Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Page 19

Skátablaðið Faxi - 01.12.1990, Page 19
Þá var spilað á grammófón, dansað, drukkið kakó og borðaðar kökur Þórarinn Sigurðsson, sem flestir þekkja sem Tóti rafvirki, í viðtali við Faxa Hvernig bar það til að þú gerðist skáti? Það var nú bara hálfgert slys, þannig var að við vorum alltaf saman; ég, Krissi Karls, Stjáni Ólafs, Jón Ögmunds, Arnar Einarsson og Bergur bróðir hans Arnar í SÍS. Við lentum saman í flokk hjá Ingólfi Hansen en var sem sagt foringinn og varaforinginn var Sævar Jóhannesson sem búsettur er í Reykjavík. Þetta var á þeim árum sem við vorum að byrja í Gagganum og ég man að þessi skáta- flokkur hét Ernir. En þetta var svona uppistaðan. Gætir þú sagt frá starfsferli þínum innan skátahreyfingarinnar? Þetta gerðist þannig að við gengum í þennan flokk og var síðan tekið nýliða- prófið. Fundirnir voru upphaflega haldnir við Fífilgötu 2 bakhús. Þar fór skátastarf- ið fram, þ.e.a.s. fundirnir. Ég man að þetta var ekki kynt upp, en það var rafmagnsofn þarna sem kveikt var á meðan fundirnir voru haldnir. Þetta slag- aði allt saman og jafnvel rigndi inn og ég man að það var mikil fúkkafýla. Því það var kvartað yfir því þegar maður kom heim að eftir hvern fund, að það væri hálfgerð fúkkafúla af manni. Þarna var rekin mínibúð með alls kyns skátamerkj- um, beltum og þetta lyktaði allt saman. Þarna voru fundir haldnir vikulega og stundum kakófundir sem annað hvort stelpurnar buðu eða strákarnir. Þá var spilað á grammifón, dansað, drukkið kakó og borðaðar kökur. En þetta var óttalega saklaust. Og á hverjum sunnu- degi var farið í göngu, eitthvað út á eyju á einhvern ákveðinn stað. Hvenær gerðist þú skáti? Eitthvað um 1958 -1959. Hvað er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir á því tímabili sem þú varst skáti? Ég man ekki eftir neinu sérstöku atriði, ekki neitt sem er ofar öðru. Ég man einna helst eftir því þegar við unnum heitið. Það var gert niður í Samkomuhúsi á einhverju stór afmæli hjá Faxa og þar voru veisluhöld mikil og nokkuð margir vígðir þann dag. Já, sú stund siturdálítið í manni. Hvaða skátar voru mest áberandi þegar þú varst í skátunum? Eg var nú mest var við flokksforingj- anna Sævar og hann Ingólf og svo flokksforinginn á þessum árum var séra • Þórarinn Sigurðsson Jóhann Hlíðar. Síðar varð Þráinn Einars- son foringi og kvenskátunum Inga, konan hans Rabba á Dala-Rafni og eins konan hans Steingríms, hún Guðlaug voru frek- ar áberandi. Hvað lærðir þú í skátunum? Maður lærði nú kannski ekkert sérstakt. Þetta var gaman, maður lærði þó að taka tillit til annarra og það var kannski stærsti lærdómurinn. Maður gat ekkert farið að frekjast neitt einn, það urðu allir að starfa saman sem ein heild. Hvað finnst þér um skátastarfið í dag? Mér líst vel á það eins og ég sé það og ef það gerir krökkunum eins gott og þegar ég var í skátunum þá er ekkert nema jákvætt við það. Er eitthvað sem þú villt segja að lokum? Eins og ég segi, þá voru þessi skátaár sérlega góð ár. Þetta var skemmtilegur og þroskandi tími. Og þegarokkarflokkur leystist upp, þá byrjaði ég með flokk ásamt öðrum, en það stóð stutt yfir því þá fóru að koma önnur áhugamál, þannig að maður flosnaði upp úr þessu. Enda var maður ungur á þessum árum og ekki tilbúinn að axla þá ábyrgð að stjórna flokk, ég held að að það hafi verið aðal ástæðan. Ég var flokksforingi og það var eitthvað í eitt ár eða svo og þá var Sigurður Þ. Jónsson með mér en hann á það mér að þakka ef við getum orðað það svo, að hann hefur orðið skáti," sagði Tóti og hló. Skátar og aðrir Vestmannaeyingar! Óskum ykkur gleðilegra jóla ogfarsœlar á komandi ári. Þökkum samskipti liðinna ára. HRAÐFRYSTISTÖÐ VESTMANNAEYJA H.F. SKÁTABLAÐIÐ FAXI 1 9

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.