Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 6
Ólafur Sigurðsson:
Frá liðnum árum
Leiksvæði okkar krakkanna við Landa-
götu spannaði nánast yfir alla Eyjuna.
Einkum voru það fjörurnar og bryggjurnar
sem heilluðu að ógleymdum Urðunum,
sém ég held nú að hafi verið okkur
kærastar. Oft lágum við peyjarnir í skjóli í
austanáttum undir stórum steini við Afa-
poll og hlustuðum eftir vélahljóðum bát-
anna og gátum ævinlega getið rétt til
umhverjir væru þar á ferð.
Þegar herinn kom varð bylting í hugum
okkar og annar leikmáti tók við og fyrr en
varði vorum við búnir að læra alla takta
sem hermennirnir höfðu í frammi á
æfingum. Að ganga beinir og í takt,
aðheilsa með því að sveifla hendinni að
enninu var orðin okkar sérgrein, enda
hermannabraggarnir steinsnar frá
Vatnsdal, þar sem við áttum heima.
Fullorðna fólkið var uggandi og ekkert
líklegra en að Þjóðverjarnir gerðu árás á
landið. Við peyjarnir höfðum aftur á móti
ekkert á móti fallbyssudrunum, en aldrei
komu Þjóðverjarnir.
Aðrir atburðir gerðust er komu róti á
huga minn, en það var þegar Högni
bróðir minn gekk í skátafélagið Faxa.
Aðdragandinn að því var leynimakk og
mátti ég helst ekkert vita umþá hreyfingu
og var ég helst á því að það ætti að
senda skátana í stríð við Þjóðverjana,
enda gegnu þeir í takt og heilsuðu eins
og hermennirnir. Á aðfangadag jóla bað
pabbi okkur Högna að fara út i kofa til að
ná í kartöflur og velja þær stærstu. Þetta
þótti okkur ávalt mikill heiður. í kofanum
var hænsnalukt og var nú kveikt á henni.
I stíum hægra megin voru kartöflurnar
hans, en afi átti vinstra megin.
Ekki var slegið slöku við að tína þær
allra stærstu í fötuna og ekki kom til mála
að taka þær frá afa, þó þær væru kannski
stærri, því afi var besti maðurinn í
Vestmannaeyjum og svo þekkti hann
líka allar stjörnurnar. Þegar að við vorum
búnir að fylla fötuna tyllti Högni ser á brún
einnar stíunnar og tók upp vasahníf og
byrjaði að skræla rófu, ég sá í hvelli að
hnífurinn hans Sverris á Hofi. Ég lét
svoleiðis smámuni eiga sig, því ég sá að
Högni varð allt í einu svo leyndardóms-
fullur á svipinn og vissi á augabragði að
hann ætlaði að trúa mér fyrir einhverju
leyndarmáli. Og svo koma það: Þú mátt
koma með á skátafund.
Milli jóla og nýárs var svo haldinn
fundur í skátafélaginu, sem var til húsa í
litlu húsi vestan við Barnaskólann, áður
voru kamrar í þessari byggingu. Skáta-
félagið hafði síðar tekið bygginguna í
gegn og málað í hólf og gólf. Högni fór á
fundinn um kvöldmatarleytið og sagði
mér að koma klukkan tíu. Ég var auðvitað
kominn löngu fyrir þann tíma og beið fyrir
utan. Loks bankaði ég á hurðina og
• Ólafur Sigurðsson
heyrði einhvern kalla að það væri fundur.
Um síðir komu strákarnir út. Högni kallaði
á mig að koma með, því að hann þyrfti að
fylgja Knúti upp að Strembu. Ég rölti á
eftir og gengum upp með kirkjugarðinum.
Nú vissi ég í hvernig í öllu lá, Knútur
þorði ekki einn heim og ekki Högni
heldur.
Mér er alveg sama þó allir draugar í
Vestmannaeyjum ráðist á þig, sagði ég
foxilur á heimleiðinni og gekk eins nálægt
kirkjugarðsveggnum og ég þorði. Seinna
um kvöldið rétti svo Högni mér skátabók-
ina, sem þýddi að fleiri yrðu ferðirnar upp
að Strembu. í sameiningu lásum við
bókina og þar með var svipt hulunni af
leyndardómnum, en skilningurinn á hinu
og þessu lét á sér standa.
Er ég fletti bókinni rakst ég á orðinstríð-
skáti og friðarskáti.
Pabbi var nú kominn í spilið og útskýrði
hitt og þetta. Hann var alltaf glettinn til
augnanna er hann var að hlýða okkur yfir
skátalögin, enda augljóst að allskonar
hrekkir af okkar hálfu, svo sem að ískra
á glugga og þess háttar, gæti ekki varað
mikið lengur.
Strákarnir í nágrenninu er ekki höfðu
áhuga á skátastarfinu fengu oft þau svör
er spurt var um bræðurna í Vatnsdal, að
þeir væru áfundi eða í útilegu. Að sleppa
lifrartínslu og skyndigróða, ef heppnin
væri með, fyrir svona fíflarí væri ófyrir-
gefanlegt. Og nú hófst starfið að fullu.
Utilegur, leit, hjálp í viðlögum aðóg-
leymdum fundum. Smámsaman fór
strákurinn að taka eftir hinu og
þessu í náttúrunni semáður hafði verið
honum hulið. Virðingin fyrir landinu jókst
og það sem hann tókst á við varð honum
til framdráttar og góðs í lífinu sjálfu.
þessu í náttúrunni semáður hafði verið
honum hulið. Virðingin fyrir landinu jókst
og það sem hann tókst á við varð honum
til framdráttar og góðs í lífinu sjálfu.
Ólafur R. Sigurðsson.
Vestmannaeyingar!
Viö höldum upp.á 5 ára umboð með MORA blöndunartæki, sem
hafa reynst sérstaklega vel
Þess vegna bjóðum við núna “1 O afsI á-t-t:
af öllum MORA blöndunartækjum, til jóla
Eldhús tæki
Verð áður kr.
Verð nú kr. 7.960,- slaðgr.
Sturtutæki hitastýrö
Verð áður kr. ÍM35,-
Verð nu kr. 9.032,- staðgr.
Baðtæki hitastýrð
með stút
Verð áður kr. lAOerT
Verð nú kr. 11.704,- staðgr.
Handlaugartæki
Verðáður
Verð nú kr. 8.997,- staðgr.
Þessi tæki eru krómuð og fást einning i hvítu
OPIÐ 14-18 ALLA VIRKA DAGA - LAUGARDAGA KL. 10 -12
MI6STOGIN
6
SKÁTABLAÐIÐ FAXI