Fréttablaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 6
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
Þú átt rétt á 11 tíma
hvíld milli vinnudaga
- líka í desember!
• Nýtt útlit, öfl ugri og hljóðlátari
• Stiglaus hraðastýring ásamt
pulse rofa og 5 prógrömmum
• Uppskriftabók fylgir
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Pro750
Jólagjöfi n í ár
Verslun „Sá sem skýtur þessu upp
finnur engan mun,“ segir Jón Ingi
Sigvaldason hjá Landsbjörg. Eftir
níu daga hefst árleg flugeldasala
björgunarsveitanna. Nýjar reglur
hafa verið settar um flugelda en
fyrir ári bárust fréttir af því að regl-
urnar hefðu í för með sér að kraft-
mestu bomburnar yrðu bannaðar
um þessi áramót.
Jón Ingi segir að sú sé ekki raunin.
Stóru skotterturnar, eins og þær
voru samsettar áður, séu vissulega
bannaðar en að íslensk reglugerð
hafi tekið gildi þar sem samsettar
kökur eru heimilaðar. Tuttugu og
fjögurra kílóa skottertur séu núna
samsettar af fjórum minni kökum,
svo dæmi sé tekið. Jón Ingi segir
að reglurnar sem gildi nú séu sams
konar og hafi gilt í Evrópu undan-
farin ár. Hann segir að á Íslandi
undanfarin fjögur ár hafi allar skot-
terturnar verið CE-vottaðar, svo
krafa Evrópusambandsins um CE-
stöðlun breyti engu fyrir björgunar-
sveitirnar.
„Við erum komin á mjög eðlilegan
stað, eins og Evrópa,“ segir Jón Ingi
og heldur áfram: „Þessar áhyggjur í
fyrra um að það yrðu ekkert nema
stjörnuljós og blys voru alveg óþarf-
ar,“ segir hann. Einn kveikiþráður
sé á samsettu tertunum, eins og á
hinum gömlu og viðskiptavinurinn
finni engan mun. Krafturinn verði
sá sami.
Jón Ingi segir að Landsbjörg búist
við svipaðri sölu og í fyrra. Efna-
hagsástandið er með besta móti og
Jón Ingi viðurkennir að það kæmi
honum ekki á óvart ef salan yrði
eitthvað meiri. „Það væri ekkert
ólíklegt miðað við hvað það selst
mikið af nýjum bílum,“ segir hann.
Flugeldasalan hefst 28. desember,
venju samkvæmt. Jón Ingi segir að
salan skipti björgunarsveitirnar öllu
máli. „Við fjármögnum starfsemina
með þessu og í sumum sveitunum
koma 95% teknanna af flugelda-
sölunni,“ segir hann.
Landsbjörg stendur í ströngu
þessa dagana við að koma flug-
eldunum á sölustaði, um land allt.
Hann segir að hertar reglur um
flutning flugelda innanbæjar hafi
torveldað sveitunum, sem eru með
fleiri en einn sölustað, dreifinguna
en þá má ekki flytja í sendibílum
nema bílarnir hafi til þess leyfi.
Slíkir sendibílar séu ekki á hverju
strái og því hafi sú leið verið farin að
flytja flugelda á milli staða í gámum.
Hann segir það mikið púsluspil að
koma flugeldunum hingað heim og
á rétta staði. „Við megum til dæmis
bara nota eina höfn í Evrópu,“ segir
hann og bætir við: „Ég er í tetris alla
daga.“
Gamlársdagur er að þessu sinni á
sunnudegi. Jón Ingi segir að þegar
svo háttar til sé salan oft á tíðum
meiri fyrstu dagana. Þeir sem ætli að
bregða sér af bæ yfir helgi, til dæmis
í sumarbústaði, séu oft snemma í
því. „Ég býst við að það verði mikið
að gera fyrri part sölutímabilsins,“
segir hann og bætir við: „Nú þurfum
við bara smá snjó fyrir áramótin,
svo það verði auðveldara að skjóta
upp.“ baldurg@frettabladid.i
Áhyggjur af kraftlitlum
skoteldum mesti óþarfi
Þótt stærstu terturnar hafi verið bannaðar heimilar íslensk reglugerð sölu á sam-
settum skottertum. Sambærilegar reglur gilda í Evrópu. Fulltrúi Landsbjargar
segir að notendur muni engan mun finna. Búist við svipaðri sölu og í fyrra.
Stóru bomburnar eru nú samsettar til að fylgja kröfum nýrra reglna um flug-
eldasölu sem tóku gildi hér á landi um síðustu áramót. Fréttablaðið/anton brink
Reykfyllt herbergi
Það varð uppi fótur og fit á albanska þinginu í gær þegar stjórnarandstöðuþingmenn sprengdu reyksprengju í þingsal. Verið var að ræða um tímabundna
skipan ríkissaksóknara þegar íhaldsþingmenn smygluðu inn reyksprengju og sprengdu í mótmælaskyni við val sósíalistanna í ríkisstjórn. nordicphotoS/aFp
kjaramál „Við erum búnir að vinna
þetta eins vel og hægt er í hendurnar
á kjararáði og erum mjög fegnir
að það standi til að birta þennan
úrskurð,“ segir Kristján Björnsson,
formaður Prestafélags Íslands, um
nýjan úrskurð kjararáðs um laun
þeirra embættismanna sem heyra
undir þjóðkirkjuna.
Úrskurður kjararáðs var felldur
um helgina og verður birtur á
vef ráðsins um miðja viku. Engar
upplýsingar fást hjá meðlimum ráðs-
ins um innihaldið. Einn kirkjunnar
þjóna sem ekki vill koma fram undir
nafni segir að ákvörðunin færi bisk-
upi og vígslubiskupunum tveimur
„verulegar hækkanir“.
Aðspurður um þetta kveðst Krist-
ján Björnsson ekki telja rétt að svara
spurningum um úrskurðinn fyrr en
kjararáð sjálft birtir hann. Um er að
ræða biskupa, prófasta, presta og svo
framvegis. Kristján segir presta ekki
hafa fengið um sig sérstaka kjara-
ákvörðun frá árinu 2005 heldur
aðeins fylgt almennum breytingum.
Þeir hafi tekið á sig launalækkun eftir
hrunið og ekki gert neinar kröfur nú
heldur einungis gert kjararáði grein
fyrir störfum sínum.
Ekki náðist í Agnesi M. Sigurðar-
dóttur biskup og Kristján Valur
Gíslason, vígslubiskup í Skálholti,
segist ekki hafa heyrt um niðurstöðu
kjararáðs. – gar
Kirkjumenn fá
launahækkun
kristján
björnsson,
formaður
prestafélags
Íslands.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð j u d a G u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
9
-F
B
4
8
1
E
8
9
-F
A
0
C
1
E
8
9
-F
8
D
0
1
E
8
9
-F
7
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K