Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Síða 10
• Fánaathöfn. Mummi gengur að fánanum.
Flokksforingjanám-
skeið á Úlfljótsvatni
Dagana 9. til 11. nóvember var haldið
flokksforingjanámskeið á Úlfljótsvatni.
Héðan héldu 14 hressir krakkar á nám-
skeiðið.
Við lögðum af stað á föstudagsmorgni
með Herjólfi og gekk það bara bærilega
vel. Síðan var haldið frá Þorlákshöfn til
Reykjavíkur, nánar til tekið upp í Skáta-
ríki. Þar losuðum við okkur við dótið og
fengu þau fyrirmæli að við ættum að
mæta aftur upp í Skátabúð klukkan
18:00. Leið flestra lá upp í Kringlu, en á
mínútunni klukkan 18:00 mættu alliraftur
upp í Skátabúð, endurnærðir og eld-
hressir.
Rútan, sem átti að ná í okkur, kom og
lá leiðin upp í Ársel, en þar átti annar
hópur að bætast við. Eftir það var keyrt
upp á Úlfljótsvatn, þar sem við hittum
fyrir leiðbeinendurna, sem skiptu okkur
upp í flokka. Starfað var í þessum
flokkum alla helgina.
Mikið var um fyrirlestra, farið var í
næturleiki og marga aðra skemmtilega
leiki og á sunnudeginum var námskeið-
inu slitið.
Við urðum samferða hinum krökkun-
um, sem voru á námskeiðinu, á Selfoss.
Þar fórum við úr rútunni og þurftum að
bíða í smástund. En fljótlega kom rúta að
sækja okkur. Hún flutti okkur til Þorláks-
hafnar og þar fórum við um borð í Herjólf
og gekk ferðin heim bara vel.
• Kvöldvaka. Stebbi stjórnar eins og
hann best getur.
JÓLAÁÆTLUN herjólfs
Aðfangadagur 24. desember frá Vestm.eyjum kl. 07:30 - Frá Þ.höfn kl. 11:00
Jóladagur 25. desember - Engin ferð
Annar jóladagur 26. desember - Frá Vestm.eyjum kl. 14:00 - Frá Þ.höfn kl. 18:00
Gamlársdagur 31. desember - Frá Vestm.eyjum kl. 07:30 - Frá Þ.höfn kl. 11:00
Nýjársdagur - Engin ferð.
Að öðru leyti gildir vetraráætlun skipsins.
‘Ueriólfur h(.
1 o
SKÁTABLAÐIÐ FAXI