Fréttablaðið - 19.12.2017, Side 16

Fréttablaðið - 19.12.2017, Side 16
Ég hef unnið að málefnum eldri borgara í 14 ár. Ég lét af störfum fyrir 15 árum fyrir aldurs sakir og hef mestallan tímann síðan unnið að málefn- um eldri borgara, í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík, sem formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Rvk og með því að skrifa greinar í dagblöðin um málefni aldraðra. Ég hef nokkuð góða yfirsýn yfir þennan málaflokk og tel mig hafa þokkalega þekkingu á honum. Því miður er dómur minn sá, að allir stjórnmálaflokkar hafa brugðist eldri borgurum. Það er alveg sama hvaða stjórnmálaflokkar hafa verið við völd; þeir hafa allir hundsað aldraða. Ástæðan er sérstakt rannsóknarefni. Hún er óskiljanleg. Það er hins vegar misjafnt hvað stjórnvöld þykjast gera mikið fyrir eldri borgara. Sumar ríkisstjórnir berja sér á brjóst og látast vera að vinna mikil afrek fyrir aldraða. En yfirleitt er engin innistæða fyrir þeirri afreka- skrá. Eldri borgarar vona alltaf, að breyting verði á og einstaka sinnum láta ráðamenn einhverja mola falla af borðum til aldraðra. En það hvarfl- ar ekki að ráðamönnum að taka sér tak í þessum málaflokki og gerbreyta um stefnu, lyfta kjörum aldraðra svo myndarlega upp, að eldri borgarar geti lifað með reisn síðasta æviskeið sitt. Ný stjórn eins og eldri stjórnir Ný ríkisstjórn, sem var að taka við völdum, er ekki frábrugðin fyrri stjórnum í þessu efni. Hún fetar troðnar slóðir; gerir ekkert fyrir eldri borgara. Það eina bitastæða, sem mátti sjá í stjórnarsáttmálanum varðandi eldri borgara, var það, að þeir mættu vinna örlítið lengur en áður án þess að tryggingalífeyrir þeirra yrði skertur. Rétt eins og aldr- aðir, sem búnir eru að vera á vinnu- markaði alla sína starfsævi, vilji helst fá að vinna meira, þegar þeir eru komnir á eftirlaunaaldur. Fyrsta krafan er að sjálfsögðu sú, að eldri borgarar geti lifað af lífeyri sínum án þess að vera á vinnumark- aðnum. En það er engin leið að gera það í dag. 197 þús. kr. eftir skatt hafa eldri borgarar, sem eru í sambúð eða hjónabandi; eftir skatt, þeir, sem eingöngu hafa tekjur frá TR. Þann- ig er þetta í miðju góðærinu. Og það skiptir engu þó Félag eldri borgara hafi sagt frá því, að dæmi væru um að eldri borgarar hringdu til félagsins og segðu, að þeir ættu ekki fyrir mat. Samt gera stjórnvöld ekkert; samt lætur ný stjórn málið vera. Það breytir engu þó Vinstri græn séu komin í stjórnina. Það hefði átt að laga kjör aldraðra og öryrkja á fyrsta degi ríkisstjórnarinnar með útgáfu bráðabirgðalaga. Nei, það datt ekki nýjum ráðamönnum í hug. En þeir hefðu gert það, ef banna hefði þurft verkfall. Þá hefði ekki staðið á því að gefa út bráðabirgðalög. Nú hefur fjárlagafrumvarp nýju ríkisstjórnarinnar verið lagt fram. Ekki ber það þess merki, að vinstri flokkur sé kominn í stjórnina. Frumvarpið hefði sennilega verið alveg eins þó Íhaldið og Framsókn ein hefðu lagt það fram. Allavega er frumvarpið mjög svipað frum- varpinu, sem Benedikt Jóhannesson lagði fram; örlítið meiri framlög til heilbrigðismála og menntamála en lítil framlög til barnafólks, svo sem í barnabætur og til fæðingarorlofs og húsnæðismálin alveg út undan. Ekkert er lagt til útrýmingar á fátækt eða til annarra mála, sem flokkast geta undir félagshyggju. Hálfur milljarður í niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði