Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 24
Að borða með
athygli felur í sér að
beina athyglinni með-
vitað að því að borða og
taka betur eftir merkjum
líkamans um svengd og
seddu.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
„Ótalmargt girnilegt og gómsætt
er á borðum í desembermánuði
og ekki nema eðlilegt að tilhlökk-
unin sé mikil til að fá að njóta
góða bragðsins,“ segir Hólmfríður
Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri nær-
ingar hjá Embætti landlæknis.
Hún segir landsmenn ekki þurfa
að hafa áhyggjur þótt brugðið sé út
af vananum í örfáa daga á ári.
„Það er mataræðið í heild og yfir
árið sem skiptir meginmáli. Þó er
það staðreynd að hjá mörgum er
meira og minna allur desember-
mánuður undirlagður af veislumat
og því ekki úr vegi að huga að því
hvernig við getum gert jólahátíð-
ina, og matinn sem henni fylgir,
heilsusamlegri.“
Hollari jólamatur
Að sögn Hólmfríðar þarf
veislumatur alls ekki að
vera óhollur og hægt er að
gera smáar breytingar
á matreiðslu í átt að
hollustu án þess að
það þurfi að hafa
mikil áhrif á bragð
matarins.
„Ef reyktur og
saltaður matur
er á borðum,
eins og hangi-
kjöt og ham-
borgarhryggur, er
hægt að velja saltminni vörur
og líka gott að stilla skammta-
stærðinni í hóf. Einnig að nota
fituminni rjóma í sósuna og svo
skiptir meðlætið einnig máli,
muna eftir grænmetinu og hafa
nóg af því með jólamatnum,“ segir
Hólmfríður.
Þá sé gott að bjóða upp á ávexti
í eftirrétt og millibita, sem og
hnetur og möndlur.
„Dagana á milli veisluhalda er
skynsamlegt að velja léttari mat og
koma fiski á matseðilinn.“
Borðum með athygli
Hólmfríður segir gott að gefa sér
góðan tíma til að njóta veisluhalda
jólanna og að borða með athygli.
„Að borða með athygli felur í
sér að beina athyglinni meðvitað
að því að borða og taka betur eftir
merkjum líkamans um svengd og
seddu. Einnig er æskilegt að huga
að skammtastærðum og stilla
magni í hóf þegar skammtað er á
diskinn.“
Hún hvetur landsmenn líka
til vatnsdrykkju um jólin, í það
minnsta með öðrum drykkjum.
„Vatn ætti að eiga sér fastan
stað á jólaborðinu með
öðrum drykkjum því vatn
er ákjósanlegasti drykkur-
inn með matnum og við
þorsta.“
Hreyfum okkur
daglega
Embætti landlæknis
bendir einnig á
að samhliða því
sem hugað er að
mataræðinu er
ekki síður gott
að sinna daglegri hreyfingu
yfir jólin, líkt og aðra daga
ársins.
Yfir hátíðarnar er tilvalið að eiga
skemmtilegar samverustundir
með fjölskyldu og vinum með því
að fara í gönguferð, í sund eða á
skauta. Ef snjór er nægur má meðal
annars skella sér á snjóþotu, á skíði
eða bara búa til snjókarl. Hvaða
leið sem valin er til hreyfingar
er líklegt að okkur líði betur en
annars og að við njótum þess enn
frekar að borða góða jólamatinn
og slaka á yfir hátíðisdagana.
Matur og hreyfing um jól
Jólahátíðin og desember allur er matarhátíð hjá mörgum. Þá er tími til að njóta lífsins lystisemda
en þó með skynsemi að leiðarljósi og daglegri hreyfingu á milli sældarlífs og veisluhalda.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir er verkefnastjóri næringar hjá Embætti landlæknis sem hvetur til þess að fjölskyldan eigi skemmtilegar samverustundir með útivist og hreyfingu um hátíðarnar. MYND/EYÞÓR
Vatn ætti að eiga sér fastan samastað
á jólaborðinu með öðrum drykkjum.
Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum
og stórmörkuðum landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E s E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
9
-D
8
B
8
1
E
8
9
-D
7
7
C
1
E
8
9
-D
6
4
0
1
E
8
9
-D
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K