Fréttablaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 16
Ég hef unnið að málefnum eldri borgara í 14 ár. Ég lét af störfum fyrir 15 árum fyrir aldurs sakir og hef mestallan tímann síðan unnið að málefn-
um eldri borgara, í stjórn Félags eldri
borgara í Reykjavík, sem formaður
kjaranefndar Félags eldri borgara
í Rvk og með því að skrifa greinar í
dagblöðin um málefni aldraðra.
Ég hef nokkuð góða yfirsýn yfir
þennan málaflokk og tel mig hafa
þokkalega þekkingu á honum. Því
miður er dómur minn sá, að allir
stjórnmálaflokkar hafa brugðist eldri
borgurum. Það er alveg sama hvaða
stjórnmálaflokkar hafa verið við
völd; þeir hafa allir hundsað aldraða.
Ástæðan er sérstakt rannsóknarefni.
Hún er óskiljanleg. Það er hins vegar
misjafnt hvað stjórnvöld þykjast gera
mikið fyrir eldri borgara.
Sumar ríkisstjórnir berja sér á
brjóst og látast vera að vinna mikil
afrek fyrir aldraða. En yfirleitt er
engin innistæða fyrir þeirri afreka-
skrá. Eldri borgarar vona alltaf, að
breyting verði á og einstaka sinnum
láta ráðamenn einhverja mola falla
af borðum til aldraðra. En það hvarfl-
ar ekki að ráðamönnum að taka sér
tak í þessum málaflokki og gerbreyta
um stefnu, lyfta kjörum aldraðra svo
myndarlega upp, að eldri borgarar
geti lifað með reisn síðasta æviskeið
sitt.
Ný stjórn eins og eldri stjórnir
Ný ríkisstjórn, sem var að taka við
völdum, er ekki frábrugðin fyrri
stjórnum í þessu efni. Hún fetar
troðnar slóðir; gerir ekkert fyrir
eldri borgara. Það eina bitastæða,
sem mátti sjá í stjórnarsáttmálanum
varðandi eldri borgara, var það, að
þeir mættu vinna örlítið lengur en
áður án þess að tryggingalífeyrir
þeirra yrði skertur. Rétt eins og aldr-
aðir, sem búnir eru að vera á vinnu-
markaði alla sína starfsævi, vilji helst
fá að vinna meira, þegar þeir eru
komnir á eftirlaunaaldur.
Fyrsta krafan er að sjálfsögðu sú,
að eldri borgarar geti lifað af lífeyri
sínum án þess að vera á vinnumark-
aðnum. En það er engin leið að gera
það í dag. 197 þús. kr. eftir skatt hafa
eldri borgarar, sem eru í sambúð eða
hjónabandi; eftir skatt, þeir, sem
eingöngu hafa tekjur frá TR. Þann-
ig er þetta í miðju góðærinu. Og það
skiptir engu þó Félag eldri borgara
hafi sagt frá því, að dæmi væru um
að eldri borgarar hringdu til félagsins
og segðu, að þeir ættu ekki fyrir mat.
Samt gera stjórnvöld ekkert; samt
lætur ný stjórn málið vera.
Það breytir engu þó Vinstri græn
séu komin í stjórnina. Það hefði átt
að laga kjör aldraðra og öryrkja á
fyrsta degi ríkisstjórnarinnar með
útgáfu bráðabirgðalaga. Nei, það datt
ekki nýjum ráðamönnum í hug. En
þeir hefðu gert það, ef banna hefði
þurft verkfall. Þá hefði ekki staðið á
því að gefa út bráðabirgðalög.
Nú hefur fjárlagafrumvarp nýju
ríkisstjórnarinnar verið lagt fram.
Ekki ber það þess merki, að vinstri
flokkur sé kominn í stjórnina.
Frumvarpið hefði sennilega verið
alveg eins þó Íhaldið og Framsókn
ein hefðu lagt það fram. Allavega
er frumvarpið mjög svipað frum-
varpinu, sem Benedikt Jóhannesson
lagði fram; örlítið meiri framlög til
heilbrigðismála og menntamála en
lítil framlög til barnafólks, svo sem í
barnabætur og til fæðingarorlofs og
húsnæðismálin alveg út undan.
Ekkert er lagt til útrýmingar á
fátækt eða til annarra mála, sem
flokkast geta undir félagshyggju.
Hálfur milljarður í niðurgreiðslu á
tannlæknakostnaði á miðju næsta
ári, sem átti að koma fyrir 8-10 árum,
er ræfilslegt framlag; Kristján Þór
Júlíusson lofaði sem heilbrigðisráð-
herra 800 millj. í þennan málaflokk
sl. haust en það var svikið. Nú segist
ríkisstjórnin ætla að lækka tann-
læknakostnað aldraðra en eftir er að
sjá hvort betur verður staðið við það
en loforðið sem fyrri ríkisstjórn gaf.
