sem var
samstarfsverkefni grunnskóla í
Garðabæ, þriggja skóla í Eistlandi
og vefrannsóknafyrirtækisins Net-
life Research í Noregi voru börn
prófuð í tónfræði. Prófið hannaði
Atli Ingólfsson, prófessor við Lista-
háskóla Íslands. „Atli hafði ekki séð
leikina áður en hann bjó prófið til.
Prófið var lagt fyrir 120 börn í Eist-
landi á aldrinum 8-9 ára,“ segir Mar-
grét Júlíana. Prófið var svo lagt aftur
fyrir börnin þremur vikum seinna
en þá hafði hópnum verið skipt í
tvennt. Fyrri hópurinn fékk sömu
meðaleinkunn og áður eða 58,9 af
hundraði. Einkunn seinni hópsins
var 20,2% hærri en sá hópur hafði
nýtt Mussila-smáforritið til viðbótar
við hefðbundna tónlistarkennslu.
„Niðurstöðurnar styðja við mark-
mið okkar, við viljum hjálpa börnum
að læra í gegnum leik og það er mjög
merkilegt að börnin sem notuðu
Mussila leystu meira að segja betur
úr spurningum um efni sem er
ekki kennt í leikjunum. Skilningur
barnanna varð dýpri og í víðara
samhengi,“ segir Margrét Júlíana sem
segir að í allri kennslu sé mikilvægt
að virkja rökhugsun barnsins sjálfs.
Leikurinn hefur notið mikillar
velgengni og hlotið lof gagnrýn-
enda. Hann hlaut meðal annars fimm
stjörnu dóm í BBC Music Magazine.
Þá var hann tilnefndur í Nordic
Game Awards 2017. Fyrirtækið
Rosamosi var tilnefnt fyrir hönd
Íslands í Nordic Startup Awards. Í
sumar gerði fyrirtækið samning við
bresku leikfangakeðjuna Hamleys
um þróun og dreifingu á tónlistar-
námskeiðum og öðrum vörum sem
byggja á leikjunum. Smáforritið hefur
einnig vakið athygli í Kína.
„Þetta verða tónlistarnámskeið
sem verða kennd í verslunum
Hamleys. Við erum einnig komin í
samstarf við verslanir í Kína,“ segir
Margrét frá.
„Við stefnum að því að verða
leiðandi vörumerki á sviði tón-
listarefnis fyrir börn. Við viljum að
það sé leikur að læra og því förum
við í samstarf við fyrirtæki sem hafa
sama markmið og við,“ segir Mar-
grét Júlíana.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Íslenskt app hjálpar
börnum að læra tónlist
Rannsókn sem gerð var á notkun íslenska smáforritsins Mussila leiddi í ljós
mikla gagnsemi þess í tónlistarkennslu. Börn sem notuðu forritið til viðbótar
við hefðbundna tónlistarkennslu sýndu 20,2% aukinn skilning í tónfræði.
Margrét Júlíana, framkvæmdastjóri rosamosa, fylgir eftir hröðum uppgangi
fyrirtækisins. Á í samstarfi um Mussila víða um heim. Fréttablaðið/ernir
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
Þráðlaus kjöthitamælir
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill og ofna
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 6.990
Opið alla
daga til jóla
Sko
ðið
nýja
vef
vers
lun
ww
w.gr
illbu
din.
is
VersluN Í það minnsta tvær aug-
lýsingar þar sem gefið er til kynna
að rjúpur séu til sölu er að finna á
söluvefnum bland.is. Bannað er að
selja rjúpur eða rjúpnaafurðir en
veiðitímabilinu þetta árið lauk í
nóvember. Annar notandinn aug-
lýsir að rjúpur „vanti heimili“ en
nánari upplýsingar fáist í einka-
skilaboðum. Hinn auglýsir rjúpur
til sölu með beinum hætti: „Vegna
breyttra fyrirætlana um jólin eru tíu
stykki rjúpur sem ég nýlega fjárfesti
í til sölu,“ skrifar hann og óskar eftir
tilboðum í fuglana.
Björn Þorláksson, upplýsingafull-
trúi Umhverfisstofnunar, segir að
stofnuninni hafi fram að þessu ekki
borist neinar ábendingar af þessum
toga þetta haustið. „Við höfum fyrri
ár stundum fengið ábendingar og
höfum þá vísað þeim málum til lög-
reglu, því það er hennar að fram-
fylgja því að sölubannið sé virt. Við
erum fyrst nú að sjá vegna ábending-
ar þinnar tengla á bland.is þar sem
grunur kviknar um brot,“ segir hann.
Hann segir að fyrir virðist liggja að
að minnsta kosti annar aðilinn hygg-
ist bjóða upp á ólögleg viðskipti, þar
sem tilboða sé óskað. „Alltaf þegar
við fáum svona ábendingar bregð-
umst við við með því að senda málin
til lögreglu og það verður gert í þessu
tilviki,“ segir Björn.
Indriði Ragnar Grétarsson, for-
maður SKOTVÍS, segir að félaginu
hafi ekki borist ábending-
ar um tilraunir til sölu á
rjúpum í haust. Slík við-
leitni hefur heldur ekki
borist til eyrna lög-
reglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
– bg
Bjóða rjúpur til
sölu á bland.is
DÓMsMál Úrskurður Héraðsdóms
Reykjaness í máli Sindra Sveinsson-
ar gegn sýslumanninum á Norður-
landi eystra verður kærður áfram til
Hæstaréttar.
Málið varðar árangurslaust fjár-
nám sem sýslumaðurinn gerði hjá
Sindra vegna skuldar í tengslum við
greiðslu málskostnaðar í markaðs-
misnotkunarmáli Landsbankans.
Sindri var dæmdur til að greiða
málskostnað og laun verjanda síns,
samtals rúmar 22 milljónir króna.
Með úrskurði héraðsdóms var sú
upphæð hins vegar lækkuð í tvær
milljónir króna þar sem Sindri þótti
ekki borgunarmaður fyrir upphaf-
legu upphæðinni.
Sýslumaður vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið en segir þó að
almennt sé afar sjaldgæft að á þessa
heimild reyni. – jóe
Málskostnaður
Sindra kærður
til Hæstaréttar
Rausnarlegir krakkar í Árborg
rjúpur eru
vinsæll kvöld-
verður á
jólunum.
1 9 . D e s e M b e r 2 0 1 7 Þ r I ð j u D A G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A ð I ð
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
9
-D
3
C
8
1
E
8
9
-D
2
8
C
1
E
8
9
-D
1
5
0
1
E
8
9
-D
0
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K