Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Side 3

Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Side 3
Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson: Engill Drottinsstóð hjá þeim Við skulum ímynda okkur að við vær- um í útilegu á fallegu haust- eða vetrar- kveldi. Við sitjum við varðeidinn og gömlu og góðu skátalögin hljóma í kvöldkyrrð- inni og ekki er kvik á nokkru strái. En þá gerist það skyndilega að engill Drottins birtist. Okkur yrði ekki rótt. Við yrðum áræðanlega skelfingu lostin vegna þess að þetta væri það síðasta sem ykkurdytti í hug að gæti raskað kvöldvökunni. Þannig hefurþað verið með fjárhirðana endur fyrir löngu þar sem þeir gættu hjarðar sinnar á Betlehemsvöllum eitt kvöld og eina nótt. Þeir urðu hræddir. Þeir voru ekki vanir óvæntum tíðindum í tilbreytingaleysi daganna þar sem þeir gættu hjarðarinnar. En þessi reynsla varð þeim til góðs þó að þeir væru óttaslegnir í byrjun. Engillinn flutti boð- skap um frið og fyrirheit sem hafði þau áhrifá hirðana að þeirhéldu þegarástað til Betlehem þar sem þeir fundu svein- barn vafið reifum og lagt í jötu. Og þeir veittu því lotningu. Það er ekki oft minnst á það í Biblíunni að englar birtist en þegar það gerist þá veldur það mikilli skelfingu. Hlutskipti englanna var að flytja boð frá Guði og ekki var það alltaf fagnaðarboðskapur heldur áminning og fordæming þegar einstaklingar og þjóðir höfðu vikið af vegi sannleikans og réttri guðstrú. En hér er fluttur friðarboðskapur og engillinn byrjar á því að hughreysta hirðana og segir: „ Verið óhræddir. “ Og síðan flytur hann þeim þann boðskap að frelsari er fæddur. Þessi boðskapur hefur breytt miklu og • Sr. Kjartan Orn Sigurbjörnsson vegna hans eru unnin kærleiksverk hvar sem hlúð er að þeim sem minna mega sín. Og vegna boðskapar Jesú frá Nazaret eigum við þá trú að yfir okkur vaki kærleiksríkur Guð sem vill okkur allt það besta. Já, frelsari er fæddur og á þessum jólum eins og áður erum við minnt á það sem engillinn sagði hirðunum og þessi boðskapurá að vera okkurjafn dýrmætur og mikils virði og hann var hirðunum á hinni fyrstu jólanótt. Við eigum að veita honum lotningu sem fæddist í Betlehem. Það getum við gert hvern dag og hverja stund með framgöngu okkar í daglegu lífi. Við eigum að reyna að hafa í heiðri boð Drottins um að elska Guð af öllu hjarta og náungann eins og okkur sjálf. Og allt sem við viljum að aðrirmenn geri okkur það eigum við að gera þeim. Það er víða bágt í veröldinni. Víða niðamyrkur kúgunnar og ófrelsis þannig að það erþörfáþví að allirþeirsem vilja berjast góðu baráttunni standi saman og leggi sig fram um að þoka málum til betri vegar. Skátahreyfingin hefur háleitar hugsjónir sem birtast í skátalögum og skátaheitinu. En þetta eru bara andvana orð nema því aðeins að þeim orðum sé gefið líf í starfi þeirra sem tilheyra skátahreyfingunni. Það er von mín að skátahreyfingin megi eflast og að í starfi og leik gelymist ekki að veita honum lotningu sem fæddist á jólum. Guð gefi okkur öllum gleðileg jól. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Ritnefnd: Leiknir Ágústsson Högni Arn- arsson Gunnlaugur Erlendsson Hjálmar Helgason Guðbjörg Ragnarsdóttir Sæ- dís Sigurbjörnsdóttir Marý Linda Jó- hannsdóttir. Prentverk: Eyjaprent/Fréttir hf. Auglýsingar: Leiknir Agústsson Högni Gunnlaugur Erlendsson Arnarsson Ábyrgðarmaöur: Marinó Sigursteins- son Leiðrétting handrits: Halla Andersen SKÁTABLAÐIÐ FAXI oCamarsskóti 90Q. estmannacyfum - ,$i <PósthóC( 244

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.