Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 8
Skipulag Byggingarmagn og nán-
ari afmörkun á uppskiptingu lóða
í Elliðaárdal er í vinnslu en tillaga
að breyttu deiliskipulagi verður
kynnt með formlegum hætti eftir
áramót, samkvæmt upplýsingum
frá Reykjavíkurborg. Fallið hefur
verið frá því að tvöfalda Stekkjar-
bakka eins og fyrirhugað var vegna
þess að umferðaraukning um göt-
una reyndist minni en spár gerðu
ráð fyrir.
Í síðustu viku var greint frá
áformum um uppbyggingu stórs
gróðurhúss norðan Stekkjarbakka.
Samkvæmt upplýsingum frá borg-
inni er líklegt að Skálará, gamalt
hús á vegum Félagsbústaða þar sem
kanínur og andfuglar hafa gert sig
heimakomin, standi utan skipu-
lagssvæðisins þar sem gróðurhúsið
fær lóð. Af gögnum, sem birt voru á
vef borgarinnar fyrir síðustu helgi,
kom fram að húsið yrði innan
skipulagssvæðisins sem verið er
að hanna. Björn Ingi Edvardsson,
landslags arkitekt á umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkur, segir að
upphaflega hafi staðið til að bæði
húsið og umferðargatan Stekkjar-
bakki yrðu innan skipulagsins en
útlit sé fyrir að það muni breytast.
Ekki er því útlit fyrir að hróflað
verði við Skálará á grundvelli
deiliskipulagsins, þótt aðkoman
að húsinu geti breyst. Hins vegar
bendir Björn Ingi á að gildandi
aðalskipulag geri ráð fyrir að allar
byggingar á svæðinu muni víkja,
ef Gilsbakki, hús sem reist var var
1942, er undan skilinn. Skipulagstil-
lagan sem nú er í vinnslu mun taka
tillit til þess.
Skálará mun þannig víkja með
tíð og tíma en það er undir eiganda
lóðarinnar og hússins komið, borg-
inni, hvenær það verður. „Miðað
við fyrirliggjandi drög þá er ekki
gert ráð fyrir neinni uppbyggingu
við Stekkjarbakka 1, Skálará,“ segir
Björn Ingi í svari til Fréttablaðsins.
Í fornleifa- og húsakönnun á
svæðinu norðan Stekkjarbakka í
Elliðaárdal kemur fram að Þorvarð-
ur Björnsson yfirhafnsögumaður
hafi byggt húsið Skálará sem sum-
arbústað árið 1932. Þá var húsið
miklu minna en það er í dag, enda
hefur margoft verið byggt við það.
Í skýrslunni kemur fram að húsið
hafi gildi fyrir sögu óskipulagðrar
íbúabyggðar á svæðinu, sem nú sé
að mestu horfin. Þó er ekki gerð
tillaga að sérstökum verndunar-
ákvæðum fyrir húsið, þótt það hafi
gildi fyrir sögu svæðisins.
baldurg@frettabladid.is
Framtíð Elliðaárdals
kynnt eftir áramót
Íbúar og hagsmunaaðilar munu fá að sjá nýja tillögu að skipulagi norðan
Stekkjarbakka eftir áramót. Hætt hefur verið við að tvöfalda Stekkjarbakka líkt
og ætlunin var því umferðaraukning um götuna reyndist minni en spáð var.
Ekki er gert ráð fyrir að húsið Skálará í Elliðaárdal verði þar til frambúðar. Fréttablaðið/StEFán KarlSSon
Ekki er því útlit fyrir að
hróflað verði við Skálará á
grundvelli deiliskipulagsins,
þótt aðkoman að húsinu geti
breyst.
1 9 . d e S e m b e r 2 0 1 7 Þ r i Ð J u d a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
BÍLALAND BÝÐUR NOKKRA BÍLA Á EINSTÖKUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL Á FRÁBÆRU VERÐI!
Á VÖLDUM BÍLUM
LAND ROVER Discovery Sport SE
Nýskr. 02/17, ekinn 9 þ.km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður: 6.790.000 kr.
TILBOÐ 5.990 þús. kr.
RENAULT Megane Sport Tourer
Nýskr. 03/12, ekinn 96 þ.km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 1.490.000 kr.
TILBOÐ 1.090 þús. kr.
NISSAN Pulsar Visia
Nýskr. 04/16, ekinn 45 þ.km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður: 2.090.000 kr.
TILBOÐ 1.790 þús. kr.
SUBARU Levorg Premium
Nýskr. 01/17, ekinn 18 þ.km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 4.450.000 kr.
TILBOÐ 3.690 þús. kr.
HYUNDAI Santa Fe II
Nýskr. 02/13, ekinn 74 þ.km.
bensín/metan, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.990.000 kr.
TILBOÐ 2.490 þús. kr.
RENAULT Megane Berline
Nýskr. 05/14, ekinn 56 þ.km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður: 1.790.000 kr.
TILBOÐ 1.490 þús. kr.
Rnr. 153042
Rnr. 144324
Rnr. 330957
Rnr. 390367
Rnr. 121318
Rnr. 144344
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
5
6
2
0
B
íl
a
la
n
d
2
x
3
8
1
9
d
e
s
77.564
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
15.717
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
23.448
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
47.929
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
32.468
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
19.583
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
ViÐSkipti Isavia vísar því á bug að
fyrirtækið beiti bellibrögðum í
samkeppni við bílastæðafyrirtækið
BaseParking á Suðurnesjum en síðar-
nefnda fyrirtækið hefur kvartað til
Samkeppniseftirlitsins og sakað
Isavia um að nýta sér markaðsráð-
andi stöðu sína og aflsmuni til að
leggja stein í götu fyrirtækisins.
Isavia hefur ekki fengið umrædda
kvörtun í sínar hendur og getur því
ekki tjáð sig um efni hennar. Frétta-
blaðið sagði frá því í gær að fyrirtæk-
ið teldi Isavia vera farið að veita sam-
bærilega þjónustu og það hafi boðið
upp á til að koma höggi á það og að
Isavia hafi sektað fyrirtækið fyrir að
nýta sér sleppistæði við flugvöllinn í
mjög skamman tíma.
„Isavia hefur um árabil boðið
upp á þá þjónustu að leggja bif-
reiðum fyrir farþega og ekki um
neina nýbreytni að ræða. Þjónusta
sem þessi hefur verið í boði með
einhverjum hætti frá 2008 eða í tæp
10 ár,“ segir Guðjón Helgason, upp-
lýsingafulltrúi Isavia, og segir enn-
fremur að allir fái sektir fyrir að nýta
sér aðstöðu sem ekki er hugsuð sem
bílastæði.
„BaseParking fékk sekt fyrir að
leggja í sleppistæði við flugstöðina.
Þau eru hugsuð til þess að hleypa
farþegum út en ekki til þess að leggja
bifreiðum. Það kemur skýrt fram á
skiltum að óheimilt sé að leggja bif-
reiðum á þessum stað og að viðurlög
séu sektir. Allir þeir sem nota þessi
stæði í annað en að hleypa út farþeg-
um eru sektaðir,“ segir Guðjón. – sa
Vísa ásökunum um bellibrögð á bug
Saka isavia um að nýta sér markaðsráðandi stöðu sína. Fréttablaðið/StEFán
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
9
-F
6
5
8
1
E
8
9
-F
5
1
C
1
E
8
9
-F
3
E
0
1
E
8
9
-F
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K