Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 20
Fjölskyldufyrirtækið A. Smith er elsta starfandi þvottahús landsins og þjónar fjöl-
breyttum hópi viðskiptavina, allt
frá rónum upp í ráðherra eins og
Björn Þór Heiðdal, sem er í for-
svari fyrir þvottahúsið, orðar það.
Rætur fyrirtækisins liggja í þvotti á
skyrtum, dúkum og sængurfötum
fyrir bæði einstaklinga og hótel en
þar fæst einnig gott úrval af mjög
vönduðum rúmfatnaði og dúkum
frá Ítalíu, Króatíu og Kína. „Ég
vel aðeins það besta frá hverjum
framleiðanda og lækka frekar
álagninguna heldur en að kaupa
inn ódýrari vöru.“
Og gæðin eru svo sannarlega
í fyrirrúmi hjá A. Smith. „Ég er
orðinn mjög þreyttur á lélegum
rúmfötum sem aðrir eru að selja
hér á landi. Sjálfur er ég búinn að
þvo milljón rúmföt í gegnum árin.
Því miður eru margir sem sofa
undir rúmfötum frá Rúmfatalag-
ernum eða Lín Design og halda að
ekkert betra sé til. Eftir að Verið og
Fatabúðin hættu starfsemi hefur
enginn sérhæft sig í vönduðum
rúmfötum nema A. Smith. Reyndar
er ég að selja vandaðri vöru en
báðar þessar búðir gerðu.“
Hann segir A. Smith ekki kaupa
næst ódýrasta rúmfataefnið frá
Kína eða Pakistan, líma nokkur
íslensk blóm á þau og leggja síðan
1.000% álagningu ofan á. „Við
seljum rúmföt sem eru úr allra
bestu og dýrustu satín- og damask-
efnum sem til eru. Enda sofa
viðskiptavinir okkar betur í gæða-
rúmfötum frá okkur.“
Áhersla á gæði
Hann nefnir sem dæmi vönduðu
lúxusrúmfötin frá ítalska fyrir-
tækinu Quagliotti. „Þetta er lítið
fjölskyldufyrirtæki sem var
stofnað fyrir 80 árum. Þau leggja
mikla áherslu á gæði og vönduð
vinnubrögð og sjá t.d. bresku og
norsku krúnunni fyrir dúkum og
sængurfötum. Einnig selja þau til
fjölmargra virkilega flottra hótela
á borð við 101 Hotel í Reykjavík,
Ritz í París, Armani Hotel í Mílanó,
Caesars Palace í Las Vegas og The
Mark Hotel í New York. Í gegnum
árin hefur Quagliotti framleitt
dúka og sængurföt sem seld hafa
verið undir merkjum t.d. Gucci,
Lacroix og Dior. Þegar aðeins það
besta er nógu gott er því leitað til
Quagliotti með rúmföt og dúka.“
Ítölsku rúmfötin kosta 13.900,
18.000, 22.900 og 33.700 kr. en
einnig fást ódýrari 300-800 þráða
rúmföt frá Kína á 6.900, 8.900 og
12.500 kr.
Vandaðir dúkar
Einnig er boðið upp á vandaða
sparidúka frá franska fyrirtækinu
Le Jacquard Francais og frá Kró-
atíu. „Í tilefni jólanna létum við
framleiða sérstaklega fyrir okkur
jólasveinadiskaþurrkur í tveimur
litum, rauðar og grænar. Allir sem
kaupa sængurföt eða dúka fá eina í
jólagjöf frá okkur.“
Ásamt innflutningi á tilbúnum
sængurfötum flytur þvottahúsið
einnig inn hágæða damask- og
satínefni frá Ítalíu. „Um er að ræða
sex og sjö hundruð þráða damask-
og satínefni úr langþráða egypskri
bómull og bómull frá Perú. Fyrir
tíu árum kynntist ég saumakonu
sem saumaði mikið fyrir Fatabúð-
ina. Hún er sérstaklega vandvirk
og liðleg með sérpantanir og getur
saumað allar stærðir og lök líka.“
Einnig er boðið upp á leigu á
dúkum fyrir veislur og ráðstefnur.
„Við erum með mesta úrvalið
þegar kemur að stærðum og
gerðum dúka. Einnig held ég að við
séum líka ódýrust en bjóðum samt
upp á nýja dúka sem eru sérfram-
leiddir fyrir okkur í Króatíu.“
Tryggir viðskiptavinir
Viðskiptavinir þvottahússins eru
tryggir að sögn Björns Þórs. „Það
má segja að við séum í raun ódýr
heimilishjálp enda koma margir
með skyrtur, dúka og rúmfötin sín
í hreinsun til okkar. Við höfum
meira að segja tekið á móti þriðju
kynslóð úr sömu fjölskyldum sem
kemur til okkar með rúmfötin í
hreinsun.“
Það var afi Björns Þórs sem
stofnaði þvottahúsið árið 1946
sem varð því 70 ára á síðasta ári.
„Afi stofnaði fyrirtækið og for-
eldrar mínir keyptu það af honum
árið 1988 og ráku það saman
þangað til pabbi lést árið 2001.
Síðustu árin hef ég alfarið séð um
daglegan rekstur en móðir mín sér
um bókhaldið.“
Þvottahús A. Smith ehf. er á Berg-
staðastræti 52 í Reykjavík. Nánari
upplýsingar má finna á www.
damask.is.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Reynslumiklir starfsmenn A. Smith þvottahússins sauma íslenskt handverk
eftir máli úr úrvals ítölskum damask- og satínefnum.
Það tekur svo sannarlega tíma og krefst um leið vandvirkni að strauja sparidúka.
Þvottahúsið A. Smith býður upp á úrval af mjög vönduðum rúmfatnaði og
dúkum frá Ítalíu, Króatíu og Kína. MYND/ERNIR
Vönduðu lúxusrúmfötin frá ítalska fyrirtækinu Quagliotti
sameina glæsilegt útlit, vandað efni og góða endingu.Allir ættu að finna rúmföt við sitt hæfi hjá A. Smith, bæði einstaklingar og fyrirtæki.
Framhald af forsíðu ➛
Ég vel aðeins það
besta frá hverjum
framleiðanda og lækka
frekar álagninguna
heldur en að kaupa inn
ódýrari vöru.
Björn Þór Heiðdal
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
A
-0
0
3
8
1
E
8
9
-F
E
F
C
1
E
8
9
-F
D
C
0
1
E
8
9
-F
C
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K