Ekkert gert heldur fyrir öryrkja
Ég reiknaði með því, að ríkisstjórnin
mundi gera eitthvað fyrir öryrkja í
jólamánuðinum enda þótt lífeyrir
aldraðra væri ekki hækkaður um
eina krónu fyrir jólin. En því miður;
svo varð ekki. Öryrkjar fengu ekki
heldur neinar kjarabætur í jóla-
mánuðinum. Öryrkjar hafa verið
enn verr staddir en aldraðir frá því
ný lög um almannatryggingar voru
sett 1. janúar sl.
Með nýju lögunum var krónu móti
krónu skerðingin afnumin hjá eldri
borgurum en hún var látin haldast
hjá öryrkjum. Það þýddi, að ef öryrki
vann sér inn nokkrar krónur, til
dæmis 40 þúsund kr., var jafnhá upp-
hæð dregin af lífeyri öryrkjans, fram-
færsluviðmiðinu. Öryrkinn stóð því
í sömu sporum á eftir eins og hann
hefði ekki unnið fyrir neinu. Þetta
var forkastanlegt. Þetta var refsiað-
gerð, sem ríkisstjórn Sigurðar Inga og
Bjarna Ben. greip til gegn öryrkjum.
Ég hefði haldið, að Vinstri græn
mundu leiðrétta þennan ósóma
strax fyrir jól og hækka lífeyrinn
eitthvað í leiðinni, þar eð hann er
svo lágur, að engin leið er að lifa af
honum. Þetta gildir bæði fyrir aldr-
aða og öryrkja, sem eingöngu hafa
tekjur frá almannatryggingum.
Nýr félagsmálaráðherra, Ás-
mundur Einar Daðason, átti fund
með fulltrúum Öryrkjabandalags-
ins og talaði þar fallega við þá um
að hann ætlaði að bæta kjör þeirra
og aðstöðu. Fulltrúar ÖBÍ fóru fullir
bjartsýni frá ráðherra en vonbrigði
þeirra voru mikil, þegar þeir sáu
fjárlagafrumvarpið og engar kjara-
bætur var að finna þar þeim til
handa í jólamánuðinum. Því miður
ætla Vinstri græn að staðfesta kenn-
ingu mína um, að það sé alveg sama
hvaða flokkur sé í stjórn: Þeir hundsa
allir eldri borgara og raunar öryrkja
einnig.
Eldri borgarar geti lifað með reisn af lífeyri
sínum án þess að vera á vinnumarkaðinum
Björgvin
Guðmundsson
viðskipta
fræðingur
Ég hefði haldið, að Vinstri
græn mundu leiðrétta
þennan ósóma strax fyrir jól
og hækka lífeyrinn eitthvað
í leiðinni, þar eð hann er svo
lágur, að engin leið er að lifa
af honum. Þetta gildir bæði
fyrir aldraða og öryrkja, sem
eingöngu hafa tekjur frá al-
mannatryggingum.
Rými ehf. | Urðarhvarf 4 | 203 Kópavogi | s. 511 1100 | www.rymi.is | rymi@rymi.is
Inniskilti - Útiskilti - Fataslár - Herðatré
Hágæðavörur
fyrir kröfuharða
DSE Vindskilti Budget
50x70 cm - Verð m/vsk: 37.102 kr.
70x100 cm - Verð m/vsk: 53.232 kr.
DSE Vindskilti
Basic 50x70 cm
Verð m/vsk: 44.726 kr.
DSE Vindskilti
50x70 cm vatnsb
Verð m/vsk: 44.200 kr.
DSE A skilti
50x70 cm hvítt
Verð m/vsk: 28.874 kr.
DSE Krítarskilti
60x80cm
Verð m/vsk: 32.214 kr.
FATASLÁ FELLANLEG
100 cm - Verð m/vsk: 22.265 kr.
140 cm - Verð m/vsk: 23.179 kr.
DSE uppl standur
portrait / landscape
A4 - Verð m/vsk: 15.816 kr.
A3 - Verð m/vsk: 18.649 kr.
DSE Álrammi 25 mm
A4 - Verð m/vsk: 3.134 kr.
A3 - Verð m/vsk: 4.828 kr.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r16 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
9
-F
1
6
8
1
E
8
9
-F
0
2
C
1
E
8
9
-E
E
F
0
1
E
8
9
-E
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K