Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 48
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Mér finnst ágætt að sjá ný andlit í pólitíkinni en ég finn til mun meiri fögn
uðar þegar ég get samglaðst fólki
sem er að hætta á þeim vettvangi.
Á þessu er þó ein undantekning.
Það var þegar Björk Vilhelmsdóttir
yfirgaf borgarpólitíkina. Fann ég
til mikils léttis fyrir hennar hönd
þar til hún sagði frá þeim áætl
unum sínum að ætla að tína ólífur í
Palestínu.
Þá vinnu þekki ég alltof vel.
Fékk ég að spreyta mig á öllum
vígstöðvum við skelfilegan orðstír.
Fyrst var ég látinn halda á víbra
tor, sem er alls ólíkur þeim sem
var aðhlátursefni okkar strákanna
á níunda áratugnum, en þetta er
maskína með langan arm sem
ég átti að krækja utan um grein
á ólífutrénu. Við hlið mér stóðu
síðan tíu besservisserar sem allir
höfðu sterka skoðun á því hvaða
grein ég ætti að krækja í, þann
ig að þetta er kannski ekki svo
ólíkt því að sitja í borgarstjórn.
Höndlaði ég víbrator þennan svo
illa að ég sjálfur hristist meira en
trjágreinin.
Þá fékk ég að munda stöng en
mér var uppálagt að lemja henni
í greinarnar eftir því sem besser
viss erarnir sögðu til. Var ég nánast
kominn úr axlarlið eftir korter
og farinn að ákalla mömmu eftir
klukkutíma. Hef ég síðan ekki
getað horft á stangarstökk. Mitt
þriðja hlutverk var að hlaupa með
net undir trén og breiða úr þeim á
freðna jörð sem síðan var orðin að
drullusvaði um hádegisbil. Önnur
eins leiðindi finnast örugglega
ekki í velferðarráði.
En hvað sem því líður þá óska ég
nýjum þingmönnum til hamingju
með starfið og lofa að samgleðjast
þeim þegar þeir hætta svo lengi
sem þeir láta alla ólífutínslu lönd
og leið.
Samglaðst með
pólitíkusum
Glæsilegar
jólagjafir
michelsen.is
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
8
9
-C
E
D
8
1
E
8
9
-C
D
9
C
1
E
8
9
-C
C
6
0
1
E
8
9
-C
B
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K