Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 15
• Unnið að starfsverkefnum.
Sveitafor-
ingjanámskeið
Á Akureyri 24. - 26. nóvember 1990.
Við lögðum af stað með Herjólfi föstu-
daginn 24. nóvember, en við áttum að
fara á sveitaforingjanámskeið á Akureyri.
Þegar við komum til Reykjavíkur fórum
við með flugi til Akureyrar, svo fórum við
upp í skátaheimilið Hvamm, en þar
áttum krakkarnir að hittast. Úr því að
enginn var kominn þangað, skelltum við
okkur bara niður í bæ að kíkja á fólkið á
Akureyri. Þegar því var lokið fórum við
upp í Hvamm. Síðan lögðum við öll af
stað með rútu upp í Hlíðarfjall en þar á
Skíðahótelinu átti námskeiðið að vera.
Þar voru krakkar frá Dalvík, Kópaskeri,
Sauðárkrók og Akureyri, auk okkar frá
Eyjum.
Námskeiðið byrjaði á því að við fórum
í gamlakirkju og félagsforinginn, Tryggvi
Marinósson frá Akureyri, setti námskeið-
ið. Um leið og við komum í skálann áttum
við að skila farngrinum okkar inn og
koma strax út aftur, en þá byrjaði fyrsti
fyrirlesturinn um skátasmárann og lill-
juna, skátalögin og margt fleira. Þegar
• Skíðaskálinn, sem sveitarforingjanámskeiðið var haldið í.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
því var lokið var okkur skipt í 4 flokka og
fékk hver flokkur sitt herbergi en síðan
var kyrrð.
Við vorum vakin klukkan 8 á laugar-
deginum, en þá var morgunmatur. Eftir
það var fyrirlestur fram að hádegi. Hann
var um grunnnám, starfsverkefni, vörð-
urnar og margt fleira. Svo var hádegis^-
matur. Síðan var fyrirlestur um leiki og
leikstjórn, það var mjög gaman. Næst
kom nú kaffið og strax á eftir því voru
nokkrir útileikir. Þá var komið að því að
flokkarnir ættu að undirbúa sveitarfund.
Þegar við komum upp í herbergi vorum
við kölluð niður aftur, út af því að við
áttum að læra spuna en það er einskonar
listdans. Tónlistin við þetta er eins og [
jógaæfingum (hryllingur). Svo var sveit-
arfundur, það var sungið, gerð starfs- og
grunnnámsverkefni, skemmtiatriði og
margt fleira. Næst var komið að nætur-
leik, við áttum að taka á móti geimveru
sem var að koma utan úr geimnum. Við
þurftum að kveikja á kyndli, skjóta upp
rakettum, berjast við andstæðinga
o.s.frv. Allt þetta gekk nú svona og svona
fyrir sig en allt gekk upp að lokum. Þetta
var búið klukkan 1. Þá var kyrrð en það
sofnaði nú enginn fyrr en klukkan 4. Svo
vorum við vakin klukkan 8 með falskri
munnhörpu. Við fórum strax út í fyrirlest-
ur þar sem viðlærðum að nota: Prímus,
áttavita, hvernig fötum maður klæðist úti
og hvernig kveikja á varðeld úti. Svo var
farið inn og farið betur í grunnnámið. Slit
voru klukkan 2:30. Okkar menn flugu
ekki heim fyrr en klukkan 6 og létu sér
bara leiðast á meðan. Við sváfum í
Reykjavík og fórum heim með flugi á
mánudagsmorguninn eftir skemmtilega
ferð.
Ungskáta-
sveitin
Jónas í Fötu
Ungskátasveitin er uppbyggð af 7 - 9
ára krökkum. 8 flokkar eru í sveitinni og 7
foringjar. Nýr sveitarforingi hefur tekið
við sveitinni og hefur því mikið að gera
með sveitinni. Krakkarnir vinna nokkur
verkefni en þau eru ekki erfið. Skemmti-
legast finnst þeim, að læra söngva og
leiki. Söngvarnir eru skemmtilegir og það
er létt aö læra þá en léttast finnst þeim að
læra hreyfisöngva.
Flokkarnir í ungskátasveitinnifara einu
sinni til tvisvar sinnum í útilegu og það er
draumur margra ungskáta, en þá erfarið
í golfskálann í Herjólfsdal.
Þegar krakkarnir í ungskátasveitinni
eru orðin 10 ára fara þau í aðra sveit og
læra eitthvað nýtt og skemmtilegt.
1 5