Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 22

Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 22
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Körfuboltakonan Hallveig Jónsdóttir hefur átt mjög gott tímabil með liði Vals sem trónir á toppi Domino’s-deildar kvenna sem nú er komin í stutt jólafrí. Hallveig er að spila sitt sjötta tímabil með liði Vals og er um leið að spila sitt besta tímabil á ferlinum að eigin mati. „Valsliðið stefnir hátt í ár og er draumurinn auðvitað að vinna titil. Þar sem við erum dottnar úr bikarnum kemur bara eitt til greina, að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Sjálf ætla ég að halda áfram að spila eins og ég hef gert hingað til, af miklu öryggi og áræði. Með tímanum og reynslu er svo draumurinn að vera með lykilhlutverk í landsliðinu.“ Hallveig er á lokaári í viðskipta- fræði við Háskóla Íslands og starfar hjá Arion banka sem hún segir frábæran vinnustað. „Ég stefni á mastersnám í fjármálum að loknu BS-námi en þar liggur áhugasvið mitt. Draumurinn er að enda í flottri stöðu innan bankans.“ Hvernig er dæmigerð helgi? Yfir tímabilið er stutt á milli leikja og þá eru helgarnar oft nýttar í rólegheit. Við eigum yfirleitt leik á laugar- dögum og þá er fínt að nýta laugar- dagskvöldið og sunnudaginn í að safna orku. Oft er nú samt eitthvað skemmtilegt í gangi um helgar sem leiðir til þess að maður kíki út á lífið. Er mikið jólastress í gangi? Nei, ég get ekki sagt það, eftir allt prófa- stressið þá finnst mér jólastress ekki koma til mála. Við vinkon- urnar ákváðum að verðlauna okkur eftir prófatíðina og gefa okkur góða ferð til London í jólagjöf. Ég verð því í London vikuna fyrir jól að njóta og kaupa jólagjafir fyrir vini og vandamenn. Hvernig eyðir þú jólum og ára- mótum? Með fjölskyldunni minni. Þetta er mikill „kósí“ tími hjá okkur og um að gera að njóta. Jólin eru einstaklega róleg heima í faðmi fjöl- skyldunnar á meðan áramótin eru í aðeins meiri partígír. Hvað færðu þér í morgunmat? Ég hef enga fasta rútínu hvað varðar morgunmat á virkum dögum. Um helgar er hins vegar hefð á mínu heimili að fara í bakaríið sem ég kann vel að meta. Hvað finnst þér gott að fá þér í kvöldmat? Uppáhaldsmaturinn minn er nautasteik. Annars er ég þessi klassíska og finnst pitsan og hamborgarinn alltaf góður Hver er erfiðasti mótherjinn? Í dag er erfiðasti mótherjinn lið Kefla- víkur. Ungt og efnilegt lið sem tók báða titlana í fyrra. Hvernig kemur þú þér í gírinn fyrir leik? Ég reyni að halda stressinu og spennunni í skefjum. Dreifi hug- anum yfir daginn og geri eitthvað til að halda mér upptekinni. Þegar það er stutt í leik finnst mér gott að hlusta á góða tónlist, tónlist sem kemur manni í gírinn. Ertu morgunhani eða finnst þér gott að sofa út? Ég er mikil A-manneskja. Vegna skóla og vinnu þarf ég að vakna snemma á virkum dögum. Um helgar finnst mér því gott að geta sofið aðeins út. Ertu nammigrís? Það er ekkert leyndarmál að ég er mikill nammi- grís. Ég er sjúk í súkkulaði og segi aldrei nei við laugardagsafslætt- inum. Stefnir á titilinn í vor Hallveig Jónsdóttir hefur átt mjög gott tímabil með kvennaliði Vals í körfubolta. Deildin er komin í stutt jólafrí og ætlar Hallveig að eyða jólunum og áramótunum í faðmi fjölskyldunnar. Hallveig Jónsdóttir hefur leikið tólf landsleiki fyrir Íslands hönd. Hér er hún á Smáþjóðaleikunum í San Marínó snemma sumars í góðum félagsskap. Það er gaman að skreyta í kringum sig fyrir jólin. Um leið ætti að huga að réttu perunum og spara rafmagnið. Jólamánuðurinn er dýr og þess vegna þarf að huga að því hvernig hægt sé að spara, til dæmis rafmagnið. Það getur verið dýrt að lýsa húsið upp með jólaseríum. Þess vegna er áríðandi að setja frekar upp LED-ljós. Þau geta leitt til allt að 80 prósenta sparn- aðar á rafmagnsreikningnum miðað við venjulegar perur. LED-perurnar eru umhverfisvænni samtímis því að vera ódýrari í rekstri. Með því að hafa ljósin tímastillt er hægt að spara enn meira. Þeir sem skreyta húsin sín mikið ættu að huga að þeim sparnaðarleiðum sem til eru. Einn- ig þarf að huga að gæðum. LED- ljós eru mismunandi að gæðum eins og margt annað. Þannig er oft samasemmerki á milli verðs og gæða. Öll ljós á heimilinu ættu að vera með sparperum. Það dregur mjög úr orkunotkun. Ljós ættu ekki að loga að óþörfu. Þótt gaman sé að lýsa upp skammdegið er rétt að huga einnig að kostnaði. Desember er dýr mánuður svo það er um að gera að spara þar sem það er hægt. Mismuninn væri hægt að nota til að kaupa jólamat eða -gjafir. Sparið og veljið réttu perurnar Tommy Hilfiger úrin fást í úraverslunum.Tommy Hilfiger úrin fást í úraverslunum. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . d E S E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 9 -E C 7 8 1 E 8 9 -E B 3 C 1 E 8 9 -E A 0 0 1 E 8 9 -E 8 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.