Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 26
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Það er hægt að gera
góða rétti án þess að
nota kjöt í þá.
Bollur eru í uppáhaldi hjá flestum. Það þarf ekkert endilega að vera kjöt í
bollum eins og þessi uppskrift
sýnir. Einnig er hér uppskrift að
indverskum rétti án kjöts og naan-
brauði.
Kjötlausar bollur
Á jólunum er mikil kjötveisla
svo það er ágætt að elda eitthvað
léttara þessa síðustu daga áður
en hátíðin hefst. Til dæmis þessar
litlu kjötlausu bollur sem eru ein-
faldar og góðar.
1 dós svartar baunir
1 laukur
1 hvítlauksrif
2 dl heslihnetur
2 dl rasp
2 egg
1 msk. sojasósa
2 tsk. pipar
1 msk. sterkt sinnep
Salt og pipar
Steinselja, smátt skorin
Smjör og olía til að steikja upp úr
Skolið baunirnar upp úr köldu
vatni og stappið þær síðan með
gaffli.
Skerið lauk og hvítlauk mjög
smátt. Setjið hneturnar í mat-
vinnsluvél og hakkið smátt.
Setjið allt sem upp er talið í upp-
skriftinni í stóra skál og hrærið vel
saman.
Látið blönduna jafna sig í 10
mínútur. Búið til litlar bollur og
steikið upp úr smjöri og olíu.
Með bollunum má bera fram
soðnar kartöflur og ferskt salat.
Rauðrófusalat
Þetta salat er gott með ýmsum mat
eða brauði. Margir setja mariner-
aða síld í þennan rétt og borða
með rúgbrauði.
6 niðursoðnar rauðrófur
1 dl rifin piparrót
1 epli
1 rauðlaukur
1 dl sýrður rjómi
1 dl majónes
Salt og pipar
Skerið epli og rauðrófur smátt.
Skerið laukinn sömuleiðis smátt
og rífið piparrótina. Blandið öllu
vel saman sem upp er talið og
kælið. Bætið síld í réttinn ef vill.
Indverskur
grænmetisréttur
Mjög góður og bragðmikill réttur
sem er borinn fram með hrísgrjón-
um, naanbrauði, mango chutney
og hreinni jógúrt.
400 g kartöflur, skornar í bita
1 blómkálshöfuð, tekið í sundur
í kvisti
1 laukur, skorinn smátt
1 msk. rifinn engifer
4 hvítlauksrif, rifin
2 tsk. cumin
1 tsk. chili-pipar
1 tsk. túrmerik
1 tsk. kóríanderduft
400 g tómatar í dós,
niðurskornir
2 grænir chili
1 tsk. garam masala
½ límóna
Ferskt kóríander
Salt og pipar
Olía til steikingar
Hitið þykkbotna pönnu og
bætið olíu út á. Steikið kartöfl-
urnar á nokkuð háum hita þar til
þær taka lit. Setjið kartöflurnar í
skál og steikið blómkálið á sama
hátt. Því næst er laukurinn settur
út á pönnuna og aðeins meiri olía.
Þegar laukurinn mýkist er hvítlauk
og engifer bætt út í. Þegar hér er
komið sögu er kryddinu bætt við
og loks tómötum. Fræhreinsið
chili og skerið smátt. Bætið honum
á pönnuna og kartöflunum og látið
allt malla undir loki í 5 mínútur.
Bætið þá blómkálinu út í og 1 dl af
vatni. Látið allt malla í 8 mínútur.
Kreistið safa úr límónu yfir réttinn
og stráið fersku kóríander yfir.
Bragðbætið með salti og pipar.
Naanbrauð
Með indverska réttinum er nauð-
synlegt að hafa naanbrauð. Það er
best heimabakað.
7,5 dl hveiti
2 dl mjólk
1 egg
1 dl hrein jógúrt
2 msk. olía
1 tsk. salt
2 tsk. sykur
½ tsk. lyftiduft
2 tsk. þurrger
Sigtið hveiti í skál og hitið
mjólkina. Þeytið eggið smávegis í
annarri skál og blandið því saman
við jógúrt, olíu, salt, sykur,
lyftiduft, þurrger og
hálfan dl af mjólk.
Hellið blöndunni
yfir hveitið og
hnoðið saman.
Bætið restinni
af mjólkinni
saman við hægt
og rólega. Þegar
deigið er klárt er
það penslað með
olíu, setjið plast-
filmu yfir skálina og
látið hefast í 2½ klst.
Stillið ofninn á grillið. Penslið
bökunarplötur með olíu. Skiptið
deiginu í sex hluta. Fletjið út brauð
sem er 25 cm langt og 12 cm breitt.
Leggið tvö brauð á hverja bökunar-
plötu og látið standa í 20 mínútur.
Penslið brauðið með smávegis
olíu. Grillið brauðið í 2-3 mínútur
á hvorri hlið. Gott er að pensla
það með hvítlauksolíu eða -smjöri
þegar það kemur úr ofninum.
Kjötlausir réttir í desember
Ef þú ert grænmetisæta eða vilt spara við þig kjötmáltíðir fyrir jólin koma hér góðar uppskriftir.
Það getur verið ágætt að breyta aðeins til. Þetta eru bragðgóðir réttir sem henta öllum aldri.
Litlar bollur án kjöts eru bragðgóðar.
Rauðrófusalat getur verið með eða án síldar.
20% AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM
Í JÓLAPAKKANN HENNAR
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . d e S e m B e R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
8
9
-D
D
A
8
1
E
8
9
-D
C
6
C
1
E
8
9
-D
B
3
0
1
E
8
9
-D
9
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K