Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 28
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
Það eru ýmsar ástæður fyrir því að sumum líður illa í aðdrag-anda jólanna. Það er mikið
sem gengur á og miklar kröfur og
þrýstingur sem fólk þarf að standa
undir. Mörgum finnst að þeim eigi
að líða vel á þessum tíma, þannig
að þeir sem finna fyrir vanlíðan fá
stundum samviskubit og líður verr.
Huffington Post í Bretlandi ræddi
nýverið við ýmsa sérfræðinga í
andlegri heilsu og forvitnaðist um
hvers vegna vanlíðan eykst oft á
þessum tíma og hvað er til ráða.
Margt sem kvelur á jólum
Áhyggjur af peningum eru eitt sem
íþyngir fólki í þessum mánuði. Það
þarf að borga fyrir jólagjafir, jóla-
föt, jólaskraut, jólamat og fleira.
Þetta þarf svo allt að sækja í troð-
fullar verslunarmiðstöðvar, sem
veldur miklu áreiti og streitu.
Margir eru einmana á jólum.
Það eiga ekki allir fjölskyldu eða
vini til að eyða tímanum með og
sá skortur er mun tilfinnanlegri á
aðal fjölskylduhátíð ársins. Þeir
sem hafa misst ástvini finna líka oft
fyrir sterkari söknuði á jólum en
annars.
Á sama tíma og sumir glíma við
einmanaleika eiga aðrir erfitt með
auknar félagslegar skyldur. Sumir
eiga erfitt með að sinna öllum sem
þeim finnst þeir þurfa að sinna og
margir kvíða fyrir jólaveislum og
öðrum samkomum yfir jólahátíð-
ina.
Það er algengt að fólk neyti meira
áfengis í kringum jólin, en það
getur auðveldlega aukið kvíða og
þunglyndi og minnkað gæði svefns,
sem ýtir undir vanlíðan.
Þegar maður skoðar samfélags-
miðla á aðventunni er auðvelt að fá
það á tilfinninguna að allir séu að
njóta aðdraganda jólanna. Allir séu
búnir að gera allt og bíði bara komu
jólanna í faðmi fjölskyldunnar með
heitt kakó og jólasveinahatt. Það er
þekkt að samfélagsmiðlar eru frá-
bærir í að lækka sjálfstraust fólks og
láta því líða eins og það skorti eitt-
hvað eða sé að missa af einhverju.
Endalaust myrkur og kalt veður
hefur heldur ekki jákvæð áhrif á
geðheilsuna og margir finna fyrir
þreytu og geðlægð á þessum tíma
árs. Sumum þeirra finnst að þeir
eigi að vera glaðir á þessum tíma og
fá samviskubit.
Ýmislegt til ráða
En það eru til ráð til að líða betur.
Fyrsta skrefið er að deila tilfinn-
ingum sínum með einhverjum. Það
bætir líðan að tala um tilfinning-
arnar og það er nauðsynlegur hluti
af því að taka stjórn á geðheilsu
sinni og halda henni góðri.
Það er mjög freistandi að loka sig
af á þessum tíma árs og mörgum
finnst erfitt að stunda líkamsrækt
þegar dagarnir eru stuttir og kaldir.
En rannsóknir sýna að hreyfing
eykur vellíðan. Regluleg líkams-
rækt eykur sjálfstraust og einbeit-
ingu og bætir svefn og líðan.
Samfélagsmiðlar geta auðveld-
lega aukið vanlíðan, svo það er um
að gera að taka hlé frá þeim og sjá
hvaða áhrif það hefur. Það er betra
að nota tímann fyrir sjálfan sig og
gera eitthvað sem maður nýtur.
Það er mikilvægt að taka sér
tíma til að huga að sjálfum sér og
sinni geðheilsu. Það er gott að hafa
fastan tíma þar sem hvíld er í for-
gangi og vera mjög meðvituð um
hvernig við tölum við okkur sjálf.
Ekki leyfa þér að segja ljóta hluti
við sjálfan þig.
Það er líka mikilvægt að borða
og drekka skynsamlega til að hafa
ekki neikvæð áhrif á geðheilsuna.
Mikill sykur og áfengi geta hæglega
valdið bæði líkamlegri og andlegri
vanlíðan.
Leiðir til að líða vel yfir jólin
Margir finna fyrir verri andlegri líðan í aðdraganda hátíðar ljóss og friðar og fyllast kvíða eða depurð
í stað þess að hlakka til. Hér eru nokkur ráð til að halda jafnvægi í jólastressinu og líða vel um jólin.
Fólk hefur það misgott um jólin. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Nýtt á Íslandi frá
kerrum
Smi ðjuvegi 40, gul gata , Kópavogi
750kg kerra, gerð 1384, mál: 251x131x35cm
með sturtum. Verð kr: 229,839,- án vsk.
750kg kerra, gerð 1374, mál: 251x131x35cm,
opnanleg að framan. Verð kr: 201,612.- án vsk.
Startrailer 750kg, gerð 1280, 205x109,
mál: 5x30cm. Verð kr: 120,888,- án vsk.
750kg kerra, gerð 1376, mál: 205x131x35cm,
opnanleg að framan. Verð kr: 169,355.- án vsk.
Tveggjaöxlakerra, 2500kg, gerð 2331, mál: 3,03x1,50m,
opnanleg að framan. Verð kr. 431.452, - án vsk.
Flatvagnar-ýmsar stærðir, 2000kg-3500kg,
mál frá 2,65x1,65m til 6,10x2,48m.
Iðnaðarmenn og aðrir,
kerrurnar frá hafa
margsannað sig á Íslandi!
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
8
9
-F
1
6
8
1
E
8
9
-F
0
2
C
1
E
8
9
-E
E
F
0
1
E
8
9
-E
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K