Fréttablaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 18
Handbolti Þórir Hergeirsson vann
um helgina til verðlauna á stórmóti í
tíunda sinn sem aðalþjálfari norska
kvennalandsliðsins – og það í aðeins
ellefu tilraunum. Norðmenn urðu
að sætta sig við silfur á HM í Þýska-
landi eftir tap fyrir Frakklandi í
úrslitaleiknum, 23-21.
„Það væri lítil auðmýkt í því
að vera ekki stoltur af silfurverð-
launum,“ sagði Þórir við Frétta-
blaðið í gær og kvaðst ánægður með
árangurinn, þó svo að það hafi verið
svekkjandi að tapa úrslitaleiknum.
„Við höfum ekki tapað mörgum
úrslitaleikjum í gegnum tíðina en
það er alltaf svekkjandi. Frammi-
staða okkar á mótinu kom mér
þægilega á óvart og í raun margt
jákvætt hjá okkur, ekki síst á jafn
sterku móti og þessi keppni var,“
segir Þórir. „En það var hrikalegt að
klikka á undirstöðuþáttum okkar
leiks í úrslitaleiknum – markvörslu
og hraðaupphlaupum.“
Hann segist engar skýringar hafa
á því af hverju markverðir norska
liðsins vörðu aðeins fjögur skot af
27 gegn Frökkum. „Það hefur að ég
held aldrei gerst áður,“ segir Þórir en
bendir á að bæði meiðsli og veikindi
hafi sett strik í reikninginn. Það sé
ekki eina skýringin, markvarslan
hafi farið niður á við eftir því sem
liðið hafi á mótið. Þá hafi lítil mark-
varsla í úrslitaleiknum ekki hjálpað
til í hraðaupphlaupunum, þó svo
að Frakkar hafi lagt ofurkapp á að
hægja á leiknum.
„Það voru samt hraðaupphlaups-
möguleikar hjá okkur en það var
engu líkara en að við værum með
handbremsuna á í þessum leik. Svo
brennum við af fjórum vítum sem
var mjög dýrt. Þetta er algjörlega úr
takti hjá okkur,“ segir hann.
Ekki allir sérfræðingar
Þrátt fyrir að flestir séu ánægðir með
árangur norska liðsins heima fyrir
heyrast alltaf óánægjuraddir. Þórir
var til að mynda gagnrýndur eftir
leik í norskum miðlum í gær af sér-
fræðingum í sjónvarpi. Þórir tekur
umtal um norska liðið ekki inn á sig.
„Það er bara hluti af þessu. Miklu
fleiri eru jákvæðir en hitt þó svo
að allir séu svekktir með að tapa
úrslitaleik. Það er flott að þetta lið
skapi umtal og betra en að öllum sé
skítsama. Svo getur maður líka valið
á hverja maður hlustar. Maður ljær
klóku fólki eyra en það eru ekki
allir sérfræðingar sem titla sig sér-
fræðinga,“ sagði Þórir.
Í æfingabúðir með Frökkum
Norðmenn hafa verið með talsverða
yfirburði í íþróttinni síðustu ár en
ógnarsterkt lið Frakka er líklegt til
að gera atlögu að þeim yfirburðum.
„Frakkland vann síðast árið 2003
og þó svo að engir titlar hafa komið
síðan þá hafa þeir alltaf verið með
í baráttunni um verðlaun. Nú eru
þeir með firnasterkt lið og mikla
breidd. Frakkland er mikil hand-
boltaþjóð,“ segir Þórir en Norð-
menn munu næsta sumar fara í
æfingabúðir með Frökkum og spila
við þá nokkra leiki á næsta ári.
„Það er mikilvægt. Við höfum
gert of lítið af því að spila við þær
og ungu leikmennirnir okkar þurfa
á því að halda.“
Þórir segist yfirleitt fljótur að
hrista af sér tapleiki en það sé mis-
munandi. Það sitji þó í honum að
hugsa til þess hversu lítið vantaði
upp á. „Það þurfti bara að nýta tvö
vítin og verja einn bolta til viðbótar.
Þá hefðum við unnið þennan leik.“
eirikur@frettabladid.is
Ég er stoltur af silfrinu
Þórir Hergeirsson náði ekki að verja heimsmeistaratitilinn með Noregi eftir
tap fyrir Frakklandi í úrslitaleiknum á sunnudag. Hann segir erfitt að útskýra af
hverju grundvallarþættir í leik liðsins brugðust þegar mest á reyndi.
olísdeild karla
FH - Haukar 30-29
Markahæstir: Ásbjörn Friðriksson 9, Einar
Rafn Eiðasson 5, Gísli Þorgeir Kristjánsson
4, Óðinn Þór Ríkharðsson 3. Hákon Daði
Styrmisson 7, Atli Már Báruson 6, Daníel Þór
Ingason 6, Adam Haukur Baumruk 3.
Efst
FH 24
Valur 21
Selfoss 20
ÍBV 20
Haukar 17
ÍR 13
Neðst
Stjarnan 13
Afturelding 13
Fram 8
Grótta 7
Fjölnir 5
Víkingur 5
Nýjast
TeiTur æfir með krisTiansTad
Selfyssingurinn skotfasti, Teitur Örn
Einarsson, mun æfa og skoða að-
stæður hjá Kristian-
stad á næstu
dögum. Teitur
er markahæsti
leikmaður Selfoss
í vetur. Kristian-
stad er sænskur
meistari og með
liðinu leika þrír Íslendingar;
Arnar Freyr Arnarsson, Ólafur
Guðmundsson og Gunnar Steinn
Jónsson. Teitur hefur farið mikinn
í markaskorun með Selfossi í vetur
og er kominn með 107 mörk í 14
deildarleikjum.
Enska úrvalsdeildin
Everton - Swansea 3-1
0-1 Leroy Fer (35.), 1-1 Dominic Calvert-
Lewin (45+2.), 2-1 Gylfi Þór Sigurðsson (64.),
3-1 Wayne Rooney (víti 73.).
Efst
Man. City 52
Man. Utd. 41
Chelsea 38
Liverpool 34
Arsenal 33
Neðst
B’mouth 16
Stoke 16
Newcastle 15
West Brom 14
Swansea 12
Í dag
19.40 Arsenal - West Ham Sport
19.30 Leicester - Man. City Sport 2
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Fimleikafatnaður í Ástund
Mikið úrval að fimleikafatnaði.
Toppar, buxur, bolir
margir litir.
1 9 . d E s E m b E r 2 0 1 7 Þ r i Ð J U d a G U r18 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð
sport
Óðinn Þór tryggði hvít jól í Hafnarfirði
Handbolti fH vann baráttuna um Hafnarfjörðinn þegar Haukar komu í heimsókn í kaplakrika í gær. með sigrinum tryggði fH sér toppsæti Olís-
deildarinnar yfir jólin. Leikurinn var í járnum allt frá fyrstu mínútu og úrslit réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Óðinn Þór ríkharðsson náði
þá frákastinu eftir að einar rafn eiðsson skaut í slá og vippaði boltanum sultuslakur yfir Björgvin Pál Gústavsson í markinu. FréttAbLAðið/ANtoN briNk
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
A
-0
5
2
8
1
E
8
A
-0
3
E
C
1
E
8
A
-0
2
B
0
1
E
8
A
-0
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K