á miðju næsta ári, sem átti að koma fyrir 8-10 árum, er ræfilslegt framlag; Kristján Þór Júlíusson lofaði sem heilbrigðisráð- herra 800 millj. í þennan málaflokk sl. haust en það var svikið. Nú segist ríkisstjórnin ætla að lækka tann- læknakostnað aldraðra en eftir er að sjá hvort betur verður staðið við það en loforðið sem fyrri ríkisstjórn gaf. Ekkert gert heldur fyrir öryrkja Ég reiknaði með því, að ríkisstjórnin mundi gera eitthvað fyrir öryrkja í jólamánuðinum enda þótt lífeyrir aldraðra væri ekki hækkaður um eina krónu fyrir jólin. En því miður; svo varð ekki. Öryrkjar fengu ekki heldur neinar kjarabætur í jóla- mánuðinum. Öryrkjar hafa verið enn verr staddir en aldraðir frá því ný lög um almannatryggingar voru sett 1. janúar sl. Með nýju lögunum var krónu móti krónu skerðingin afnumin hjá eldri borgurum en hún var látin haldast hjá öryrkjum. Það þýddi, að ef öryrki vann sér inn nokkrar krónur, til dæmis 40 þúsund kr., var jafnhá upp- hæð dregin af lífeyri öryrkjans, fram- færsluviðmiðinu. Öryrkinn stóð því í sömu sporum á eftir eins og hann hefði ekki unnið fyrir neinu. Þetta var forkastanlegt. Þetta var refsiað- gerð, sem ríkisstjórn Sigurðar Inga og Bjarna Ben. greip til gegn öryrkjum. Ég hefði haldið, að Vinstri græn mundu leiðrétta þennan ósóma strax fyrir jól og hækka lífeyrinn eitthvað í leiðinni, þar eð hann er svo lágur, að engin leið er að lifa af honum. Þetta gildir bæði fyrir aldr- aða og öryrkja, sem eingöngu hafa tekjur frá almannatryggingum. Nýr félagsmálaráðherra, Ás- mundur Einar Daðason, átti fund með fulltrúum Öryrkjabandalags- ins og talaði þar fallega við þá um að hann ætlaði að bæta kjör þeirra og aðstöðu. Fulltrúar ÖBÍ fóru fullir bjartsýni frá ráðherra en vonbrigði þeirra voru mikil, þegar þeir sáu fjárlagafrumvarpið og engar kjara- bætur var að finna þar þeim til handa í jólamánuðinum. Því miður ætla Vinstri græn að staðfesta kenn- ingu mína um, að það sé alveg sama hvaða flokkur sé í stjórn: Þeir hundsa allir eldri borgara og raunar öryrkja einnig. Eldri borgarar geti lifað með reisn af lífeyri sínum án þess að vera á vinnumarkaðinum Björgvin Guðmundsson viðskipta­ fræðingur Ég hefði haldið, að Vinstri græn mundu leiðrétta þennan ósóma strax fyrir jól og hækka lífeyrinn eitthvað í leiðinni, þar eð hann er svo lágur, að engin leið er að lifa af honum. Þetta gildir bæði fyrir aldraða og öryrkja, sem eingöngu hafa tekjur frá al- mannatryggingum. Rými ehf. | Urðarhvarf 4 | 203 Kópavogi | s. 511 1100 | www.rymi.is | rymi@rymi.is Inniskilti - Útiskilti - Fataslár - Herðatré Hágæðavörur fyrir kröfuharða DSE Vindskilti Budget 50x70 cm - Verð m/vsk: 37.102 kr. 70x100 cm - Verð m/vsk: 53.232 kr. DSE Vindskilti Basic 50x70 cm Verð m/vsk: 44.726 kr. DSE Vindskilti 50x70 cm vatnsb Verð m/vsk: 44.200 kr. DSE A skilti 50x70 cm hvítt Verð m/vsk: 28.874 kr. DSE Krítarskilti 60x80cm Verð m/vsk: 32.214 kr. FATASLÁ FELLANLEG 100 cm - Verð m/vsk: 22.265 kr. 140 cm - Verð m/vsk: 23.179 kr. DSE uppl standur portrait / landscape A4 - Verð m/vsk: 15.816 kr. A3 - Verð m/vsk: 18.649 kr. DSE Álrammi 25 mm A4 - Verð m/vsk: 3.134 kr. A3 - Verð m/vsk: 4.828 kr. 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r16 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 9 -F 1 6 8 1 E 8 9 -F 0 2 C 1 E 8 9 -E E F 0 1 E 8 9 -E D B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.