Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 4
Skátastarfið í dag
Skátafélagið er aðili að Bandalagi ís-
lenskra skáta, BÍS, og áform eru um að
stofna Skátasamband Suðurlands, sem
er nýmæli skv.lögum BÍS frá 1987.
Skátaflokkurinn er enn einn af horn-
steinum skátastarfsins og innra starf
hans hefur verið í sífelldri endurskoðun
síðustu áratugina og á Skátaþinginu hér
í Eyjum var samþykkt ný dagskrá, „Á
ferð“. Allt starf skátaflokkanna í félaginu
byggir á þessari dagskrá. Til þess að
kynna nýju dagskránna verður hér að-
eins drepið á það helsta sem í henn felst.
Skátastarfið hefur alltaf byggst upp á
námi og starfi og þetta eru höfuðþættir
nýju dagskrárinnar.
Fyrst er að nefna grunnnámið, sem
byggist upp á verkefnum sem hver skáti
verður að leysa. Grunnnámsverkefnin
velur hver skáti sjálfur í samráði vlð
foringja sinn, í samræmi við aldur og
þroska hvers og eins.
Grunnnámsverkefnunum er skipt í
fjóra flokka: Hæfni, Fólk, Náttúran og
Þjóðin
Til þess að skátinn, börn og unglingar,
sjái tilgang með því sem þau eru að læra
og hafi af því ánægju, eru grunnnáms-
verkefnin leyst með starfsverkefnum
flokksins. Skátaflokkurinn velur sér starf-
sverkefni, sem mynda heild um grunn-
námsverkefnin sem skátarnir hafa valið
og rúma allt skátastarf, jafnframt því að
þau fela i sér ákveðna vinnuaðferð.
Starfsverkefnunum er einnig skipt í
fjóra flokka: Flokkurinn aflar vina. Allt
starf þar sem flokkurinn gerir eitthvað
fyrir aðra og allt starf er hjálpar þeim að
kynnast öðrum. Flokkurinn ferðast. Allt
útilíf og ferðalög Flokkurinn ber ábyrgð.
Þegar flokkurinn tekur að sér verkefni
fyrir aðra. Flokkurinn er viðbúinn. Flest
skátastörf miða að því að kenna skátum
hagnýt atriði sem hjálpa þeim að bregð-
ast við hinum ýmsu viðburðum i daglega
lífinu.
Og vinnuaðferðin felst í þrennu: Undir-
búningi, Framkvæmd og Endurskoðun
Markmið BÍS er að þjálfa börn og ungt
fólk til að vera sjálfstæðir, virkir og
ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Starfsverkefnunum er skipt í fjögur
svið til að tryggja að skátarnir fái sem
besta þjálfun á sem flestum sviðum.
Flokksstarfið á að vera fjölbreytt og þess
vegna hjálpar þessi aðferð til að velja
verkefni sem auka á fjölbreytnina og
koma skátunum á sporið við að vinna að
verkefnum sem þeim e.t.v. hefur ekki
dottið í hug að vinna að.
Hvernig tengist grunnnámið starfs-
verkefnum?
Æskilegast er að grunnnámið fari fram
um leið og flokkurinn vinnu að starfsverk-
efni. Þegar flokkurinn skipuleggur starfs-
verkefni er það kannað hvernig einstök
verkefni innan þess falla að grunnnámi
hvers skáta. Á heilu starfsári ættu ekki að
vera vandræði að finna starfsverkefni
sem spanna yfir grunnnám skátanna í
flokknum.
Dæmi um tengsl grunnáms við starfs-
verkefni:
Flokkurinn valdi verkefni á sviðinu
Flokkurinn ferðast. Ákveðið er að fara í
dagsferð í júní. Skátarnir í flokknum eru
á þessum aldri: Tveir eru 13 ára, þrír eru
12 ára, tveir eru 11 ára og tveir eru 10 ára.
Flokkurinn ákvað þrjú meginatriði í
göngunni: -Útieldun á prímus. -Stuttur
póstaleikur. -Æfing í skyndihjálp.
Skátarnir í flokknum skiptu með sér
verkum við undirbúning verkefnisins og
• Einbeitnir á svip. Siggi Jóels og
Finnur Freyr.
fundu út að það voru yfir 20 grunnnám-
sverkefni sem þeir gátu unnið í ferðinni.
Valið var úr þessum verkefnum og
þeim skipt milli skátanna í flokknum með
tilliti til hvaða vörðu þeir voru að vinna að.
Hver skáti gat þannig tekið 1 -3 verkefni í
þessari ferð.
Dróttskátar
er nú nýfarið af stað eftir nokkurt hlé.
Einn strákaflokkur hefur starfað af krafti í
eitt ár fram að þessu, en nú hefur einn
stelpuflokkur bæst við. Eftir áramót bæt-
ist einn árgangur við, fæddir 1975, en
það eru sennilega þrír flokkar. Þá er
loksins hægt að stefna að einhverju
markverðu í dróttaskátastarfinu í Eyjum.
í fyrsta lagi yrði mynduð sveit úr þessum
fimm flokkum sem mun heita og heitir
fyrir Ds. Vestmenn. Fram til þessa hefur
aðeins einn flokkur myndað sveitina en
það er dróttaskátaflokkurinn Ds. Orion.
Einnig yrðu námskeið sótt grimmt, svo
sem um áttavitann, námskeið í ferða-
mennsku, skyndihjálp, farið í alls konar
ferðir og gert næstum því allt sem okkur
dettur í hug svo framarlega sem fjárhag-
ur okkar og lög félagsins leyfa. Þannig að
allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í
dróttskátastarfinu, því breiddin er gífur-
leg og eins og maður segir: „Vilji er allt
sem þarf.“
Þeir sem hafa áhuga qa dróttskáta-
starfinu og hafa kannski hug á að skrá
sig í skátana, munið að þið fáið ekki
ævintýrin upp í hendurnar, þið verðið að
skapa þau sjálf.
LÁ
l byrjun eru Dróttskátar þeir sem eru
16 ára á árinu og eldri. Dróttskátastarfið
• Vilji er allt sem þarf
* FLOKKAKERFIÐ
Flokkurinn er grunneining skáta-
starfsins og allt frá upphafi hefur
hann verið hornsteinn skátahreyf-
ingarinnar.
Baden-Powell sagði:
„Flokkakérfið
er ekki ein leið
til þess að reka
skátastarf, heldur
eina leiðin.,,
Ar
SKÁTABLAÐIÐ FAXI